Þetta eru mistökin sem fjármálagúru gerði

Simran Kaur heldur úti vinsælum hlaðvarpsþætti sem einblínir á fjármál.
Simran Kaur heldur úti vinsælum hlaðvarpsþætti sem einblínir á fjármál. Skjáskot/Instagram

Simr­an Kaur hef­ur notið mik­ils fjár­hags­legs vel­geng­is í líf­inu. Hún er aðeins 25 ára en er millj­óna­mær­ing­ur og held­ur úti vin­sælu hlaðvarpi Gir­ls That In­vest en þar fjall­ar hún um pen­inga­mál. Í viðtali við The Daily Mail fer hún yfir öll þau helstu mis­tök sem hún hef­ur gert í fjár­mál­um.

„Oft­ar en ekki heyr­um við aðeins um það sem heppn­ast vel í fjár­mál­um fólks, hvað það gerði til þess að verða ríkt og svo fram­veg­is. En ég held að það sé jafn­mik­il­vægt að deila því sem mis­heppnaðist,“ seg­ir Kaur.

Dýra máltíðin ekki þess virði

Í stað þess bara að eyða ekki um efni fram þá und­ir­strik­ar Kaur mik­il­vægi þess að fjár­festa og að forðast óþarfa eyðslu.

Þá bend­ir hún á að hún hafði alltaf gert ráð fyr­ir að best væri að borga niður náms­lán eins hratt og mögu­legt væri. „Ég lærði í Nýja Sjálandi og þar eru lán­in vaxta­laus. Það þýðir að þau eru hag­stæðari til langs tíma og betra að borga þau hægt niður.

Kaur seg­ist alltaf sjá eft­ir að eyða pen­ing­um í dýra hluti. „Ég lít oft til baka og mér hryll­ir við pen­ing­un­um sem ég eyddi í til dæm­is rán­dýra veit­ingastaði og ég var ekki einu sinni södd eft­ir máltíðina. Þetta er bara ekki þess virði.“

Ekki selja um leið og markaður­inn lækk­ar

Það er mik­il óvissa í efna­hags­líf­inu núna og hluta­bréf hafa tekið dýfu og marg­ir selja í ör­vænt­ingu sinni. Lang­tíma fjár­fest­ar vita hins veg­ar að það er betra að gefa þessu tíma og von­ast til þess að koma út í plús á end­an­um. 

Kaur seg­ist hafa gert þau mis­tök fyrst þegar hún fór að fjár­festa í hluta­bréf­um. „Amazon hluta­bréf­in mín lækkuðu um 3 doll­ara og ég panikaði þannig að ég seldi allt. Ég hefði hins veg­ar átt að halda þetta út. Ég endaði á að kaupa aft­ur bréf­in. Það er sorg­legt því það er tekið ríf­legt gjald af manni þegar maður kaup­ir og sel­ur. Þannig að ég tapaði enn meiri pen­ing­um. Nú veit ég bet­ur en maður verður að byrja ein­hvers staðar og læra af reynsl­unni,“ seg­ir Kaur sem einnig mæl­ir ekki með því að fólk sé að skoða gengi bréf­anna í safni sínu á hverj­um degi. „Það get­ur verið of stress­andi og leitt til þess að maður ger­ir mis­tök. Rann­sókn­ir sýna að því sjaldn­ar sem maður kík­ir á safnið, því betra.“

Ekki mikla þetta fyr­ir þér

Kaur seg­ir að stærstu mis­tök­in sé að hafa ekki trú á sér og halda að það að fjár­festa sé of flókið fyr­ir mann.

Þegar hún var yngri þá hélt hún að það að fjár­festa væri bara fyr­ir talnag­lögga karl­menn í jakka­föt­um. „Ég hélt að bara ríkt fólk gæti fjár­fest en svo er hins veg­ar ekki. Það að fjár­festa er hins veg­ar tæki til þess að hjálpa manni að efn­ast.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda