Sverrir Norland orðinn bankamaður

Sverrir Norland rithöfundur er farinn að vinna í banka.
Sverrir Norland rithöfundur er farinn að vinna í banka. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rit­höf­und­ur­inn og tón­list­armaður­inn Sverr­ir Nor­land keypti sér ný jakka­föt í Par­ís á dög­un­um til að und­ir­búa nýj­an kafla í líf­inu. Hann hef­ur ráðið sig til starfa í Ari­on banka sem sér­fræðing­ur í sam­skipt­um og sjálf­bærni. Í sam­tali við Smart­land seg­ir hann að þetta hafi komið óvænt upp en hann sé þó ekki bú­inn að setja ritstörf­in á hill­una. 

„Ég er mjög spennt­ur fyr­ir þess­ari nýju áskor­un – Ari­on banki er frá­bær vinnustaður, fremst á öldufaldi tækn­inn­ar og sta­f­rænna breyt­inga, og margt spenn­andi í gerj­un hérna. Ég er þannig týpa að ég þrífst best í smá ak­sjón inn­an um skemmti­legt og dríf­andi fólk og kem hingað inn til að hjálpa til við öfl­uga upp­lýs­inga­gjöf bæði inn­an- og ut­an­húss. Og svo eru það auðvitað um­hverf­is­mál­in. Bank­ar hafa brjálæðis­leg mik­il áhrif á það hvernig sjálf­bærni sam­fé­lags­ins þró­ast og eft­ir að hafa síðustu ár fjallað um þau mál í ræðu og riti finnst mér spenn­andi að taka þátt í að hreyfa við hlut­un­um úr ann­arri átt. Ég er samt auðvitað ekki hætt­ur að skrifa skáld­skap. Næsta bók svo gott sem smoll­in sam­an og síðan er ég strax far­inn að sjá fyr­ir mér æsi­lega skáld­sögu sem ger­ist í banka, met­sölu­bók sem verður upp­full af slúðri og svaka­leg­um fjár­málatýp­um. Úps! Sagði ég þetta upp­hátt? Þú mátt alls ekki segja nein­um frá því verk­efni þá þorir eng­inn í bank­an­um að tala við mig leng­ur,“ seg­ir Sverr­ir. 

Sverr­ir var gest­ur Heim­il­is­lífs á dög­un­um þar sem hann sagði frá hug­mynd­um um lífið og til­ver­una. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda