„Ég var alltaf með smá minnimáttarkennd yfir því að vera ekki með háskólamenntun“

Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir

Erna Hrund Her­manns­dótt­ir hóf MBA­nám í Há­skóla Íslands fyr­ir ári og seg­ir það bestu ákvörðun sem hún hef­ur tekið. Nú er námið hálfnað og tæki­færi henn­ar á vinnu­markaðinum strax orðin fleiri og sjálfs­traustið hef­ur auk­ist til muna. Þetta er í fyrsta skiptið sem Erna er í há­skóla­námi.

„Ég er með stúd­ents­próf frá Verzl­un­ar­skól­an­um. Svo fór ég ekki í há­skóla. Ég lærði förðun­ar­fræði og byrjaði að vinna sem vörumerkja­stjóri hjá Ölgerðinni með þá mennt­un. En síðustu ár hef ég verið að taka diplóm­ur, til dæm­is í vörumerkja­stjórn­un og sta­f­rænni markaðssetn­ingu. Svo ákvað ég að henda mér í MBA-nám og ég fékk und­anþágu með að kom­ast inn án grunn­gráðu frá há­skóla út frá reynslu,“ seg­ir Erna Hrund.

Af hverju varð þetta nám fyr­ir val­inu?

„Þegar ég fór að horfa á hvað mig langaði að gera í framtíðinni með minn starfs­fer­il ákvað ég að það væri tími til kom­inn að sækja mér meiri þekk­ingu. Svo ég fór og las mér til um alls kon­ar nám og datt niður á MBA-námið í Há­skóla Íslands. Ég valdi það því það er á ís­lensku og mig langaði að dýpka skiln­ing­inn á ís­lensku viðskipta­lífi og efla tengsl á ís­lenska markaðnum. Ég náði að skjóta inn um­sókn eft­ir að um­sókn­ar­frest­ur var liðinn og þetta gerðist allt mjög hratt. Þetta var óvænt en svo var ég allt í einu kom­in inn í þetta nám en það var ein besta ákvörðun sem ég hef tekið að demba mér í þetta.“

Erna hef­ur starfað hjá Ölgerðinni og Danól, dótt­ur­fyr­ir­tæki Ölgerðar­inn­ar, síðustu fjór­tán ár og seg­ir vinnustaðinn hafa staðið þétt við bakið á henni. „Námið er sett upp þannig að þú átt að geta unnið 100% vinnu meðfram námi. Ég er það hepp­in að geta verið í þannig vinnu að ég get sam­tvinnað þetta. Þetta er auðvitað mikið viðskipta­tengt og ég hef mikla reynslu í þeim áföng­um sem ég hef verið í, mis­mikla auðvitað en í vinn­unni hef ég fundið fyr­ir full­um stuðningi við mig í nám­inu. Ölgerðin hef­ur alltaf verið þannig fyr­ir­tæki að þau vilja að starfs­fólk sæki sér þekk­ingu og það er mik­ill stuðning­ur. En svo fær maður að gera raun­verk­efni tengt því sem ég er að gera í vinn­unni og sam­tvinna það nám­inu. Svo hef ég fengið að spegla mig í öðrum stjórn­end­um inn­an fyr­ir­tæk­is­ins, til dæm­is þegar við vor­um að læra um árs­reikn­inga þá tók ég gott spjall við fjár­mála­stjór­ann okk­ar og ég fékk þar svör við ýms­um spurn­ing­um,“ seg­ir Erna.

Tvö erfið ár

Tíma­stjórn­un og skipu­lag hef­ur verið helsta áskor­un Ernu síðan námið hófst. „Við maður­inn minn tók­um þá ákvörðun þegar ég fór í námið að þetta yrðu tvö erfið ár og það var mesta áskor­un­in, fjöl­skyld­an og börn­in mín. Ég á tvo stráka úr fyrri sam­bandi og er með þá viku og viku og það hitti alltaf þannig á að ég var í skól­an­um þegar þeir voru hjá okk­ur. Svo maður þurfti að skipu­leggja það miklu bet­ur, en við færðum aðeins til og bjugg­um til meira svig­rúm. Svo að fá pöss­un, maður­inn minn er píp­ari og það er mikið að gera hjá hon­um. En ég held að fé­lags­lífið hafi aðeins farið til hliðar, það að hitta vini og vin­kon­ur og fara á æf­ingu. Ég man ekki hvenær ég fór síðast á æf­ingu en það fór til hliðar og það var áskor­un. En svo ein­hvern veg­inn unn­um við okk­ur í gegn­um þetta og allt í einu er ég hálfnuð,“ seg­ir Erna og hlær.

Hún seg­ir námið hafa gefið sér miklu meira sjálfs­traust. „Ég var alltaf með smá minni­mátt­ar­kennd yfir því að vera ekki með há­skóla­mennt­un í mínu starfi. Á einu tíma­bili var ég orðin eini vörumerkja­stjór­inn í mínu fyr­ir­tæki sem var ekki með há­skóla­gráðu og þessi minni­mátt­ar­kennd var alltaf smá prentuð inn í mig. Ég var alltaf með það í höfðinu að ég yrði að byrja á þessu og klára. En svo að ganga þarna inn og sjá hvað ég stend vel, ég vissi mikið um það sem var verið að kenna og hef rosa­lega mikla reynslu. Það gaf mér rosa­lega mikið, svona, þú kannt þetta al­veg Erna.“

Námið hef­ur einnig veitt henni betri þekk­ingu og sjálfs­traust til að tak­ast á við erfiðar aðstæður.

„Maður er líka svo oft í eig­in heimi í sínu starfi. En nú hef ég mun breiðari þekk­ingu á því hvað aðrir eru að gera í vinn­unni. Ég vissi ekk­ert endi­lega hvað fram­kvæmda­stjór­inn var að tak­ast á við frá degi til dags en ég skil það bet­ur núna. Maður fær dýpri þekk­ingu og skiln­ing á því hvernig fyr­ir­tæki og störf­in virka, þekk­ingu á mannauði og hvernig maður set­ur upp gildi og stefn­ur fyr­ir­tæk­is­ins. Það er þetta sem skipt­ir miklu máli. Ég tala nú ekki um það að fá svo nýtt fyr­ir­tæki í vinn­unni og það kom svo­lítið í kjöl­farið.“

Fékk nýtt starf á dög­un­um

Námið gaf henni sjálfs­traust til að sækj­ast eft­ir meiru og eft­ir fjór­tán ár sem vörumerkja­stjóri hjá Danól urðu breyt­ing­ar á. Fyrr í sum­ar tók hún við sem verk­efna­stjóri yfir út­flutn­ingi á virkni­drykkn­um Collab og sölu­stjóri Collab á Norður­lönd­un­um. Hún er spennt fyr­ir kom­andi tím­um og hef­ur meiri sjálfs­traust í að tak­ast á við þau krefj­andi verk­efni sem eru framund­an.

„Það sem ger­ist líka þegar fólk fer í svona nám að allt í einu kynn­ist maður 27 nýj­um ein­stak­ling­um. Maður á lítið sam­eig­in­legt með þeim í upp­hafi en svo verða þetta bara bestu vin­ir þínir sem þú get­ur leitað til fyr­ir ráðgjöf. Við erum öll á sömu slóðum, við vilj­um ná lengra og hvetj­um hvert annað áfram. Þetta er í fyrsta skiptið sem ég upp­lifi í hóp að það er eng­in sam­keppni. All­ir eru með öll­um í liði, við lyft­um hvort öðru upp og styðjum í gegn­um námið. Það er einn af stóru kost­un­um við námið,“ seg­ir Erna.

„Þetta er ákveðin sjálfs­skoðun. Við fáum til dæm­is ráðgjöf frá markþjálfa og leiðtogaþjálf­un og maður fer að hugsa um hvað manni langi til að gera. Lang­ar mig að verða stjórn­andi eða sér­fræðing­ur? Það er hugs­ana­ferlið sem maður fer meðal ann­ars í gegn­um. Svo hef ég fengið mikla hvatn­ingu frá kenn­ur­um og starfs­fólki og það er gam­an að upp­lifa þenn­an meðbyr.“

Hef­urðu kynnst nýj­um hlut­um um sjálfa þig?

„Já, klár­lega. Helst þegar kem­ur að mann­leg­um sam­skipt­um. Það er alltaf þessi áskor­un, maður er orðinn ákveðið gam­all og manni finnst maður ekk­ert endi­lega þurfa að kynn­ast fleir­um. En þarna kynn­ist maður nýj­um ein­stak­ling­um og fer að vinna með nýju fólki, nýj­um týp­um sem und­ir venju­leg­um kring­um­stæðum myndi maður ekk­ert kynn­ast. Þetta er fólk sem maður ætti enga sam­leið með þannig. En það hef­ur kennt mér ótrú­lega mikið um hvernig ég geti tæklað erfiðar aðstæður, hverj­ir mín­ir helstu kost­ir eru. Það er svo hollt að gera það í smá vernduðu um­hverfi, í skóla­stof­unni. Það að tak­ast á við fólk sem maður er ósam­mála á hrein­skil­inn hátt hef­ur kennt mér mikið. Ég hef lært hvernig ég get hvatt fólk áfram og hvar ég þarf að passa mig í sam­skipt­um, það er mesti lær­dóm­ur­inn. Að fá að hugsa, ég get þetta al­veg, ég get al­veg verið góð í mann­leg­um sam­skipt­um og hef góða leiðtoga­hæfi­leika,“ seg­ir Erna og hlær.

Fyr­ir hvern er námið í þínum aug­um?

„Fyr­ir þá sem vilja leiða teymi og leiða fyr­ir­tæki í hvaða geira sem er. Auðvitað er námið voða viðskipta­tengt og allt svo­leiðis en ég held þú get­ir speglað þig inn í öll fyr­ir­tæki því öll fyr­ir­tæki eru í grunn­inn eins sett upp hvort sem það er í einka­rekna geir­an­um eða hjá hinu op­in­bera. Maður er að læra hvernig maður set­ur upp kostnaðaráætlan­ir, markaðsher­ferðir og mannauðsstjórn­un til dæm­is, skoðar rann­sókn­ir og get­ur átt gagn­rýn­ar sam­ræður við sam­starfs­fólk um niður­stöður kann­ana. Þetta er svo fjöl­breytt. Með mér í hópi eru kenn­ar­ar, hjúkr­un­ar­fræðing­ar og fólk sem starfar í sjáv­ar­út­vegi, alls kon­ar fólk. Svo ég held að all­ir geti speglað sig inn í allt sam­an. Ég held að flest­ir ættu að geta fengið eitt­hvað út úr þessu námi og ekki síst opn­ar þetta hug­ann fyr­ir fleiri tæki­fær­um.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda