„Hef nokkuð alvarlegt blæti fyrir nytjamörkuðum“

Kristborg Bóel er flink í höndunum.
Kristborg Bóel er flink í höndunum. Ljósmynd/Aðsend

Krist­borg Bóel Stein­dórs­dótt­ir hef­ur komið víða við. Hún hef­ur starfað sem blaðamaður, rit­stjóri, dag­skrár­gerðarmaður, hand­rits­höf­und­ur og verk­efna­stjóri svo fátt eitt sé nefnt. Krist­borg Bóel er einnig afar skap­andi listamaður og býr til skemmti­leg­ar mynd­ir, sem marg­ir hverj­ar kitla hlát­urtaug­arn­ar, enda finn­ur hún sniðugar leiðir til að skjóta á ýmis sam­fé­lags­leg mál­efni. 

Nýj­asta verk Krist­borg­ar Bó­el­ar er sería af end­urunn­um kápu­mynd­um úr „rauðu ástar­sög­un­um“ sem voru mjög vin­sæl­ar hér á árum áður. Hún fann kassa af slík­um bók­um er hún var að tæma heim­ili móður sinn­ar heit­inn­ar fyrr á ár­inu og sér sköp­un­ar­vinn­una sem ákveðið afl til að byggja sig upp eft­ir erfiða tíma. 

„Ég á alltaf rosa­lega erfitt með að svara spurn­ing­unni hvað „ég er“. Langa svarið er að ég er menntaður grunn­skóla­kenn­ari frá Kenn­ara­há­skóla Íslands og náms- og starfs­ráðgjafi frá Há­skóla Íslands. Ég hef þó aldrei kennt í grunn­skóla og átta mig ekki al­veg á því hvað ég var að spá í varðandi þetta námsval. En, það hef­ur auðvitað nýst mér hell­ing í líf­inu og ég sé alls ekki eft­ir því að hafa klárað það og al­besti bón­us­inn er að þar eignaðist ég eina af mín­um al­bestu vin­kon­um. Ég hef lengst af unnið við rit­stjórn og blaðamennsku og einnig nokkuð við dag­skrár­gerð í sjón­varpi. Ég var hluti af fram­leiðslu­teymi True North og HBO við gerð þátt­araðar­inn­ar True Detecti­ve, sem var al­gert æv­in­týri. Ég er á milli vita akkúrat núna og er bara að henda út net­um hér og þar.“

Kristborg er fjögurra barna móðir.
Krist­borg er fjög­urra barna móðir. Ljós­mynd/​Aðsend

„Hef svo sem aldrei kallað mig lista­mann“

Krist­borg Bóel hef­ur alla tíð haft næmt auga fyr­ir því fal­lega í um­hverfi sínu og alltaf haft mikla þörf til að skapa. 

„Ég hef alltaf verið með frjó­an huga en hef svo sem aldrei kallað mig lista­mann, ekki fyrr en ég þurfti að nefna In­sta­gram-síðuna mína þar sem ég sett inn mynd­ir af verk­un­um mín­um. Mér datt ekk­ert betra í hug þann dag­inn en List­borg­Bó­el, sem vissu­lega er bara nafnið mitt með smá til­vís­un­art­visti.“

Hef­ur þú alltaf verið list­ræn?

„Þegar ég hugsa um það þá hef ég, frá því að ég man eft­ir mér, haft mik­inn áhuga á svo­kallaðri blandaðri tækni í lista­verk­um, þar sem notuð eru fleiri en ein teg­und efniviðar til að skapa verk, líka kallað „colla­ge“ á ensku. Dæmi um þetta eru verk þar sem kannski eru klippt­ar út mynd­ir og texti úr tíma­rit­um og raðað skemmti­lega sam­an í ein­hverja heild. Þá get­ur máln­ing­in, tex­tíl og öðrum efnivið verið bætt við mynd­ina, þannig að list­formið er al­veg opið. 

Ég man að ég og vin­kona mín tók­um þetta lengra í æsku og ger­nýtt­um alla Freem­ans- og Case-vöru­lista sem komu inn um lúg­una á heim­il­um okk­ar. Við klippt­um út hvert ein­asta snitti og bjugg­um til skraut­lega karakt­era sem við röðuðum sam­an, já og bara heila ver­öld fyr­ir hvern og einn. Við vor­um ekk­ert að vinna með þessa sköp­un á blaði, nei nei, gluðuðum þessu bara með kenn­aratyggjói eða lím­bandi beint á vegg­fóðrið, þar sem að lok­um var ekki hægt að koma þuml­ungi fyr­ir í viðbót.“

Kristborg Bóel er ófeimin við að skjóta á ýmis samfélagsleg …
Krist­borg Bóel er ófeim­in við að skjóta á ýmis sam­fé­lags­leg mál­efni. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvaðan færðu inn­blást­ur fyr­ir mynd­irn­ar þínar og hvað hríf­ur þig mest í list­inni?

„Eft­ir­minni­leg­asti inn­blástur­inn minn eru bæk­urn­ar um Ein­ar Áskel. Þess­ar miklu and­stæður á hverri síðu heilluðu mig, þær sam­an­stóðu af naívísk­um teikn­ing­um á móti ljós­mynd­um. Ég gat legið yfir þessu tím­un­um sam­an, þar sem barns­legu teikn­ing­arn­ar blönduðust mjög skýr­um ljós­mynd­um af til dæm­is vefnaði, þar sem hver ein­asti þráður sást. Ég hrein­lega elskaði þess­ar bæk­ur og geri enn. Síðan þá hef ég alltaf verið hrif­in af blandaðri tækni en hef ekk­ert unnið við mynd­list sjálf af ein­hverju viti. Það hef­ur þó lengi blundað í mér, en ér er enn að manna mig upp í að kaupa mér risa­stór­an striga og bara láta hann hafa það óþvegið. Ég geri það á nýju ári, finn það bara í bein­un­um á mér.“

Hvernig byrjaði þetta?

„Upp­hafið af þessu end­ur­vinnslu­mynda­æv­in­týri er að ég hef nokkuð al­var­legt blæti fyr­ir nytja­mörkuðum. Það var svo fyr­ir svona ári að ég stóð mig að því að sog­ast alltaf að göml­um inn­römmuðum mynd­um af miðaldra kon­um, sem marg­ar hverj­ar voru til á hverju heim­ili hér í denn. Ég tengdi bara svo sterkt við þess­ar kon­ur sem lágu þarna þögl­ar og prúðar með ein­hvern armæðusvip á and­lit­inu. Ég fór að taka þær með mér heim, eina af ann­arri og ljá þeim rödd því mér fannt ég al­ger­lega vita hvað þær vildu segja. Al­veg óvart varð þetta neon-þema til, en ég bara fann ekk­ert betra til að mynda staf­ina. Mér fannst það svo bara passa frá­bær­lega á móti mynd­un­um, smá eins og hjá Ein­ari Áskeli vini mín­um, nema þarna voru klúðurs­legu límstaf­irn­ir sem ég klippti út með eld­hús­skær­un­um minn naívismi. Ég skelli svo kögri alls staðar sem ég mögu­lega get, en ég er mik­il kögurá­huga­mann­eskja og ef það eru ein­hver sam­tök kögu­áhuga­fólks hér­lend­is, þá vil ég endi­lega fá að ganga til liðs við þau strax.

Kristborg Bóel segir kögur gera allt fallegra.
Krist­borg Bóel seg­ir kög­ur gera allt fal­legra. Ljós­mynd/​Aðsend

Ég hef að öllu leyti verið að vinna með kon­um í mín­um verk­um, fyr­ir utan að mjög svo óvænt­ur póli­tísk­ur andi sótti mig heim nú í aðdrag­anda kosn­inga. Hann nýtti ég til þess að gera upp bæði Klaust­urs­máli og Icehot1 í eitt skipti fyr­ir öll. En með því er líka minni póli­tísku aðkomu lokið og þýðir ekk­ert að koma að máli við með nokkuð slíkt frek­ar.“

„Stalst til þess að lesa þessa froðu“

Eins og kom fram hér að ofan þá er Krist­borg Bóel nösk að leita uppi ger­sem­ar á nytja­mörkuðum og gefa göml­um hlut­um nýtt hlut­verk og líf. Ger­sem­arn­ar leyn­ast þó víða, en síðastliðið sum­ar rakst hún á mik­inn fjár­sjóð á heim­ili móður sinn­ar.

„Það hef­ur verið smá áskor­un að finna efnivið í mynd­irn­ar mín­ar þar sem fram­boðið fer bara eft­ir því hvað er til á nytja­mörkuðum hverju sinni. Hver og ein kona er því ein­stök og hafa þær selst jafnóðum. Í sum­ar var ég svo að taka til í dót­inu henn­ar mömmu aust­ur á landi þegar ég rak aug­un í full­an kassa af „rauðu ástar­sög­un­um“. Ekki litlu kilj­un­um, held­ur þess­um retró sem gefn­ar voru út í löng­um bun­um fyr­ir hver jól þegar ég var krakki, harðspjalda­bæk­ur með lausri kápu, gjarn­an eft­ir Bodil Foss­berg eða Barböru Cart­land. Mamma mín og amma hámlásu þetta á sín­um tíma og skipt­ust á bók­um eft­ir jól­in. Ég man að ég skoðaði káp­urn­ar vel og stalst svo til þess að lesa þessa froðu löngu áður en ég hafði ald­ur til,“ seg­ir Krist­borg Bóel.

Kristborg Bóel hefur sett kápumyndir rauðu ástarsagnanna í nýjan búning.
Krist­borg Bóel hef­ur sett kápu­mynd­ir rauðu ástar­sagn­anna í nýj­an bún­ing. Ljós­mynd/​Aðsend

„Ég sá strax í hendi mér að þarna væri kom­inn góður efniviður. Ég á erfitt með að lýsa því hvað ger­ist þegar ég fæ góða hug­mynd, en þær koma bara eins og eld­ing í haus­inn á mér, smá eins og ein­hverju sé hvíslað að mér. Yf­ir­leitt hlusta ég á slík­ar hug­mynd­ir og bregst við þeim með ein­hverj­um hætti. Eins og með all­ar þrjár sjón­varps­serí­urn­ar sem ég hef sent frá mér, ég fékk hug­mynd, hringdi nokk­ur sím­töl og áður en ég vissi af var ég far­in að taka viðtöl og fljót­lega eft­ir það horfði ég á afrakst­ur­inn í Sjón­varpi Sím­ans. Ég hef nú oft sagt að mitt nokkuð ný­greinda ADHD sé bæði minn helsti kost­ur og galli. Ég veð úr einu í annað, en svo er þetta al­ger of­urkraft­ur þegar ég finn það sem mig lang­ar til að fram­kvæma og trúi á.”

Viss­irðu strax hvað þú vild­ir gera við kápu­mynd­irn­ar?

„Já, ég vissi al­veg hvernig mig langaði að vinna mynd­irn­ar. Ég pantaði mér pínu­lít­inn prent­ara frá Amazon, akkúrat til­val­inn til þess að prenta út tal­blöðrur með vit­leys­unni sem renn­ur frá mér. Ég er búin að gera ein­hverj­ar tíu týp­ur og valdi nokkr­ar af þeim til þess að gera eft­ir­prent­an­ir af fyr­ir jól­in. Þær eru til­val­in gjöf frá vin­konu til vin­konu.”

Ertu ekki að fara yfir strikið með þessu?

„Ég hef al­veg fengið spurn­ing­ar um hvort ég telji að ég sé ekki á gráu svæði með að kynna verk­in sem mína list, þar sem þau eru í raun hönnuð af öðrum. Það má vel vera, en allt eru þetta gaml­ar mynd­ir og bóka­káp­ur gefn­ar út af for­lög­um sem löngu hafa sungið sitt síðasta. Ég lít því bara frek­ar á það þannig að ég sé að skapa „græna list“ með því nýta efnivið sem ann­ars hefði ekki öðlast nýtt líf. Eða hvað, kannski er ég bara al­ger lög­brjót­ur?”

Eitt af verkum Kristborgar Bóelar.
Eitt af verk­um Krist­borg­ar Bó­el­ar. Ljós­mynd/​Aðsend

„Þó maður sé orðinn full­orðinn þá er mamma alltaf mamma”

Krist­borg Bóel seg­ir að árið sem er að líða hafi verið eitt það erfiðasta.

„Þó svo ég hafi nú oft hlaupið á móti vindi gegn­um tíðina get ég full­yrt að líðandi ár sé, fyr­ir svo margra hluta sak­ir, það al-erfiðasta sem ég hef lifað. Það ein­hvern veg­inn röðuðust upp svo mörg þung og fyr­ir­ferðamik­il atriði á sama tíma og eitt af því var að horfa upp á móður mína missa heils­una og deyja svo frá okk­ur í vor. Þó maður sé orðinn full­orðinn þá er mamma alltaf mamma.

Ég sé það best þegar hún er far­in hve mik­ill fasti hún var í lífi mínu og barn­anna minna. Þó svo hún hafi búið í öðrum lands­hluta var hún alltaf bara sím­tal í burtu með öll góðu ráðin, skemmti­legu sög­urn­ar og alla ást­ina. Ég stend mig ennþá að því að ætla að hringja í hana þegar vel eða illa geng­ur og læt það bara stund­um eft­ir mér, þó ekki nema til þess að hlusta á mann­inn á hinum enda lín­unn­ar segja mér að það sé bara eng­inn ein­asti not­andi með þetta síma­núm­er,” seg­ir Krist­borg Bóel.

Kristborg ásamt börnum sínum og móður.
Krist­borg ásamt börn­um sín­um og móður. Ljós­mynd/​Aðsend

„Það er líka al­veg magnað hvað það er mikið vesen að deyja, eða öllu held­ur að vera nán­asti aðstand­andi þess sem fell­ur frá. Bara það, eft­ir að hafa verið með henni nótt og dag síðustu vik­una sem hún lifði og horfa svo á hana fjara út, þá verður maður að vera bú­inn að rigga upp jarðarför rúmri viku síðar. Það er rosa­lega bratt og í svo mörg horn að líta, en dag­ur­inn henn­ar var með öllu frá­bær, bjart­ur og fag­ur eins og hún. Eft­ir jarðarför tók við enda­laus papp­írs­vinna á papp­írs­vinnu ofan og sum­arið fór svo allt í að ganga frá og tæma húsið þar sem fjöl­skylda mín hef­ur búið í rúm 100 ár. Þetta var rosa­lega erfitt ferli þar sem sorg­in hellt­ist yfir mig, en samt var allt svo ljúfsárt. Það er bæði mik­ill lær­dóm­ur og feg­urð fólg­in í þess­um aðstæðum. Ég íhugaði í al­vöru á tíma­bili að stofna út­far­arþjón­ustu, fannst ég orðin svo fróð í þess­um geira.

Þá dýpkuðu tengsl inn­an fjöl­skyld­unn­ar, ég hef til að mynda aldrei varið eins mikl­um tíma með bræðrum mín­um, en þeir eru 11 og 13 árum eldri en ég og hafa alltaf verið sam­rýmd­ir, en um leið litið á mig sem litla skrípið í fjöl­skyld­unni. Eft­ir að hafa farið í gegn­um þetta ferðalag sam­an erum við nán­ari en nokkru sinni fyrr og fyr­ir það er ég ein­stak­lega þakk­lát.”

Aðspurð að því hvort móðir henn­ar hafi verið mik­ill áhrifa­vald­ur í sköp­un Krist­borg­ar Bó­el­ar í gegn­um tíðina seg­ir hún; „Ég hef svo sem aldrei leitt hug­ann að því. En, ég hef alltaf skrifað mjög mikið og notað þá leið oft þegar mér líður illa. Mamma var skemmti­leg­asti penni sem ég þekki, orðhepp­in með ein­dæm­um og mik­il sagnaþula. Sjálf hef ég aldrei lært rit­list en hef alltaf haft þetta í mér. Ég á einnig auðvelt með að koma fyr­ir mig orði og ætli hún hafi ekki verið áhrifa­vald­ur minn, bæði í ræðu og riti. Ég er alltaf með opið skjal í tölv­unni minni sem ber bara vinnu­heitið „uppistand“ þar sem ég safna sög­um úr lífi mínu sem ég ætla einn dag­inn að fara með á svið, ein­fald­lega af því að líf miðaldra sjálf­stæðra kvenna er einn risa­stór og fá­rán­leg­ur farsi. Ætli ég muni ekki til­einka mömmu það, held það sé ekki spurn­ing!”

„Ég veit að mömmusárið verður sér­stak­lega viðkvæmt”

Krist­borg Bóel er mikið jóla­barn og hlakk­ar mikið til að eyða jóla­hátíðinni í faðmi barn­anna sinna. Hún á fjög­ur börn á ald­urs­bil­inu 10 til 28 og býr ásamt yngsta syni sín­um í Hafnar­f­irði. Elstu börn­in henn­ar tvö eru bú­sett á höfuðborg­ar­svæðinu og næstyngsti son­ur henn­ar hóf í haust há­skóla­nám á fót­bolta­styrk í Banda­ríkj­un­um. Krist­borg Bóel tel­ur niður í dag­ana í hann komi heim í jóla­frí.

„Ég hef alltaf verið mikið jóla­barn og vil byrja snemma að gera kósí og að sama skapi losa mig við allt draslið, nema ljós­in, á milli jóla og ný­árs. Það er bara þessi fal­legi andi sem er svo sér­stak­ur, þessi innri barns­legi kær­leik­ur sem ég finn fyr­ir á þess­um árs­tíma. Ég veit að mömmusárið verður sér­stak­lega viðkvæmt núna á aðvent­unni, en ég veit líka og finn að hún mamma er með okk­ur alla daga.

Eins og flest­ir frá­skild­ir for­eldr­ar er ég með börn­in mín önn­ur hver jól, en sem áður sagði er liðið mitt að mestu orðið svo full­orðið að það ræður sér sjálft. En, ég er svo ein­stak­lega hepp­in að við ætl­um að vera öll sam­an heima hjá mér á aðfanga­dags­kvöld í ár, ég, börn­in mín fjög­ur, tvær tengda­dæt­ur og ég er viss um að mamma verður þar með okk­ur líka.“

Kristborg Bóel er mikil jólakona og hlakkar til að eyða …
Krist­borg Bóel er mik­il jóla­kona og hlakk­ar til að eyða jól­un­um með börn­um sín­um. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvernig eru jól­in hjá þér?

„Ég er upp­al­in aust­ur á landi og held í hefðina og elda rjúp­ur á aðfanga­dags­kvöld, sem bræður mín­ir eru von­andi bún­ir að veiða fyr­ir mig. Það eru þó ekki all­ir inn­an hóps­ins fyr­ir villi­bráð og ég mun finna eitt­hvað extra fínt með. Það er ótrú­lega hag­kvæmt að eiga svona mörg og stór börn, en ég hef nú út­vistað for­rétti og eft­ir­rétti til elstu barn­anna, virkja svo týnda son­inn frá Banda­ríkj­un­um í aðal­rétt­inn, læt yngsta barnið leggja á borð og geri sjálf ekki hand­tak. Mér finnst það alla­vega mjög gott plan.“

Ertu til­bú­in að taka á móti nýju ári?

„Ég veit ekki enn hvar ég verð á gaml­árs­kvöld, en al­veg 100% ein­hvers staðar í faðmi barna minna eða vina. Það er bara eitt sem ég veit mun fagna sem aldrei fyrr þegar klukk­an slær miðnætti og mun þá bjóða ár­inu 2024 að hoppa upp í rass­gatið á sér og taka allt sitt vesen og öll sín leiðindi með.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda