Huffington óskar Höllu til hamingju og birtir mynd af þeim saman

Arianna Huffington birti þessa mynd af sér og Höllu Tómasdóttur …
Arianna Huffington birti þessa mynd af sér og Höllu Tómasdóttur á LinkedIn um leið og hún óskaði henni til hamingju. Ljósmynd/LinkedIn

Arianna Huffington stofnandi The Huffington Post óskaði Höllu Tómasdóttur nýkosnum forseta Íslands til hamingju á samfélagsmiðlinum LinkedIn. Hún segir að Halla hafi verið framúrskarandi forstjóri Team B og segist munu sakna hennar. Huffington segir jafnframt að það að Halla hafi orðið forseti Íslands muni gera heiminn betri. 

Huffington er bandarísk viðskiptakona sem stofnaði fjölmiðilinn The Huffington Post. Hún hefur gefið út 15 bækur og hefur komist á lista Time magazine yfir 100 áhrifamestu einstaklinga heimsins. Hún hefur líka komist á lista Forbes þegar áhrifamestu konur heims eru taldar upp. 

Huffington hefur sagt að velgengni sé eins og ísjaki. Það séu fáeinir sem sjá alla myndina. Allar hindranirnar sem fólk hefur þurft að fara í gegnum, öll vonbrigðin og vinnuna sem liggur þar að baki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál