Svona hugsar ríka fólkið

Vivian Tu gerði það gott á Wall Street.
Vivian Tu gerði það gott á Wall Street. Skjáskot/Instagram

Vi­vi­an Tu er verðbréfamiðlari sem starfaði lengi vel á Wall Street. Nú ein­beit­ir hún sér að kennslu og held­ur úti hlaðvarpi um fjár­mál. Hún seg­ir að ríkt fólk hugsi öðru­vísi en aðrir.

„Ég kunni ekki alltaf að fara vel með pen­inga. Ég þurfti að læra það. Ég ólst upp hjá kín­versk­um for­eldr­um mín­um sem voru inn­flytj­end­ur. Þau voru ást­rík en mjög spar­söm og lifðu naumt. Við klippt­um út til­boðsmiða úr blöðum og end­ur­nýtt­um alla plast­poka,“ seg­ir Tu í pistli sín­um á CNBC.

„Það var ekki fyrr en ég fékk vinnu á Wall Street sem ég sá að þau sem voru mjög efnuð voru minna spennt fyr­ir að nurla sam­an aur­um og spara. Þau ein­beittu sér al­farið að því að ávaxta pen­ing­ana sína.“

„Með því að fylgj­ast með hegðun þeirra og til­einka mér hugs­un­ar­hátt þeirra náði ég að eign­ast mína fyrstu millj­ón í kring­um 27 ára ald­ur­inn.“

1. Ekki reyna að ganga í aug­un á fólki

Ríkt fólk kaup­ir sér eign­ir sem hækka í verði eða skil­ar þeim tekj­um en ekki hluti sem falla í verði. Í stað þess að kaupa sér rán­dýr­an bíl þá kaupa þau sér fast­eign og leigja hana út. Þeim er sama hvað þér finnst um þau því þau fara hlæj­andi í bank­ann með all­ar leigu­tekj­urn­ar.

2. Forðastu skorthugs­un

Það eru svo marg­ir sem eru stöðugt að hugsa um skort. Að finn­ast þeir eiga aldrei nóg og halda í hverja krónu. Ríkt fólk hugs­ar um vel­meg­un. Þeir vita að þeir geta borgað reikn­ing­ana og eru því ekki áhyggju­full­ir. Þetta fær­ir þeim frelsi til þess að ákveða hvernig þeir verja tíma sín­um frek­ar en að ein­blína á það hvernig þau lifa af.

3. Hugsaðu til langs tíma

Ríkt fólk veit að góðir hlut­ir ger­ast hægt. Það er þol­in­mótt. Það legg­ur til hliðar pen­ing fyr­ir elli­ár­un­um og horf­ir á hann ávaxt­ast.

4. Deildu góðum ráðum

Ríkt fólk elsk­ar að vera álitið gáfaðasta mann­eskj­an í her­berg­inu. Mann­eskj­an með besta smekk­inn og veit hvar allt það besta fæst. Þeir segja hluti á borð við:
„Ég veit um frá­bær­an end­ur­skoðanda - þú ætt­ir að vinna með hon­um.“
„Ég veit um besta veit­ingastaðinn - prófaðu þenn­an rétt.“
„Ríkt fólk skil­ur að þegar þeir gefa af sér þá fá þeir yf­ir­leitt eitt­hvað í staðinn. Fólk verður lík­legra til þess að deila sinni vitn­eskju um hitt og þetta sem gæti komið að gagni. Þetta er í viss­um skiln­ingi gjald­miðill og ástæða þess að ríkt fólk elsk­ar að koma sínu fólki að í valda­mikl­ar stöður. Þeir hugsa að fyrst þeir passi ekki í starfið en vin­ur þeirra henti vel í það þá mun hann skulda greiða á móti. Þannig eiga þeir einnig auðvelda aðkomu að þess­um til­tekna geira at­vinnu­lífs­ins.“ 

„Jú, þeir vilja sjá vini sína ná langt í líf­inu en þeir eru samt líka að hugsa um næsta leik á tafl­borðinu.“


Vivian Tu sem gestur í bandarískum fréttaþætti.
Vi­vi­an Tu sem gest­ur í banda­rísk­um fréttaþætti. Skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda