Hafdísi gert að greiða 10 milljónir eftir dómsmál

Hafdís Björg Kristjánsdóttir einkaþjálfari þarf að greiða 10.000.000 kr. vegna …
Hafdís Björg Kristjánsdóttir einkaþjálfari þarf að greiða 10.000.000 kr. vegna kaupa á Trimmformi Berglindar. Ljósmynd/Instagram

Haf­dís Björg Kristjáns­dótt­ir, einkaþjálf­ari og kær­asta Kristjáns Ein­ars Sig­ur­björns­son­ar, þarf að greiða 10.000.000 kr. ásamt drátt­ar­vöxt­um vegna kaupa á fyr­ir­tæk­inu Trimm­form Berg­lind­ar. Fyrr­ver­andi eig­end­ur Trimm­forms Berg­lind­ar, Björn Kon­ráð Magnús­son og Guðrún Jóns­dótt­ir stefndu Haf­dísi Björgu þegar ljóst var að hún myndi ekki greiða þeim um­samda upp­hæð fyr­ir fyr­ir­tækið og fóru í einka­mál við hana. Dóm­ur í mál­inu var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykja­vík­ur 19. októ­ber 2022. 

For­saga máls­ins er sú að í ág­úst 2019 festi Haf­dís Björg kaup á Trimm­formi Berg­lind­ar.  Um­samið var að Haf­dís Björg myndi greiða 12.000.000 kr. fyr­ir fyr­ir­tækið ásamt því að taka hús­næðið und­ir rekst­ur­inn á leigu sem er við Faxa­fen 14 í Reykja­vík. 

Haf­dís Björg greiddi 2.000.000 kr. inn á reikn­ing Guðrún­ar 13. sept­em­ber 2019 en í dómi kem­ur fram að hún hafi fengið fyr­ir­tækið af­hent 1. sept­em­ber 2019. Rest­ina af pen­ing­un­um, 10.000.000 kr., fengu þau Björn Kon­ráð og Guðrún ekki greidd­ar og fóru með málið fyr­ir Héraðsdóm Reykja­vík­ur. 

Í dómn­um kem­ur fram að Haf­dísi Björgu sé skylt að greiða 10.000.000 kr. vegna kaupa á rekstri, tækj­um og vörumerki. Ekki var talið að stefnda hefði sýnt fram á hið selda hefði verið haldið slík­um göll­um að henni hafi verið heim­ilt að halda eft­ir greiðslu eða rifta kaup­un­um.

Haf­dís Björg þarf því að greiða hjón­un­um 10.000.000 kr. með drátt­ar­vöxt­um frá 24. októ­ber 2019 til greiðslu­dags, sam­kvæmt 1.mgr. 6. gr. laga nr. 38/​2001, um vexti og verðtrygg­ingu. Auk þess þarf Haf­dís Björg að greiða Birni Kon­ráði og Guðrúnu 1.116.000 króna í máls­kostnað.

Héraðsdóm­ur Reykja­vík­ur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda