Sparaðu með því að taka nesti

Það borgar sig að taka með nesti.
Það borgar sig að taka með nesti. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Það get­ur verið ansi freist­andi að stel­ast út í sjoppu í skól­an­um og kaupa eitt­hvað í gogg­inn. Sjoppu­ferðirn­ar geta þó verið ansi dýr­ar og oft og tíðum verður ekki holl­asti kost­ur­inn fyr­ir val­inu. Þegar garn­irn­ar byrja að gaula verður maj­o­nessam­lok­an, kók­flask­an og súkkulaðistykkið ansi freist­andi. Til þess að koma í veg fyr­ir að falla í þessa gryfju er gott að vera með þægi­legt nest­is­box og skipu­leggja nestið kvöldið áður. Hér eru nokkr­ar hug­mynd­ir.

Egg

Harðsoðið egg er fullt hús mat­ar. Það tek­ur enga stund að taka skurn­ina af og skella í sig egg­inu á milli mála. Eina sem þarf að gera er að sjóða eggið kvöldið áður eða fyrr um dag­inn.

Harðsoðið egg er hið fullkomna nesti.
Harðsoðið egg er hið full­komna nesti. Ljós­mynd/​Unsplash.com/​Rachael Gorj­est­ani

Græn­meti

Það er hægt að taka með fleira en bara ban­ana í nesti. Í mat­vöru­búðum eru til litl­ar bragðgóðar gul­ræt­ur sem ekki þarf að skræla og jafn­vel litl­ar ís­lensk­ar ag­úrk­ur sem henta full­kom­lega í skóla­tösk­una. Fyr­ir lúx­usupés­ana er hægt að taka með humm­us og dýfa græn­met­inu í.

Litlar gúrkur henta vel í nestisboxið.
Litl­ar gúrk­ur henta vel í nest­is­boxið.

Kald­ur graut­ur

Kald­ur graut­ur með höfr­um, fræj­um, hnet­um og jafn­vel ávöxt­um er full­kom­inn í skól­ann. Graut­ur­inn er bú­inn til kvöldið áður og lát­inn standa inn í ís­skáp, elda­vél­in verður al­gjör óþarfi.

Svo má alltaf taka með sér skyr með kaffi­bragði og setja smá leynigest út á það. 

Hafragrautur í krukku hentar vel sem nesti.
Hafra­graut­ur í krukku hent­ar vel sem nesti. Ljós­mynd/​Unslp­ash.com/​Cristi Ur­sea

Af­gang­ar

Eldaðu aðeins meira og taktu með þér af­ganga í há­deg­is­mat. Það get­ur verið frá­hrind­andi að burðast með mis­mun­andi nest­is­box fyr­ir aðal­rétt­inn og annað fyr­ir meðlætið en þá er gott að eiga nest­is­box með nokkr­um hólf­um.

Tvísksipt nestisbox eru mjög sniðug. Þetta nestisbox fæst í IKEA …
Tvísksipt nest­is­box eru mjög sniðug. Þetta nest­is­box fæst í IKEA og kost­ar 795 krón­ur.

Te­pok­ar og vatns­flösk­ur

Það er hægt að spara mikið á því að ganga með nokkra te­poka á sér og vatns­brúsa. Upp­á­hell­ing­in og sóda­vatnið er kannski ekki dýrt en það safn­ast sam­an.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda