Þarf að borga skatt af arfi frá Þýskalandi?

Eymundir Sveinn Einarsson endurskoðandi hjá Endurskoðun og ráðgjöf svarar spurningum …
Eymundir Sveinn Einarsson endurskoðandi hjá Endurskoðun og ráðgjöf svarar spurningum lesenda Smartlands.

Ey­mund­ur Sveinn Ein­ars­son end­ur­skoðandi hjá End­ur­skoðun & ráðgjöf svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hann spurn­ingu frá konu sem á von á arfi frá Þýskalandi.

Sæll,

ég á von á smá arfi frá ætt­ingja í Þýskalandi. Þegar ég fæ upp­hæðina á banka­reikn­ing­inn verður búið að taka af henni skatt í Þýskalandi.

Þarf ég líka að borga skatt af upp­hæðinni hér á landi, það er að segja skatt af þeirri upp­hæð sem lögð verður inn á banka­reikn­ing­inn minn?

Kveðja, 

B

Sæl,

Skv. lög­um um erfðafjárskatt greiða erf­ingj­ar 10% skatt af arfi að frá­dregn­um skatt­leys­is­mörk­um sem nema nú um 6.2 millj­ón­um ef um dán­ar­bú er að ræða ef um ís­lensk­an arf­leif­anda er að ræða.

Að því gefnu að skatt­ur sé greidd­ur eft­ir at­vik­um af erfðafé sam­kvæmt erfðafjár­skýrslu í Þýskalandi, hver svo sem hann er, að þá eru þess­ar fjár­hæðir ekki skattlagðar hér á landi þar sem erfðafjárskatt­ur var fulln­ustaður í Þýskalandi og er það end­an­leg skatt­lagn­ing.

Þannig að stutta svarið er að ef gerð er erfðafjár­skýrsla í Þýskalandi þá er það end­an­leg greiðsla erfðafjárskatts og eng­in heim­ild til skatt­lagn­ing­ar á þessu hér þrátt fyr­ir að mögu­lega sé lægra skatt­hlut­fall í Þýskalandi.

Ég myndi síðan ráðleggja þér að skila at­huga­semd með næstu skatt­skýrslu þar sem skýr­ing­ar á mót­tekn­um arfi eru tí­undaðar í at­huga­semda­dálk með skatt­fram­tal­inu.

Kveðja, 

Ey­mund­ur

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Ey­mundi spurn­ingu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda