Funheit nóvemberspá Siggu Kling

Sigga Kling spáir fyrir lesendum.
Sigga Kling spáir fyrir lesendum.

Hvernig verður nóv­em­ber? Mun ást­in blossa upp hjá fólki í nauts­merk­inu og mun fólk í krabba­merk­inu ná helm­ingi meiri ár­angri en áður? Fær fólk í hrúts­merk­inu stöðuhækk­un? 

Hrút­ur: Þú get­ur lag­fært allt

Elsku hrút­ur­inn minn,

þú ert í óða önn að hreinsa sjálf­an þig af van­könt­um eða vírus­um sem hafa smogið inn í sál­ina. Þú verður svo sterk­ur að laga, leiðrétta og nota þenn­an sterka aga sem þú hef­ur til að gera þig full­kom­inn. Þetta er líka tím­inn sem sem þú færð stöðuhækk­un, þó það sé kannski eitt­hvað fátítt á þess­um tím­um sem við erum að lifa í akkúrat núna. Þú ert bara svo klár að og eins og þú haf­ir heila her­sveit í vinnu. Eft­ir því sem þú verður eldri bæt­ist við að þú hef­ur þær gáf­ur að deila út verk­efn­um og vera sann­ur leiðtogi.

Ýmis­legt sem þú hef­ur byrjað á á þessu ári á eft­ir að gefa vel í aðra hönd, pen­inga­lega séð. Ekki ef­ast um þinn mikla mátt — segðu hvað þú vilt og hafðu hátt! Þó það standi í Biblí­unni að sæl­ir séu hóg­vær­ir því þeir munu landið erfa er það alls ekki ekki það sem þú þarft á að halda svo haltu áfram ótrauður áfram veg­inn. Með þessu skap­ar þú líf þitt jafnóðum. Farðu var­lega í akstri, taktu enga óþarfa áhættu með jafn­vel bíl sem er ekki á nógu góðum dekkj­um o.s.frv.

Lesa meira

Naut: Trúðu á krafta­verk­in

Elsku nautið mitt,

þú ert að fara inn í lit­rík­an og til­finn­ingaþrung­inn ástar­mánuð. Það má segja að ást­in sé allt sem þú þarft eins og Bítl­arn­ir sungu „Love is all you need“. Þú munt virka eins og seg­ull á hitt kynið og þyrft­ir helst að fá þér flugna­spaða eða pip­ar­sprey til að ekk­ert slíkt eigi sér stað í þess­um mánuði! Þess­um segli fylg­ir líka að vanti þig hjálp sækja um lán eða fram­kvæma eitt­hvað sem þú get­ur ekki séð í augna­blik­inu hvernig þú ferð að, þá er þessi sami seg­ull að verki og þú munt fá „já“ sem svar við beiðni þinni. Mundu bara að spyrja sjálft.

Ekki hafa áhyggj­ur af stöðu þinni gagn­vart heim­ili eða íverustað held­ur skoðaðu bara vel hvaða mögu­leika þú þarft að hafa eða gera — þá kem­ur svarið upp í hend­urn­ar á þér. Lokaðu hurðinni ró­lega en ör­ugg­lega á þá sem eru leiðin­leg­ir við þig (Oscar Wilde sagði að eina dauðasynd­in sé að vera leiðin­leg­ur). Þitt tungl er staðsett í sporðdrek­an­um og á eft­ir að hafa mik­il áhrif á kraft­inn þinn. Hugs­an­legt er að þú náir í of­urkraft og til að gera slíkt er mik­il­vægt fyr­ir þig að pró­gramma á þér höfuðið eins og með tölv­una þegar hún er for­rituð.

Lesa meira


Tví­bur­ar: Þú trygg­ir ekki eft­ir á

Elsku tví­bur­inn minn,

það er svo mik­il­vægt að þú skrif­ir niður og hjá þér hvað þú þarft að gera dag­inn eft­ir, næstu viku eða hvað sem er því þegar svona álag rík­ir miss­irðu oft dá­lítið af minn­inu. Svo skipu­legðu hlut­ina eft­ir þínu höfði og láttu sím­ann t.d. minna þig á ef eitt­hvað er sem þú þarft að vita þann dag­inn, þá stund­ina.

Þú lít­ur vel út, ert geislandi og glaðvær og hress­ir við fólkið í kring­um þig. Þú ert svo hnytt­inn og húm­orísk­ur að það hálfa væri nóg! Með orðheppn­inni einni sam­an heill­arðu þá sem þú þarft upp úr skón­um og reynd­ar beint í arma þína ef þú ert á lausu. En þeir sem eru í sam­bandi skulu passa sig á því að gera ekk­ert af sér þenn­an mánuðinn. Allt virðist nefni­lega kom­ast upp þenn­an mánuðinn og einnig þarf að skoða vel að segja ekki öll­um leynd­ar­mál­in sín … því þjóð veit þá þrír vita. Það er gam­alt mál­tæki og er enn 100% rétt.

Lesa meira

Krabbi: Það fer ekk­ert fram hjá þér

Elsku krabb­inn minn,

það er að koma ró­legri tími núna, betra jafn­vægi og auk­inn skiln­ing­ur á því sem er að ger­ast … það er eins þú finn­ir á þér alla skapaða hluti. Næmni þín er að hækka og marg­fald­ast, að það er hreint og beint ótrú­legt. Þig dreym­ir fyr­ir og skynj­ar allt svo miklu bet­ur en þú hef­ur gert áður. Þú horf­ir á þig með bjart­ari og betri sýn, gef­ur frá þér svo mikið þakk­læti til fólks hvort sem það á það skilið eður ei.

Þú ert líka að breyta mataræðinu eða gera ein­hverj­ar breyt­ing­ar á lyfj­um eða víta­mín­um því það er svo mik­il hreins­un í lík­ama þínum að það er aug­ljóst að þú ert að gera eitt­hvað sem ger­ir þér svo gott og læt­ur þér líða bet­ur. Það eina sem all­ir vilja, al­veg sama hvar þeir eru staðsett­ir í líf­inu, er vellíðan eða að líða vel. Taktu eft­ir þeim tíma­bil­um sem þér líður best og klappaðu þér á brjóstið því með því ertu að setja þessa strauma inn í blóðrás­ina (á ensku er þetta kallað tapp­ing). Þar sem frum­urn­ar þínar hafa minni ertu að stilla inn vellíðan­ar­orku þína.

Lesa meira

Ljón: Ekki láta neinn ráðskast með þig

Elsku ljónið mitt,

þín orka er frjáls í eðli sínu, al­veg eins og ljón­in eru frjáls á slétt­unni er eng­inn sem stjórn­ar þeim hvað þau eiga að gera yf­ir­leitt. Skila­boðin til þín elsk­an er að þú skalt passa þig á að ein­hver stjórni þér ekki og segi þér fyr­ir verk­um því með því held­ur sá hinn sami að hann sé yfir þig haf­inn.

Þetta get­ur verið per­sóna sem þú hef­ur hag af að sé inni í lífi þínu en út­kom­an á þessu öllu sam­an gæti orðið svo allt öðru­vísi en þér dett­ur í hug. Svo horfðu í speg­il­inn og spurðu sjálfa þig: „Er það ég sem er að stjórna mínu lífi?“ Þú ert for­stjór­inn yfir sjálf­inu og sál­inni og þegar þú tek­ur frelsið þitt til baka (þó þú sjá­ir ekki endi­lega fjötr­ana) sérðu það um leið um þú tek­ur það til baka.

Lesa meira

Meyja: Nóg af skipu­lagn­ing­um fram und­an

Elsku meyj­an mín,

Þetta eru góðir tím­ar hjá þér núna. Hins veg­ar eru hugs­an­ir þínar á ljós­hraða og eins og Aust­ur­landa­hraðlest­in búi í heil­an­um á þér. Þess vegna get­ur þér fund­ist að þú sjá­ir að svo margt sé bara í bölvaðri vit­leysu og veist ekki í hvorn fót­inn þú eig­ir að stíga en þetta er meira það sem hug­ur þinn er að búa til.

Ef þú lend­ir í því áfalli gagn­vart mann­eskju eða öðru fólki skaltu muna fimm daga regl­una … bíddu í fimm daga því eft­ir fimm daga er allt breytt. Svo ekki snúa öllu við, hringja í mann og ann­an þó ým­is­legt komi upp á, bíddu bara ró­leg, það er verið að lag­færa þetta, svo farðu bara að horfa á ein­hverja þætti og dúlla þér.

Lesa meira

Vog: Nóv­em­ber kem­ur á silf­urfati

Elsku vog­in mín,

þér hef­ur fund­ist þú dá­lítið óör­ugg und­an­farið og oft fengið eins og þyngsli yfir brjóst­kass­ann eða mag­ann og ekki vitað út af hverju þú ert að fá þetta óör­yggi.

Ástæðan er m.a. sú að þú hef­ur ekki verið að gefa þér nógu mik­inn tíma til að efla lík­ama og huga, það er svo margt annað sem virðist brenna á hjá þér svo nú þarftu að leyfa þér aðeins meira kæru­leysi, meiri hvíld, en þú ert nú alls ekki löt en skoðaðu það að leti er sexý!

Þessi mánuður sem þú ert að stíga inn í kem­ur með til þín á silf­urfati það sem þú þarfn­ast og þá sér­stak­lega ef þú slepp­ir tök­un­um og stjórn­ar engu. Þú þarft samt að vita að eng­inn er ómiss­andi og stund­um finnst þér að þú þurf­ir að vera alls staðar með öll­um en stund­um er bara best að taka heima­púk­ann á þetta. Þú heill­ast af öllu sem viðkem­ur líf­inu og átt eft­ir að ferðast bara hrein­lega út um allt, þig dreym­ir um drauma­ferðir. Þú verður beðin um eða færð upp í hend­urn­ar eins kon­ar verk­efni sem teng­ist ferðalög­um, hvort um ræðir vinn­una þína eða ein­hverju öðru.

Lesa meira

Sporðdreki: Ekki ef­ast um ást­ina, ást­in ef­ast ekki um þig

Elsku sporðdrek­inn minn,

þetta er svaka spenn­andi tíma­bil sem er að detta inn hjá þér. Nýtt tungl var núna um mánaðamót­in og gef­ur þér að þú verður að gera þær breyt­ing­ar sem þú vilt hafa í lífi þínu og skapa sjálf­ur gott mynstur í kring­um þig, vera vak­andi fyr­ir öllu sem er að ger­ast því að þá verður mátt­ur­inn þinn marg­fald­ur. Þetta er svo mik­il­vægt tíma­bil og sturluð orka sem þú ert nú þegar far­inn að finna fyr­ir.

Hápunkt­ur mánaðar er í kring­um 15. nóv­em­ber þegar fullt tungl er í nauts­merk­inu en þá er Cupid (ástarguðinn) að skjóta ástarörv­um allt í kring­um þig. Þetta teng­ist líka hinum of­urfagra Ven­us og ef þú ert hrif­inn af ein­hverj­um skaltu bara vaða í málið án þess að hika. Það er marg­ir svo hrædd­ir við þig og þora ekki að taka fyrsta skrefið hvort sem teng­ist vináttu eða ást­um svo breiddu bara út faðminn því þú ert virki­lega elskaður en átt það of oft til að finn­ast þú ekki verðugur í þeim kær­leika. Ekki ef­ast um ást­ina, ást­in ef­ast ekki um þig og út­geisl­un þín og töfr­ar fel­ast ekki alltaf í út­lit­inu þó þú fal­leg­ur og sexý sért!

Lesa meira

Bogmaður: Hik er sama og tap

Elsku bogmaður­inn minn,

það er svo merki­leg orka í kring­um þig al­veg fram að ára­mót­um og hún hljóm­ar sér­stak­lega há­vær – að hika er sama og tapa. Ekki hugsa þig of mikið um, ekki bíða eft­ir að eitt­hvað ger­ist, farðu að fram­kvæma und­ir­stöður á því sem þér finnst spenn­andi og skoðaðu vel: Ef þér líður illa í vinn­unni er það eins og vont hjóna­band sem þú þarft að gera eitt­hvað í. Ekki halda áfram í þeim hjól­för­um sem draga þig niður því ork­an yfir þetta tíma­bil er engri lík.

Það er næst­um eins og þú gæt­ir tínt stjörn­urn­ar af him­in­geimn­um og leikið þér að þeim. Það er eng­inn veg­ur að þú ber­ir skyn­bragð á hversu fljótt breyt­ing­arn­ar ger­ast og allt er orðið öðru­vísi en það var. Vertu sann­fær­andi við sjálf­an þig, talaðu upp­hátt við sjálf­an þig þar sem það gef­ur þér betri orku til að stjórna þess­ari bíó­mynd er kall­ast lífið! Tíðnin á nefni­lega til að tvö­fald­ast þegar þú heyr­ir talaðar setn­ing­arn­ar um það sem þú vilt að birt­ist þér.

Lesa meira

Stein­geit: Eng­inn hef­ur meiri keppn­is­anda en þú

Elsku stein­geit­in mín,

þú þarft að taka af­stöðu gagn­vart svo mörgu í kring­um þig og það þarf að vera af­ger­andi afstaða, ekk­ert kannski, bara já eða nei. Og í þess­ari stöðu er mik­il­vægt að þú haf­ir trúnaðarmann svo þú get­ur létt á álag­inu sem hjá þér er. Eða leita þér hjálp­ar hjá þeim sem vita hvað er best og þá sem vita hvað er best, t.a.m. fagaðila eða það sem þér finnst best.

Í þess­ari spennu þarftu að vera að hugsa vel um heils­una og fara ekki fram úr þér þó þig langi til að gera svo mikið. Sa­t­úrn­us er þín plán­eta og er hún tal­in vera geðstirður og strang­ur faðir ef við get­um kallað hana það en já­kvæðu hliðar henn­ar er að hún kenn­ir þér tak­mark­an­ir og upp­bygg­ingu. Þess vegna er eig­in­leiki þinn þessi mikla ábyrgð sem þú tek­ur og marg­ar skyld­ur sem þú berð ábyrgð á. Þetta ger­ir það líka að eng­inn hef­ur meiri keppn­is­anda en þú og ef þú skoðar vel er sjálf­sag­inn upp á 10 í því sem þú nenn­ir.

Lesa meira

Vatns­beri: Það þarf að taka ákvörðun

Elsku vatns­ber­inn minn,

þú hef­ur svo góðar und­ir­stöður og hef­ur átt áður fyrr svo magnaða kafla í lífs­bók­inni þinni. Alls ekki vera of viðkvæm­ur og taka inn á þig neinn ljót­leika sem pass­ar ekki við þína merki­legu sál. Ef ást­in er ekki að gefa þér það sem þú þarft og þér finnst ekki þú vilj­ir gefa ást­inni það sem hún vill, get­ur verið tími til að hugsa málið, rétti tím­inn til að taka skýra ákvörðun. Þegar þú tek­ur þessa ákvörðun færðu þann styrk sem þig skort­ir.

Þetta er mjög merki­leg­ur mánuður sem teng­ir þig við frið, betri stöðug­leika og þú verður sterk­ari með hverj­um deg­in­um sem líður á þessu tíma­bili. Það er að mynd­ast hjá þér nýtt áhuga­mál eða -svið sem þú verður hug­fang­inn af. 10. nóv­em­ber, 14., 15. og 16. nóv­em­ber,- þetta eru dag­arn­ir sem senda þér skýr skila­boð og aukið þrek til að byrja á nýju eða loka ein­hverj­um mál­um, loka ein­fald­lega því sem er að hindra þig og horf­ast í augu við það sem þú hef­ur hræðst. Þá sérðu að þetta er auðveld­ara en þú nokk­urn tíma bjóst við.

Lesa meira

Fisk­ar: Þú leyn­ist smá harðstjóri í þér

Elsku fisk­ur­inn minn,

þú ert án efa með gríðarlega bless­un yfir þér næstu mánuði. Og þú ert of til­finn­inga­rík­ur, stund­um of smá­muna­sam­ur og svo leyn­ist þarna líka smá harðstjóri ef vera vill. Þó all­ir þess­ir tón­ar hljómi hjá þér kemstu yfir alla þá þrösk­ulda sem fyr­ir þér eru svo taktu ekk­ert of nærri þér, því að næsta skref sem þú tek­ur er pottþétta rétta skrefið.

Passaðu þig svo vel á því að tala ekki illa um fólk sem þú vinn­ur með, vini, vanda­menn o.s.frv., því ef þú ger­ir slíkt kall­arðu til þín vesen og þú vilt að sjálf­sögðu ekki lenda í því. Þetta á einnig við um slúður, ekki vera með „echo“ slúður sem þú veist ekki 100% að sé rétt.

Ég hef þann sið að ef ég ætla að fara að slúðra um aðra að éta ofan í mig orðin, tyggja þau vel og fara svo á kló­settið og skila þeim þar sem þau eiga heima!

H
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda