Töff að sauma eigin föt

Tara Mobee er þekkt fyrir tónlistina er færri vita að …
Tara Mobee er þekkt fyrir tónlistina er færri vita að hún er flink í höndunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tara Mo­bee saumaði pils á sauma­nám­skeiði í fyrra sem hún er dug­leg að nota. Hún seg­ir pínu töff að geta sagt öðru fólki að hún hafi saumað eig­in flík. Næsta haust verður sauma­vél­in minna uppi á borði þar sem hún er að hefja nám í Lista­há­skóla Íslands.

Tara, sem er að verða 25 ára, var lítið í heimasaumuðum föt­um þegar hún var telpa en sem yngsta stelp­an í barna­barna­hópn­um fékk hún ara­grúa af notuðum föt­um. „Þegar maður fær svona poka af alls kon­ar byrj­ar maður að púsla sam­an hinum ólík­leg­ustu flík­um sem get­ur endað skemmti­lega. Hvað þá þegar þú sérð gaml­ar mynd­ir og ert kannski ekki leng­ur eins sam­mála öll­um þeim sam­stæðum sem urðu til,“ seg­ir Tara.

Þegar hún var orðin aðeins eldri byrjaði hún að fikta við sauma­vél­ina og sauma það sem henni datt í hug. „Þegar ég var í grunn­skóla saumaði ég prins­essukjóla fyr­ir ösku­dag­inn og ef mig langaði í eitt­hvað sem ég sá ekki úti í búð þá fékk ég aðstoð frá frænku eða mömmu til að búa það til sjálf,“ seg­ir Tara sem nýtti sauma­nám­skeiðið til að rifja upp takt­ana og ná al­menni­leg­um tök­um á grunn­atriðum hjá frá­bær­um kenn­ara.

Tara saumaði pilsið á saumanámskeiði.
Tara saumaði pilsið á sauma­nám­skeiði. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Ger­ir allt flókn­ara

„Ég set mér það mark­mið þegar ég fer á nám­skeið og þegar ég læri eitt­hvað nýtt að reyna að fara ekki endi­lega ein­föld­ustu leiðina. Af hverju ekki að gera eitt­hvað aðeins erfiðara og læra meira, og þá sér­stak­lega ef þú ert kom­in með ágæt­is skiln­ing á því sem þú ert að gera? Á sauma­nám­skeiðinu gerði ég hins veg­ar akkúrat öf­ugt og ætlaði að gera eitt­hvað ein­fald­ara af því mig langaði að læra grunn­tækn­ina. En svo kikkaði eitt­hvað inn, sem ger­ist eig­in­lega alltaf, og ég byrjaði að flækja stykkið með ein­hverj­um borðum og erfiðara efni. Það erfiðasta var efnið sem ég valdi, bæði viðkvæmt en mik­il þyngd í því svo ég þurfti að finna út úr hvernig væri hægt að láta það ganga upp.“

Tara valdi að sauma sér pils á nám­skeiðinu.

„Við byrjuðum öll með fyr­ir­framtil­bú­in snið en ég þarf alltaf að vera með sérþarf­ir og gera allt aðeins erfiðara. Ég tók grunnsnið af kjól en gerði pils. Ég gerði það svo miklu síðara en sniðið. Það áttu að vera vas­ar á kjóln­um en ég sleppti þeim og gerði rykk­ing­ar.“

Not­arðu pilsið?

„Held­ur bet­ur, bara sein­ast fyr­ir þrem­ur dög­um. Ég geng reglu­lega í því.“

Borðarnir voru hugmynd Töru.
Borðarn­ir voru hug­mynd Töru. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Lang­ar þig alltaf að klæða þig öðru­vísi?

„Ég held að það ger­ist bara ósjálfrátt, það er ekki planað. Ég fæ hug­mynd­ir sem ég þarf að koma frá mér. Ég sé jafn­vel fyr­ir mér mynd af mér í ákveðnum föt­um eða að gera eitt­hvað ákveðið og þá byrj­ar nýtt ferli. Þá reyni ég að finna út hvernig ég get raðað föt­un­um sam­an, jafn­vel búið þau til eða ein­fald­lega skrái mig á nýtt nám­skeið.“

Ertu að elt­ast við tísk­una í dag?

„Ég er ekki reglu­lega að leita að hvað er í tísku en mér finnst gam­an að fylgj­ast með því svona al­mennt. Tísk­an hef­ur klár­lega ein­hver áhrif eins og kannski hjá flest­um, maður kemst eig­in­lega ekki hjá því. En kannski spurn­ing um „hvaða“ tísku því hún hef­ur aldrei verið eins fjöl­breytt og núna.“

Tara hefur auga fyrir smáatriðum.
Tara hef­ur auga fyr­ir smá­atriðum. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Hægt að læra svo margt

„Eitt það besta við heim­inn í dag er hvað þú hef­ur aðgengi að miklu af efni og hvað þú hef­ur mörg tæki­færi til þess að læra mikið og frek­ar auðveld­lega. Ef þú hef­ur ekki tíma eða pen­inga til að skella þér á nám­skeið þá er þetta á net­inu. Þú get­ur horft á tíu mín­útna YouTu­be-mynd­band til þess að læra á sauma­vél og annað tíu mín­útna til þess að sauma pils. Ef þú vilt ekki lesa, þá get­urðuú horft og ef þú vilt ekki horfa þá get­urðu hlustað. Þetta kem­ur í öll­um form­um. Ég held að fólk nýti þetta ekki eins mikið og það gæti, svo það þarf ekki að vera ein­hver ástæða held­ur má líka bara gera eitt­hvað nýtt og krydda lífið.“

Nýr kafli hófst hjá Töru í haust þegar hún hóf nám við Lista­há­skóla Íslands. „Maður er oft spurður hvort það sé eitt­hvert stress fyr­ir skóla en ég sé ekki fram á það. Það er gam­an að læra nýtt, skapa og búa til, hvað þá í um­hverfi þar sem er verið að styðja við það.“

Tara vakti at­hygli fyr­ir tón­list­ar­hæfi­leika sína þegar hún tók þátt í Söngv­akeppn­inni árið 2019. Hún seg­ist ekki hætt í tónlist þótt hún sé að mennta sig á öðru sviði. „Þetta hef­ur alltaf verið smá tog­streita en ný­lega áttaði ég mig á því að ég gæti gert hvort tveggja. Þetta er í raun­inni allt tengt og þú get­ur unnið þetta allt sam­an ef þig lang­ar til. Tón­list­in er stór hluti af mér svo hún fer ekki neitt í bráð,“ seg­ir Tara.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda