Frá Lundúnum yfir í íslenska snyrtivöruheiminn

Íris Björk Reynisdóttir segir lífið leiða mann áfram að því …
Íris Björk Reynisdóttir segir lífið leiða mann áfram að því sem maður gerir hverju sinni.

Hvað ger­ist þegar ung kona og for­eldr­ar henn­ar verða leið á störf­um sín­um og ákveða að kanna hinn ís­lenska snyrti­vöru­heim? Úr verður ein stærsta einka­rekna snyrti­vöru­versl­un lands­ins sem fimm­faldaði veltu sína á einu ári. Íris Björk Reyn­is­dótt­ir, einn eig­enda snyrti­vöru­versl­un­ar­inn­ar Beauty­box, fer hér yfir hið lær­dóms­ríka ferðalag við að hefja eig­in rekst­ur í bransa sem hún vissi lítið um.

Sex ár eru liðin frá því að ég stóð í Perlunni í boði sem fyr­ir­tæki að nafni Beauty­box hafði boðið í. Þegar ég mætti vissi ég í raun­inni ekki hverju væri von á en á efstu hæð Perlunn­ar heyrðist bass­inn lang­ar leiðir út frá laga­vali DJ Dóru Júlíu, helstu áhrifa­vald­ar lands­ins voru mætt­ir og glæsi­leg­ar veit­ing­ar í boði. Mæðgurn­ar Íris Björk Reyn­is­dótt­ir og Val­gerður Björk Ólafs­dótt­ir stóðu þarna bros­andi og tóku á móti mér og velti ég því fyr­ir mér hvaða kon­ur þetta væru sem nán­ast birt­ust upp úr þurru í ís­lenska snyrti­vöru­heim­in­um og ætluðu sér stóra hluti.

Íris Björk.
Íris Björk.

Fór í förðun til að kom­ast inn í nám

„Beauty­box byrjaði í auka­her­berg­inu heima hjá mömmu og pabba og var þar í tvö ár á meðan ég bjó enn þá úti í London. Þegar við byrjuðum að vinna í Beauty­box þá sagði ég eng­um frá því nema mín­um allra nán­ustu. Þó svo við vær­um að vinna kvölds og morgna og með bilaða ástríðu fyr­ir því að gera eitt­hvað nýtt var maður auðvitað alltaf með efa­semd­ir líka. En ef maður reyn­ir ekki eitt­hvað nýtt þá nær maður aldrei að vaxa og ef manni mistekst þá lær­ir maður bara á því. En það var eig­in­lega ekki fyrr en við opnuðum heimasíðuna eft­ir árs vinnu að fleiri en okk­ar nán­ustu fengu að vita af henni,“ rifjar Íris upp en á þeim tíma bjó hún í London þar sem hún stundaði nám við hinn virta London Col­l­e­ge of Fashi­on í tísku­ljós­mynd­un og stíliser­ingu.

Hún seg­ist hafa ákveðið að skella sér í förðun­ar­nám í Air­brush and Makeup School til að hafa skap­andi nám á fer­il­skránni og eiga þannig betri mögu­leika á að kom­ast inn í námið í London. „Ég ætlaði mér aldrei að vinna við förðun og lengi vel kallaði ég mig ekki förðun­ar­fræðing þar sem ég stundaði fagið ekki eft­ir námið en förðunin hjálpaði mér að kom­ast inn í ljós­mynda­námið og gerði mig að fær­ari ljós­mynd­ara. Það er svo fyndið hvernig lífið leiðir mann áfram og þetta nám varð grunn­ur að því sem ég er að gera í dag.“

Íris Björk Reynisdóttir og móðir hennar Valgerður Björk Ólafsdóttir í …
Íris Björk Reyn­is­dótt­ir og móðir henn­ar Val­gerður Björk Ólafs­dótt­ir í skýj­un­um eft­ir opn­un á stærri versl­un Beauty­box.

Mesta lukk­an að vita ekk­ert áður

Þegar Íris út­skrifaðist hlaut hún viður­kenn­ing­una „Excellence in Creati­ve Fashi­on Ed­itorial“ fyr­ir framúrsk­ar­andi tísku­ljós­myndaþætti og bjó í nokk­ur ár til viðbót­ar í London þar sem hún vann sem ljós­mynd­ari. „Það var erfið ákvörðun að flytja heim, því ég ætlaði mér í raun og veru aldrei að flytja aft­ur til Íslands. Svo missti ég svo­lítið áhug­ann á tísku­brans­an­um og þá í raun­inni var ekk­ert að halda mér úti og ég sá að það voru öðru­vísi tæki­færi á Íslandi. Mér fannst líka orðið svo gott að koma heim til Íslands og það togaði mig til baka,“ seg­ir Íris en hún sá tæki­færi í því að vera með í áskrift mánaðarlegt box af lúxuspruf­um af mis­mun­andi snyrti­vör­um svo neyt­end­ur gætu ávallt upp­götvað eitt­hvað nýtt og spenn­andi en það átti eft­ir að breyt­ast í net­versl­un og svo versl­un.

„Þegar við for­eldr­ar mín­ir, Val­gerður Björk Ólafs­dótt­ir og Reyn­ir Jó­hanns­son, byrjuðum á þessu verk­efni vor­um við al­gjör­lega græn. Við feng­um þessa hug­mynd og byrjuðum að vinna í henni án þess að vita neitt um snyrti­vöru­brans­ann eða rekst­ur net­versl­un­ar. Ég held að það hafi ein­mitt verið okk­ar mesta lukka því ef við hefðum vitað hvað við vær­um að koma okk­ur út í þá hefðum við ör­ugg­lega bara aldrei byrjað. Maður lær­ir ein­fald­lega best af því að gera hlut­ina og eina sem maður þarf í raun og veru að gera er bara að byrja og læra á leiðinni. Við lás­um bæk­ur, stúd­eruðum heimasíður, töluðum við all­ar heild­söl­ur sem vildu hitta okk­ur, stúd­eruðum snyrti­vöru­brans­ann fram og til baka, lás­um um inni­halds­efni og formúl­ur, horfðum á enda­laus youtu­be-mynd­bönd og sótt­um nám­skeið. Við erum enn að gera það og lær­um eitt­hvað nýtt alla daga. Það ger­ist allt mjög hratt í þess­um heimi, bæði net­versl­un­um og snyrti­vör­um. Það er mikið um nýj­ung­ar og maður þarf alltaf að vera að fylgj­ast með og hafa putt­ann á púls­in­um, sem er mjög gam­an,“ seg­ir Íris.

Dr. Dennis Gross DRx SpectraLite FaceWare Pro, 88.590 kr.
Dr. Denn­is Gross DRx SpectraLite FaceWare Pro, 88.590 kr.

Pabbi keyrði út pakk­ana

„Við opnuðum net­versl­un­ina árið 2017 og ég sá um vef­inn, sam­skipti við heild­söl­ur, aug­lýs­ing­ar og sam­fé­lags­miðla en pabbi sá um tækni­legu hliðina ásamt því að keyra pakka út á kvöld­in en við vild­um bjóða upp á hraða þjón­ustu svo okk­ar fyrstu kúnn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu kann­ast kannski við að pabbi bankaði upp á hjá þeim fyrsta árið,“ seg­ir Íris og hlær en mamma henn­ar sá um bók­haldið, enda bók­ari að mennt, ásamt því að panta inn, pakka og senda. Íris seg­ir það taka ákveðinn toll að vera alltaf með vinn­una heima hjá sér svo ákveðið var að opna versl­un. „Við opnuðum fyrstu versl­un­ina okk­ar í fe­brú­ar 2020 á Lang­holts­vegi og stuttu síðar skall kór­ónu­veir­an á. Við héld­um nýju versl­un­inni okk­ar lokaðri stór­an hluta af Covid, því lítið mátti bregða út af í svona litl­um rekstri, en litla net­versl­un­in okk­ar fimm­faldaði velt­una á einu ári og við vor­um fljót að sprengja fyrsta hús­næðið af okk­ur og flutt­um í Síðumúla 22 fyr­ir ári,“ seg­ir Íris og þakk­ar ár­ang­ur­inn því að vinna með meðeig­end­um sem hún treyst­ir full­kom­lega: „Ég á fyr­ir­tækið með for­eldr­um mín­um og gæti ekki ímyndað mér betri sam­starfs­fé­laga. Það halda marg­ir að ég eigi Beauty­box ein en það er alls ekki raun­in, for­eldr­ar mín­ir, sem eru á sjö­tugs­aldri, eru harðdug­leg­asta og klár­asta fólk sem ég þekki og ekk­ert af þessu væri til nema fyr­ir okk­ar sam­starf.“

Íris seg­ist ávallt hafa átt gott sam­band við for­eldra sína en var þó ekki al­veg viss með sam­starfið í byrj­un: „Áður en ég flutti heim þá hugsaði ég al­veg með mér í gríni: „Úff er ég að fara að vinna með þeim alla daga?“ en það hef­ur gengið eins og í lyga­sögu og ég veit eng­in meiri for­rétt­indi en að eiga þetta sam­band og fá að vinna með þeim á hverj­um degi. Áður en við byrjuðum að vinna í Beauty­box vor­um við öll í vinnu sem við vor­um frek­ar leið í, mikið að vinna ein og ekk­ert sem dreif okk­ur áfram en í dag er hver ein­asti dag­ur viðburðarík­ur. Okk­ar helsta vanda­mál er kannski að við vinn­um allt of mikið,“ seg­ir Íris og seg­ir snyrti­brans­ann mun skemmti­legri en ljós­mynd­un­ar­brans­ann.

Al­ger græj­u­kona

Beauty­box er nú ein stærsta einka­rekna snyrti­vöru­versl­un lands­ins og er með hvorki meira né minna en 72 vörumerki í sölu. Það vakti at­hygli þegar versl­un­in hóf sölu á led-and­lits­tækj­um frá dr. Denn­is Gross og ör­straumstækj­um frá NuFace en þarna voru kom­in á ís­lensk­an markað ein­stak­lega öfl­ug tæki til heima­notk­un­ar svo fólk gat sett enn meiri kraft í húðum­hirðuna. „Ég er al­gjör græj­u­kona, ein­fald­lega elska tækni og nýj­ung­ar og led-and­lits­tækið frá dr. Denn­is Gross er í al­gjöru upp­á­haldi hjá mér ásamt NuFace-ör­straumstæk­inu. Þessi tæki frá báðum þess­um merkj­um eru þekkt á alþjóðavett­vangi svo mig langaði að hafa þau í boði fyr­ir fólk sem vill enn meiri virkni. Eitt það skemmti­leg­asta við starfið er að maður fær að prófa ótelj­andi snyrti­vör­ur á hverju ári og því breyt­ist topp­list­inn stund­um ört en ég hef átt NuFace-tækið í fimm ár og dr. Denn­is-tækið í tvö ár og það er ekk­ert sem kem­ur í staðinn fyr­ir þau,“ seg­ir Íris en um­rædd tæki hafa notið gíf­ur­legra vin­sælda og virðist verðmiðinn ekki stöðva fólk.

Mik­il þróun hef­ur orðið á ís­lensk­um snyrti­vörumarkaði, bæði hvað viðkem­ur fram­boði á vörumerkj­um og þjón­ustu en einnig eru Íslend­ing­ar mun meðvitaðri og áhuga­sam­ari um húð- og snyrti­vör­ur. Sjálf nýt ég þess að heim­sækja mis­mun­andi snyrti­vöru­versl­an­ir reglu­lega og finnst alltaf jafn gam­an að heim­sækja Beauty­box, fá ilm­andi kaffi­bolla og gleyma mér í umræðum um nýj­ustu snyrti­vör­urn­ar. Það er áber­andi góður og af­slappaður andi í versl­un­inni, all­ar spurn­ing­ar vel­komn­ar og greini­legt að ástæða er fyr­ir hinum skjóta vexti versl­un­ar­inn­ar. „Við vild­um frá upp­hafi skera okk­ur úr með því að láta fólki líða vel í versl­un­inni, taka okk­ur tíma í að aðstoða það við val á réttu vör­un­um og auðvitað senda þau skila­boð að það sé eðli­legt að eld­ast eða fá ból­ur og eng­inn kippi sér upp við það nema maður sjálf­ur,“ út­skýr­ir Íris og seg­ir að lok­um að snyrti- og húðvör­ur noti maður fyrst og fremst fyr­ir sjálf­an sig.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda