Framafólk sem breytti til

Fólk á framabraut.
Fólk á framabraut. Samsett mynd

Fólk fylgdi hjart­anu á ár­inu og enn aðrir sögðu frá því hvernig líf þeirra breytt­ist þegar þeir tóku áhættu á vinnu­markaði. Sum­ir upp­lifðu mótvind en þegar upp var staðið sköpuðust ný tæki­færi.

Kringl­an krækti í Sól­rúnu

Sam­fé­lags­miðlastjarn­an og met­sölu­bóka­höf­und­ur­inn Sól­rún Diego var ráðin til starfa inn­an markaðsteym­is Kringl­unn­ar. Sól­rún starfaði áður sem markaðsstjóri barna­vöru versl­an­anna Von­ar versl­un­ar og Bíum Bíum. Í fe­brú­ar síðastliðnum út­skrifaðist hún sem viðskipta­fræðing ur með áherslu á markaðssam­skipti og sam­fé­lags­miðla frá Há­skól­an­um á Bif­röst. 

Sólrún Diego hóf störf hjá Kringlunni.
Sól­rún Diego hóf störf hjá Kringl­unni.

Björk var skrefi á und­an

Fjöl­miðladrottn­ing­in Björk Eiðsdótt­ir sagði upp starfi sínu á Frétta­blaðinu rétt áður en út­gáfu blaðsins var hætt. Seinna var hún ráðin sem fjöl­miðlafull­trúi Björgólfs Thors Björgólfs­son­ar viðskipta­manns. 

Björk Eiðsdóttir.
Björk Eiðsdótt­ir.

Nýr kafli hjá Gumma Kíró

Stjörnukírópraktor­inn Guðmund­ur Birk­ir Pálma­son, bet­ur þekkt­ur sem Gummi kíró, breytti til þegar hann færði kírópraktor­stöð sína. Kírópraktor­stöð Reykja­vík­ur sam­einaðist Líf Kírópraktík.

Gummi kíró færði sig um set.
Gummi kíró færði sig um set. Ljós­mynd/​Aðsend

Snorri er sinn eig­in herra

Fjöl­miðlamaður­inn Snorri Más­son hætti á frétta­stofu Stöðvar 2. Í vor sagðist hann ætla að prófa eitt hvað annað en endaði svo á að stofna eig­in fjöl­miðil. Fjöl­miðill­inn heit­ir Snorri Más son rit­stjóri og er Snorri Más­son sjálf­ur rit­stjóri.

Snorri Másson er ritstjóri Ritstjóra.
Snorri Más­son er rit­stjóri Rit­stjóra.

Tæki­fær­in biðu Birnu

Birna Ein­ars­dótt­ir hætti sem banka­stjóri hjá Íslands­banka eft­ir um­deilt sölu­ferli á hlut rík­is­ins í bank­an­um. Hún sat ekki lengi verk­efna­laus og var fljót­lega hún orðin stjórn ar formaður í ís­lenska hönn un ar fyr ir tæk inu FÓLK Reykja vík. Fleiri tæki­færi biðu henn­ar.

Birna Einarsdóttir.
Birna Ein­ars­dótt­ir. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Tók U-beygju

Böðvar Þór Eggerts­son sagði frá því í viðtali við tíma­rit Smart­lands hvernig hann ögraði sér á vinnu­markaði. „Ég er á þeim stað í líf­inu akkúrat núna að ég ætla mér að ná langt og þannig hef­ur það alltaf verið. Ég hef samt gert fullt af mis­tök­um en það er líka allt í lagi. Ég er 55 ára og hef nú tekið U-beygju í líf­inu. Ég ætla að ná jafn­langt í viðskipta­líf­inu og ég náði í hár­inu,“ sagði Böðvar eða Böddi eins og hann er kallaður. Hann gerðist fast­eigna­sali og tók þátt í að gera upp hót­el á Blönduósi. 

Böðvar Þór Eggertsson.
Böðvar Þór Eggerts­son. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Kafla­skil hjá Hildi Sif

Hild­ur Sif Hauks­dótt­ir, áhrifa­vald­ur með meiru, hætti sem sem deild­ar­stjóri viðskipta­tengsla hjá fjár­tæknifyr­ir­tæki í London á ár­inu. „Mér fannst æðis­legt að búa í London en var samt meira en til búin að flytja aft­ur heim til Íslands eft­ir að hafa öðlast dýr­mæta reynslu á alþjóðleg um vinnu­markaði og til­bú­in að tak­ast á við ný spenn­andi tæki færi á Íslandi,“ sagði Hild­ur Sif í viðtali við mbl.is.

Hildur Sif Hauksdóttir.
Hild­ur Sif Hauks­dótt­ir. Ljós­mynd/​Aðsend

Út í óviss­una

Anna Fríða Gísla­dótt­ir, eitt mesta markaðsséní lands­ins, kom með óvænta til­kynn­ingu í haust. Hún greindi frá því að hún ætlaði ekki að snúa aft­ur sem for­stöðumaður markaðsmá­la hjá Play eft­ir fæðing­ar­or­lof.

Anna Fríða Gísladóttir.
Anna Fríða Gísla­dótt­ir. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Ragn­hild­ur Stein­unn á nýj­ar slóðir

Sjón­varps­stjarn­an Ragn­hild­ur Stein­unn Jóns­dótt­ir er alltaf með mörg járn í eld­in­um. Í vor tók hún og eig­inmaður henn­ar, Hauk­ur Ingi Guðna­son, við búðunum Dux­i­ana og Í gegn­um glerið. Með þeim í verk­efn­inu eru vina­hjón þeirra, Jón Helgi Er­lends­son og Mart­ina Vig­dís Nar­dini. Dux­i­ana var lengi þekkt fyr­ir að selja hágæða hönn­un­ar­vör­ur í Ármúla. Seinna á ár­inu voru versl­an­irn­ar sam­einaðar und­ir nafn­inu Verona.

Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir er einn af eigendum Verona.
Ragn­hild­ur Stein­unn Jóns­dótt­ir er einn af eig­end­um Verona. Ljós­mynd/Í​ris Dögg Ein­ars­dótt­ir

Ljós­brá nældi sér í MBA-gráðu

Ljós­brá Loga­dótt­ir út­skrifaðist með Ex­ecuti­ve MBA-gráðu frá Há­skóla Íslands í júní en hún er ein­stak­lega fróðleiks­fús mann­eskja. Aðdá­end­ur hlaðvarps­ins Hæ hæ þekkja Lós­brá vel en hún og Hjálm­ar Örn Jó­hanns­son eru par. „Á skóla­helg­um hitt­umst við oft í dyr­un­um og Hjálm­ar fór beint að skemmta fram á kvöld. Ég pantaði þá bara mat og kúrði fram á kvöld með krökk un um. Þetta er bara stutt tíma bil og allt í einu er þetta búið,“ sagði Ljós­brá meðal ann­ars í viðtali um námið í skóla­blaði Morg­un­blaðsins í haust.

Ljósbrá Logadóttir.
Ljós­brá Loga­dótt­ir. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son

Breytt­ar áhersl­ur Berg­lind­ar

Berg­lind Guðmunds­dótt­ir, hjúkr­un­ar­fræðing­ur og fyrr­ver­andi mat­ar­blogg­ari, tók stór skref á ár­inu. Fé­lag henn­ar GRGS ehf. var tekið til gjaldþrota­skipta en mat­ar­bloggið henn­ar Gul­ur, rauður, grænn og salt var lengi eitt vin­sæl­asta mat­ar­blogg lands­ins. Hún ákvað að snúa sér að nýj­um ástríðum. Hún út­skrifaðist sem markþjálfi og stofnaði vef­miðil­inn Sal­ina.is.

Berglind Guðmundsdóttir.
Berg­lind Guðmunds­dótt­ir. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Þurfti hug­rekki til að taka stökkið

María Stef­áns­dótt­ir, markþjálfi og stjórn­endaþjálfi, var for­stöðumaður hjá Icelanda­ir en ákvað að fylgja hjart­anu fyr­ir nokkr­um árum og skipta um starfs­vett­vang. „Ég upp­lifði ótta og af­komu­kvíða. Ég hugsaði ekki mikið út í það sem er stærsta breyt­ing­in en það er að vinna ein, kannski sem bet­ur fer því ég er mik­il fé­lags­vera og vön að vinna með fullt af skemmti­legu fólki,“ seg­ir hún í skóla­blaði Morg­un­blaðsins og bætti við: „Það tók mig lang­an tíma að taka þessa ákvörðun og ég þurfti mikla markþjálf­un sjálf til þess að þora að taka stökkið og kom­ast yfir ótt­ann. Ég er lán­söm að þekkja mjög marga og er með gott tengslanet. Það hef­ur hjálpað mér og það er nóg að gera hjá mér. Ég er ennþá að vaxa.“

María Stefánsdóttir ákvað að fylgja hjartanu og breyta um starfsvettvang.
María Stef­áns­dótt­ir ákvað að fylgja hjart­anu og breyta um starfs­vett­vang. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda