Keypti páskaeggjamót og þá fóru töfrarnir að gerast

Þóra Soffía Gylfadóttir býr til sín eigin páskaegg sem eru …
Þóra Soffía Gylfadóttir býr til sín eigin páskaegg sem eru ljúffeng.

Íslend­ing­ar elska Rice Krispies-kök­ur og það var ein­mitt þess vegna sem Þóra Soffía Gylfa­dótt­ir graf­ísk­ur hönnuður ákvað að prófa að gera páska­egg með svipaðri upp­skrift. Það heppnaðist það vel að nú er það orðinn ár­leg­ur viðburður að föndra slík egg. 

„Þetta byrjaði sem upp­skrift að af­mæl­is­köku fyr­ir mörg­um árum þar sem ég mótaði tölustafi af­mæl­is­barns­ins. Það hef ég gert á hverju ári fyr­ir börn­in mín og nú hafa barna­börn­in bæst við,“ seg­ir Þóra Soffía sem er móðir fjög­urra barna og fjög­urra barna­barna.

„Ég keypti plasteggja­mót í Hag­kaup fyr­ir nokkr­um árum og prófaði að nota Rice Krispies-upp­skrift­ina og það varð ekki aft­ur snúið. Ég var aðeins búin að fikra mig áfram með að bræða súkkulaði og pensla inn í mótið en mér fannst það allt of mikið maus,“ seg­ir hún og set­ur máls­hátt og gotte­rí inn í hvert egg fyr­ir sig.

Hver er gald­ur­inn á bak við egg­in?

„Það er í raun­inni að passa upp á að hlut­föll­in séu rétt því sírópið er límið í þessu öllu sam­an og er því auðvelt að móta áður en það harðnar.“

Þóra Soffía á fjögur börn og fjögur barnabörn. Hún segir …
Þóra Soffía á fjög­ur börn og fjög­ur barna­börn. Hún seg­ir að heima­gerð páska­egg skapi alltaf góða stemn­ingu.

Hvernig verða pásk­arn­ir í ár?

„Við fjöl­skyld­an erum mikl­ir flakk­ar­ar. Við eig­um hús á Raufar­höfn sem er nú ekki al­veg í ná­grenn­inu en planið er að dvelja þar um pásk­ana.“

Hvað ger­ir þú til þess að njóta pásk­anna sem best?

„Á páska­dag er farið í páska­eggja-rat­leik með nokkr­um vís­bend­ing­um. Það tek­ur mis­lang­an tíma að leysa þraut­irn­ar og oft kær­komið að gæða sér á eggj­un­um. Það er aldrei þannig að þetta sé ein­hver keppni held­ur snýst þetta um skemmt­un. Að sjálf­sögðu skreyti ég aðeins heim­ilið og það er mikið lagt upp úr að elda góðan mat. Lamba­steik verður fyr­ir val­inu en tím­arn­ir breyt­ast hratt og páska­hefðirn­ar líka. Það verður því miður eitt­hvað lítið um kirkju­heim­sókn­ir þessa pásk­ana.“

Rice Krispies-páska­egg

150 g súkkulaði

4 msk. síróp

75 g smjör

150 g Rice Krispies

Bræðið sam­an súkkulaði, smjör og síróp í potti við væg­an hita. Þegar allt er bráðið sam­an er Rice Krispies sett sam­an við. Þegar búið er að hræra allt sam­an er blönd­unni þrýst vel í mótið. Best er að hafa þykkt­ina um hálf­an sentí­metra. Þetta er sett í frysti og geymt þar í 15 mín­út­ur og síðan eru báðir helm­ing­ar fest­ir sam­an með bræddu súkkulaði.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda