Hafdís Björg Kristjánsdóttir einkaþjálfari er komin með nýtt starf. Hún hóf störf sem tryggingaráðgjafi á einstaklingssviði hjá Tryggja á dögunum. Um er að ræða vátryggingamiðlun sem stofnuð var 1995 með það markmið að innleiða erlendar vátryggingar á markaðinn. Auk þess hefur Hafdís verið að þjóna í Gamla bíói á kvöldin og reka húðmeðferðarstofu í Faxafeni. Það er því ekki hægt að segja að þessi fjögurra barna móðir hafi ekki næg verkefni á sinni könnu.
Í desember slitnaði upp úr sambandi hennar og Kristjáns Einars Sigurbjörnssonar, Kleina, sem er kominn út í viðskipti með að selja notuð húsgögn. Þegar slitnaði upp úr sambandinu var parið nýflutt í einbýlishús í Garðabæ sem þau höfðu tekið á leigu. Í síðustu viku auglýsti Hafdís eftir íbúð til leigu fyrir sig og syni sína og tók það fram að hún vildi helst komast aftur til Reykjavíkur eftir stutt stopp í Garðabæ.
Lífið býður stöðugt upp á nýjar áskoranir og stundum gerist allt á sama tíma eins og Hafdís þekkir.
Smartland óskar Hafdísi góðs gengis í nýju vinnunni!