Hafdís og Kleini gera samninga og vilja kynna þjóðina fyrir nýjungum

Hafdís Björg Kristjánsdóttir og Kristján Einar Sigurbjörnsson.
Hafdís Björg Kristjánsdóttir og Kristján Einar Sigurbjörnsson. mbl.is/Arnþór Birkisson

Haf­dís Björg Kristjáns­dótt­ir og Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son, eða Haf­dís og Kleini eins og þau eru kölluð, segja frá því í viðtali við Fókus hvers vegna þau hættu á sam­fé­lags­miðlum og segj­ast vera með stór plön en vilja þó ekki gefa upp hver þau eru. 

Haf­dís og Kleini byrjuðu sam­an fyr­ir tæpu ári síðan og voru mjög virk á sam­fé­lags­miðlum áður en hann gaf það út að hann væri hætt­ur á miðlun­um til þess að ein­beita sér að eig­in draum­um. Nú, sjö mánuðum síðar, segj­ast þau hafa komið ýmsu verk sem þau hefðu ann­ars ekki náð. Eins og til dæm­is að leggja drög að nýju fyr­ir­tæki sem mun koma með eitt­hvað nýtt og spenn­andi á ís­lensk­an markað eins og þau orða það.

„Ég ætlaði að byrja eft­ir fjóra daga,“ seg­ir Kleini. 

„Þetta var eins og afeitrun,“ seg­ir Haf­dís.

Þau segja að fyrsti mánuður­inn hafi verið erfiðast­ur. 

„Það voru al­veg svita- og kvíðaköst fyrsta mánuðinn. Maður var að kúpla sig út úr raun­veru­leik­an­um sem maður var bú­inn að búa til. Það var allt öðru­vísi. Maður vissi ekki neitt. Ég vissi ekk­ert hvað væri í gangi úti í heim­in­um, ég var ekki að lesa fréttamiðla eða neitt svo­leiðis, ég var svo í mín­um eig­in heimi,“ seg­ir Kleini.

„Það var bara ekk­ert fyndið og gam­an fyrsta mánuðinn.“

Haf­dís seg­ir að hún hafi ekki trúað því að Kleini gæti hætt á sam­fé­lags­miðlum. 

„Þetta var ógeðslega skrýtið og ég hafði enga trú á þessu. Ég hélt þetta yrðu tveir til þrír dag­ar eða eitt­hvað. En svo var þetta ótrú­lega þægi­legt. Það var meiri ró, meiri hugaró, við kom­um meira í verk. Þetta fór að vera ótrú­lega þægi­legt en var sjúk­lega erfitt í byrj­un. Hann var nán­ast far­inn í spjall­grúpp­una hjá mér og vin­kon­um mín­um og spyrja hvað væri að frétta,“ seg­ir hún. 

 Fyr­ir pás­una var Kleini vin­sæll á sam­fé­lags­miðlum og í sam­störf­um með fyr­ir­tækj­um. Umræðan berst að því hvort það hafi verið erfitt að loka á þessa tekju­lind um óákveðinn tíma til að sinna öðru.

 „Ég var al­veg með plan út frá þessu. Þetta var ekki al­veg þannig að ég köttaði á þetta og fór að lifa á ein­hverj­um dósamat. Ég var að byggja grunn að öðru svo ég þyrfti ekki að vera í þess­um sam­störf­um. Jújú, alltaf gam­an að hafa [sam­störf­in], auka tekju­lind. En svo líka eins og ég segi, maður hef­ur farið í burtu en ein­hvern veg­inn nær maður alltaf að hoppa í þetta aft­ur.“

Koma með nýj­ung­ar til Íslands

Haf­dís seg­ir að þau séu búin að gera ýmsa samn­inga en vill ekki gefa upp hvað þau ætli ná­kvæm­lega að fara að gera. 

„Við erum að gera samn­inga um alls kon­ar. Við erum að fara að opna fyr­ir­tæki,“ seg­ir Haf­dís.

„Við ætl­um að opna nokk­ur ný batte­rí á Íslandi, við get­um orðað það þannig,“ seg­ir Kleini. „Aðeins að bjóða upp á meira á þess­um litla klaka okk­ar.“

„Við erum ekki bara með eitt­hvað eitt, við erum ekki að setja öll epl­in okk­ar í eina körfu. Þetta eru hvað, sex, sjö, átta körf­ur?“ spyr Kleini en Haf­dís er ekki viss.

„Þetta er mikið já, en ógeðslega gam­an. Þetta er eng­in kvöð. Þetta er eitt­hvað sem við höf­um ótrú­lega mik­inn áhuga á.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda