Ekki hægt að eyða öllu í eitthvað skemmtilegt

Kristín Hildur Ragnarsdóttir segir mikilvægt að leggja fyrir í séreign.
Kristín Hildur Ragnarsdóttir segir mikilvægt að leggja fyrir í séreign. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Krist­ín Hild­ur Ragn­ars­dótt­ir fjár­mála­hag­fræðing­ur seg­ir að því miður hafi alltaf verið erfitt að kaupa fast­eign í fyrsta skipti. Að henn­ar mati er það hluti af því að full­orðnast að átta sig á því að það sé ekki hægt að eyða öll­um pen­ing­un­um í eitt­hvað skemmti­legt. Sjálf hef­ur hún verið sniðug að búa til auka­tekj­ur til að eiga fyr­ir ut­an­lands­ferð.

Krist­ín Hild­ur seg­ir í fyrsta lagi mik­il­vægt að for­gangsraða þegar huga á að fast­eigna­kaup­um. „Ef ein­stak­ling­ur er að safna fyr­ir íbúð en er samt að eyða mestu af pen­ing­un­um í að fara út með vin­um sín­um þá er það að skemmta sér mögu­lega ofar á lista en að safna fyr­ir íbúð á þeim tíma – en það er líka í góðu lagi. Það er nauðsyn­legt að verðmeta það að kaupa sér íbúð meira en annað. Auka 10.000 kr. á mánuði í sparnað hljóm­ar ekki mikið en það eru samt auka 120.000 kr. á ári. Það þýðir líka að þetta eru 120.000 kr. sem þú þarft að láta af ein­hverju öðru,“ seg­ir Krist­ín Hild­ur sem leiðir vöruþróun fyr­ir ungt fólk og fjár­fest­ing­ar hjá Íslands­banka og er ein af meðlim­um fræðslu­vett­vangs­ins Fort­una In­vest.

„Í öðru lagi er það um­talaði sér­eign­ar­sparnaður­inn. All­ir sem eru í fullri vinnu eða í hluta­starfi ættu að sækja um sér­eign­ar­sparnað, sem þýðir að þú legg­ur til 2 eða 4% af laun­um og launa­greiðand­inn greiðir 2% á móti. Ef þú not­ar ekki sér­eign­ina fyrr en þú ferð á eft­ir­laun þá þarftu að borga skatt af sér­eign­inni en með því að leggja hana til við íbúðar­kaup eða nota inn á lánið þá slepp­urðu við skatt­inn – og hver er ekki til í það. Ég man hvað mér brá þegar sér­eign­in fór í fyrsta skipti inn á lánið, það fyrsta sem ég hugsaði var að það hefði ein­hver óvart lagt inn á lánið mitt en nei þetta var bara sér­eign­in sem ég hafði safnað. Það er hægt að nýta þetta í 10 ár sam­fellt. Þegar ég og kær­asti minn keypt­um okk­ar fyrstu eign þá nýtti ég sér­eign­ar­sparnað sem ég hafði safnað síðustu fjög­ur ár á und­an og þar með get ég nýtt sér­eign­ar­sparnaðinn næstu sex árin til að setja beint inn á lánið.“

Læt­ur sem pen­ing­arn­ir séu ekki til

Hver er besta leiðin til að spara?

„Þó það hljómi eins og klisja þá skipt­ir mjög miklu máli að skipu­leggja sparnaðinn og gera hann að venju. Mér finnst best að leggja fyr­ir um leið og ég fæ út­borgað, þá er þetta eins og pen­ing­ur sem ég á ekki. Ég legg bæði fyr­ir inn á sparnaðar­reikn­ing og í mánaðarlega áskrift í sjóði. Ég heyrði einu sinni að þau sem hefðu ávaxtað pen­ing­inn mest væru þau sem hefðu gleymt að þau ættu pen­ing­inn eða þau sem voru lát­in; frek­ar sorg­leg en áhuga­verð staðreynd.“

Fórst þú sniðuga leið til að safna fyr­ir íbúð?

„Það sniðug­asta sem ég gerði þegar ég var að safna fyr­ir íbúð var að byrja strax að spara og leggja fyr­ir í sér­eign þegar ég byrjaði að vinna, ég hefði þó viljað að ég hefði lagt meira til hliðar á þeim tíma og eytt minna í eitt­hvað sem hef­ur ekk­ert nota­gildi í dag – en það þýðir víst lítið að pæla í því.

Það var mömmu að þakka að ég og kær­asti minn keypt­um á hár­rétt­um tíma ef svo má segja. Við vor­um ekki einu sinni að íhuga að flytja inn sam­an á þeim tíma en ég var svona aðeins búin að vera skoða íbúðir. Mamma pikkaði í mig og sagði að hún og pabbi hefðu fundið eina sem væri full­kom­in. Ég var ekki al­veg til­bú­in fjár­hags­lega séð í að kaupa eig­in íbúð á þeim tíma en kær­asti minn var til í að koma á móti mér og við feng­um smá aðstoð til að kom­ast inn á markaðinn – þannig ég er eng­in und­an­tekn­ing, ég er ein af þeim sem komst inn á markaðinn með smá aðstoð.“

Kristín Hildur Ragnarsdóttir.
Krist­ín Hild­ur Ragn­ars­dótt­ir. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Er hægt að gera allt; fara til út­landa, kaupa fína hluti og safna?

„Það er al­gjört „full­orðins­mó­ment“ þegar maður átt­ar sig á að maður get­ur ekki eytt mánaðarlaun­un­um ein­göngu í eitt­hvað skemmti­legt. Ef maður ætl­ar að gera allt í einu þá verður maður líka á ein­hvern hátt að auka tekj­urn­ar. Ég og kær­asti minn búum við þann lúx­us að geta leigt íbúðina okk­ar á Airbnb af og til sem gerði það að verk­um að síðasta haust fór­um við til út­landa og gát­um haldið áfram að greiða auka­lega inn á lánið okk­ar. Ég held að ungt fólk pæli mikið í því í dag hvernig það get­ur aukið tekj­urn­ar sín­ar enda margt sem hringrás­ar- og deili­hag­kerfið hafa upp á að bjóða.“

Sér­stak­lega erfitt að kaupa núna

Stund­um er talað um að það sé erfitt fyr­ir ungt fólk að kaupa fast­eign núna, en hef­ur það ekki alltaf verið erfitt?

„Ég held því miður að það hafi og muni alltaf vera erfitt að safna sér fyr­ir út­borg­un. Í dag er þetta samt senni­lega orðið extra erfitt fyr­ir fyrstu kaup­end­ur og aðra sem vilja stækka við sig þar sem Seðlabank­inn er bú­inn að herða ýmis lán­töku­skil­yrði und­an­farið, svo sem með þrengri greiðslu­matsviðmiðum og lægra veðsetn­ing­ar­hlut­falli. Und­an­far­in sex til sjö ár hef­ur fast­eigna­verð mælst hærra í hlut­falli við laun lands­manna þannig að það að ætla leggja út 15-20% af út­borg­un í íbúð tek­ur tíma. Þannig að það reyn­ir á þol­in­mæði og þraut­seigju fólks. Í fyrra voru opin hús yf­ir­full og íbúðir yf­ir­boðnar. Nú er þetta mögu­lega aðeins að lag­ast og seðlabanka­stjóri fagn­ar því vænt­an­lega að aðgerðir Seðlabank­ans séu farn­ar að bíta og markaður­inn aðeins að ró­ast.“

Oft er talað um að það sé mik­il­vægt að kom­ast inn á fast­eigna­markaðinn sem fyrst, er alltaf hag­stæðast að drífa sig?

„Já, ég myndi segja að það skipti máli að kom­ast inn á fast­eigna­markaðinn sem fyrst ef maður ætl­ar inn á hann yf­ir­höfuð en sögu­lega séð hafa fast­eigna­kaup á Íslandi verið góð fjár­fest­ing. Það skipt­ir samt máli að spyrja sig hvort maður geti greitt af lán­inu ef vext­ir breyt­ast og hvort maður geti staðið í kostnaði við viðhald og annað óvænt. Því miður erum við mann­fólkið þó frek­ar skamm­sýn og erum yf­ir­leitt ekki að pæla í hlut­um sem gætu mögu­lega gerst en þess vegna er líka mik­il­vægt að vera með vara­sjóð ef eitt­hvað kem­ur upp á, en oft­ast er miðað við að gott sé að hafa u.þ.b. þreföld mánaðarlaun til vara.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda