Settu þér fjárhagsleg markmið á árinu

Fortuna Invest: Aníta Rut Hilmarsdóttir, Rósa Kristinsdóttir og Kristín Hildur …
Fortuna Invest: Aníta Rut Hilmarsdóttir, Rósa Kristinsdóttir og Kristín Hildur Ragnarsdóttir.

Mörg vilj­um við hefja árið með glæsi­brag, með öll okk­ar mál á hreinu. Marg­ir setja sér mark­mið í heilsu­rækt­inni en það eru einnig fjöl­marg­ir sem setja sér fjár­hags­leg mark­mið í byrj­un árs. 

Rósa Krist­ins­dótt­ir hjá Fort­una In­vest hvet­ur fólk til þess að setja sér mark­mið í fjár­mál­um og að það sé meðvitað um sína fjár­hags­legu stöðu.

„Með því að setja þér fjár­hags­áætl­un og fjár­hags­leg mark­mið ákveður þú hvert pen­ing­ur­inn fer í staðinn fyr­ir að velta fyr­ir þér hvert pen­ing­ur­inn fór,“ seg­ir Rósa.

Fort­una In­vest held­ur úti fróðlegri síðu á In­sta­gram þar sem fylgj­end­ur geta fengið góðar hug­mynd­ir að leiðum til sparnaðar og fjár­fest­inga. Á dög­un­um báðu þær, sem að Fort­una In­vest standa, fylgj­end­ur sína um að deila með sér fjár­hags­leg­um ára­móta­heit­um og fengu fjöl­marg­ar hug­mynd­ir sem flest­ir ættu að geta nýtt sér.

Hug­mynd­ir að fjár­hags­leg­um ára­móta­heit­um:

1. Að vera meðvitaður um fjár­mál­in og skipu­leggja þau 

2. Hlusta á hlaðvarpsþætti og lesa bæk­ur um fjár­mál

3. Borga niður yf­ir­drátt. Það borg­ar sig alltaf að greiða fyrst niður skuld­ir sem bera háa vexti

4. Borga niður minna hús­næðislánið sem oft­ast er viðbót­ar­lán og ber hærri vexti

5. Spara og fjár­festa. Margt smátt ger­ir eitt stórt. Benda má á að lægsta fjár­hæð sem hægt er að fara í áskrift í sjóði er fimm þúsund krón­ur. Það gera 60 þúsund á ári og þá á eft­ir að taka til­lit til mö­u­legr­ar ávöxt­un­ar og vaxta­vaxta.

6. Klára all­ar raðgreiðslur.

7. Segja upp áskrift­um sem maður er ekki að nota mikið. Allt safn­ast sam­an.

8. Að eiga fyr­ir ut­an­lands­ferðinni í stað þess að setja hana á kred­it­kortið og borga síðar. 

9. Hugsa sig vand­lega um áður en eitt­hvað er keypt. 

10. Hætta að sóa mat. Nýta af­ganga og ekki fara svang­ur í búðina.

11. Finna sér „fjár­mála-vin“ til þess að ræða um fjár­mál af viti og yf­ir­veg­un.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda