Heiðdís æfir í 12-14 tíma á viku

Knattspyrnukonan Heiðdís Lillýardóttir er 26 ára gömul og hefur æft …
Knattspyrnukonan Heiðdís Lillýardóttir er 26 ára gömul og hefur æft fótbolta í 20 ár.

Knatt­spyrnu­kon­an Hei­dís Lillý­ar­dótt­ir var aðeins sex ára göm­ul þegar hún byrjaði að æfa fót­bolta og upp­lifði strax mikla ástríðu fyr­ir íþrótt­inni. Hún á að baki glæst­an fót­bolta­fer­il og skrifaði ný­verið und­ir samn­ing við sviss­neska knatt­spyrnuliðið Basel.

Heiðdís er upp­al­in á Eg­ils­stöðum en flutti snemma að heim­an til að spila fót­bolta á Sel­fossi. Tveim­ur árum síðar fór hún yfir í Breiðablik í Kópa­vog­in­um og spilaði þar sex tíma­bil. 

„Ég er með BS gráðu í sál­fræði en lífið snýst bara um fót­bolt­ann núna. Ég flutti til Basel í Sviss í lok janú­ar 2023, en sviss­neska deild­in er spiluð yfir vetr­ar­tím­ann og klár­ast í lok maí,“ út­skýr­ir Heiðdís. 

Æfir 12-14 klukku­stund­ir á viku

Það er nóg að gera hjá Heiðdísi sem æfir að meðaltali um 12-14 klukku­stund­ir á viku fyr­ir utan keppn­ir. „Við æfum sex sinn­um í viku og kepp­um einu sinni í viku. Svo tek ég oft­ast auka­lega þrjár styrktaræf­ing­ar yfir vik­una og er með æf­ing­ar frá styrkt­arþjálf­ar­an­um mín­um. Svo fáum við alltaf einn frí­dag á viku,“ seg­ir hún. 

Heiðdís hef­ur mikla ástríðu fyr­ir fót­bolta en viður­kenn­ir þó að það komi tíma­bil þar sem ástríðan minnki, til dæm­is vegna meiðsla eða annarra þátta. „Ástríðan er þó alltaf til staðar og und­an­farið ár hef­ur ástríðan aldrei verið eins mik­il.“

„Ég æfi á æfingasvæði Basel Campus sem er staðsett við …
„Ég æfi á æf­inga­svæði Basel Camp­us sem er staðsett við aðalleik­vang Basel.“ Ljós­mynd/​Phil­ipp Kämpf

Hvernig er morg­un­rútín­an þín?

„Morg­un­rútín­an mín er að drekka mikið vatn, fá mér morg­un­mat, kaffi og fara á morgu­næf­ingu. Fyr­ir áhuga­sama þá fæ ég mér alltaf hafra­graut ala Guðrún Heiða. Ég reyni alltaf að vera eins fljót og ég get að und­ir­búa það sem ég borða því mér finnst leiðin­legt í eld­hús­inu.

Ég set alltaf heitt vatn úr kaffi­vél­inni út á hafra og chia-fræ, en það er mjög fljót­legt. Síðan bæti ég við prótein­dufti með vanillu­bragði og kanil, set svo epli, ban­ana, blá­ber og hnetu­smjör út á graut­inn. Svo fæ ég mér kaffi og tek víta­mín.“

Hvernig er hefðbund­inn dag­ur í þínu lífi?

„Hefðbund­inn dag­ur er morg­un­mat­ur, morgu­næf­ing, há­deg­is­mat­ur með liðinu, slök­un eða sjúkraþjálf­un, æf­ing seinni part­inn, kvöld­mat­ur og svo kósí.“

Hvernig díl­ar þú við stress og mót­læti tengt æf­ing­um og keppni?

„Mér finnst það gott merki ef ég er stressuð fyr­ir leikj­um, þá finn ég að ég er spennt og vil gera vel. Ég reyni bara að passa að það verði ekki of mikið með því til dæm­is að skrifa niður hvað ég er að hugsa, gera plön og setja mér mark­mið.

Þegar kem­ur að mót­læti þá finnst mér mik­il­væg­ast að gef­ast ekki upp, hafa trú á sér og hafa mark­mið. Svo er einnig mik­il­vægt að hika ekki við að leita sér hjálp­ar þegar þess þarf. Ég hef oft glímt við meiðsli og hef þá alltaf leitað til sjúkraþjálf­ara, sál­fræðings og kírópraktors. Svo hef ég verið með nær­ing­arþjálf­ara und­an­farn­ar vik­ur og mér finnst það hjálpa heil­mikið upp á orku og frammistöðu.“

„Mér finnst gott að sjá fyrir mér í hausnum hvað …
„Mér finnst gott að sjá fyr­ir mér í hausn­um hvað ég ætla að gera í leikn­um og fara yfir hverju ég get stjórnað. Mér finnst líka gott að gera jóga og hug­leiðslu með ró­andi tónlist til að núllstilla mig, eða taka göngu­túra með tónlist.“

Hvað finnst þér best að borða fyr­ir keppni?

„Það fer eft­ir því klukk­an hvað leik­ur­inn er, en mér finnst best að borða mikið dag­inn fyr­ir því ég verð frek­ar lyst­ar­laus á leik­degi. Ann­ars finnst mér best að reyna að borða prótein­rík­an hafra­graut og ávexti í morg­un­mat, fæ mér svo pasta, kjúk­ling og græn­meti í há­deg­inu og svo ristað brauð með ban­ana.“

Hver er lyk­ill­inn að ár­angri þínum í íþrótt­inni að þínu mati?

„Setja sér mark­mið, að gef­ast ekki upp sama hvaða mót­læti kem­ur og hafa trú á sjálf­um sér all­an tím­ann.“

Hvað er mest krefj­andi við íþrótt­ina?

„Það er mest krefj­andi að vera í burtu frá kær­ast­an­um mín­um, fjöl­skyldu og vin­um.“

En mest gef­andi?

„Það er mest gef­andi að vinna við það sem maður elsk­ar og hef­ur ástríðu fyr­ir. Að spila stóra leiki og ná þeim ár­angri sem maður stefn­ir að. Allt fólkið sem maður kynn­ist er líka mjög gef­andi.“

Áttu þér upp­á­haldsminn­ingu úr fót­bolt­an­um?

„Upp­á­haldsminn­ing­in mín úr fót­bolt­an­um eru titl­arn­ir fjór­ir með Breiðablik, að spila í 16 liða úr­slit­um tvisvar með Breiðablik í Champ­i­ons League og svo á ég marg­ar góðar minn­ing­ar frá því ég bjó í Lissa­bon og æfði með Ben­fica.“

Heiðdís í Lissabon í Portúgal.
Heiðdís í Lissa­bon í Portúgal.

Ertu með ein­hver ráð fyr­ir ungt íþrótta­fólk?

„Eltu draum­ana þína og hafðu trú á þér.“

Upp­á­halds­snyrti­vör­ur?

„Upp­á­halds­húðvör­urn­ar mín­ar þessa stund­ina eru frá Kheil's og upp­á­halds­hár­vör­urn­ar mín­ar eru frá Kér­asta­se. Ég mála mig yf­ir­leitt ekki þessa dag­ana en þegar ég nenni þá nota ég alltaf sömu snyrti­vör­urn­ar. 

Ég nota bronz­ing gel frá Sensai, soft matte-hylj­ara frá Nars, skygg­ing­arstifti og krem­kinna­lit frá Fenty Beauty, give me sun-sólar­púðrið frá Mac, glært auga­brúnag­el frá An­astasia Bever­ly Hills og svo sett­ing-sprey frá Ur­ban Decay.

Svo lita ég sjálf auga­brún­ir og augn­hár svört reglu­lega. Ég nota svo sensati­onal-maskar­ann frá May­bell­ine ef það er eitt­hvað skemmti­legt til­efni en ekki fyr­ir leiki.“

Heiðdís notar yfirleitt alltaf sömu snyrtivörurnar, enda búin að finna …
Heiðdís not­ar yf­ir­leitt alltaf sömu snyrti­vör­urn­ar, enda búin að finna vör­ur sem henta henni vel.

Áttu þér áhuga­mál utan fót­bolt­ans?

„Mér finnst lang­skemmti­leg­ast að eyða frí­tím­an­um mín­um í að hitta vini og fara í há­deg­is­verð á veit­ingastaði eða kaffi­hús. Ég elska að vera úti í nátt­úr­unni og skoða eitt­hvað flott. Svo hef ég líka gam­an af því að mála, teikna, lesa og tefla.“

Hvernig mynd­ir þú lýsa fata­stíln­um þínum?

„Fata­stíll­inn minn er eig­in­lega allskon­ar. Ég elska að kaupa eitt­hvað sem mér finnst flott og hef ekki séð áður, sama hvaða búð það er. Ég elska liti en er með æði fyr­ir brún­um núna.“

Heiðdís er með flottan og fjölbreyttan fatastíl.
Heiðdís er með flott­an og fjöl­breytt­an fata­stíl.

Áttu þér upp­á­halds­flík?

„Upp­á­halds­flík­in mín er kjóll sem ég keypti á Neverf­ullydressed og hvít jakka­föt sem ég keypti á Na-kd.“

Hvaðan sæk­ir þú þér tísku­inn­blást­ur?

„Ég sæki mest­an inn­blást­ur hjá Hönnu Scön­berg, hún er í miklu upp­á­haldi hjá mér. En ann­ars finnst mér alltaf eitt­hvað flott í Zöru, Húrra eða Ur­ban Out­fitters. Svo er ég mjög hrif­in af skart­inu hjá Mjöll.“

Hvað er framund­an hjá þér?

„Njóta þess að fá þetta tæki­færi að spila fyr­ir Basel.“

Það er nóg framundan hjá Heiðdísi sem ætlar að njóta …
Það er nóg framund­an hjá Heiðdísi sem ætl­ar að njóta þess að fá að spila í Sviss.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda