Skerðast bæturnar ef báturinn er seldur?

Eymundir Sveinn Einarsson endurskoðandi hjá Endurskoðun og ráðgjöf svarar spurningum …
Eymundir Sveinn Einarsson endurskoðandi hjá Endurskoðun og ráðgjöf svarar spurningum lesenda Smartlands.

Ey­mund­ur Sveinn Ein­ars­son end­ur­skoðandi hjá End­ur­skoðun & ráðgjöf svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hann spurn­ingu frá elli­líf­eyr­isþegum sem spyrj­ast fyr­ir um strand­veiðibát sinn. 

Sæll Ey­mund­ur!

Við hjón­in erum elli­líf­eyr­isþegar og eig­um strand­veiðibát á eig­in kenni­tölu. Okk­ur lang­ar að vita hvernig það er þegar kem­ur að sölu. Þar sem ekk­ert hvíl­ir á hon­um hvort við miss­um ekki rétt­in frá Trygg­inga­stofn­un það árið sem sal­an færi fram? Síðan er spurn­ing hvort við mætt­um láta börn­in fá hann sem fyr­ir­fram greidd­an arf og þá kæmi það ekki við bæt­urn­ar frá Trygg­inga­stofn­un eða hvað?

Með fyr­ir fram þökk, 

S

Sæl bæði

Það er lík­legt ef bók­fært verð báts­ins er und­ir markaðsverði að skatt­skyld­ur sölu­hagnaður mynd­ist við sölu hans. Sá sölu­hagnaður myndi lík­leg­ast skerða bæt­ur til ykk­ar á sölu­ári.

Ef and­virði söl­unn­ar yrði síðan ráðstafað á skyn­sam­leg­an hátt t.d. á sparnaðar­reiknieng­inga myndu fjár­magn­s­tekj­ur af þeim skerða bæt­ur til framtíðar. En hafa ber í huga að skatt­ur af fjár­magn­s­tekj­um er 22% meðan að bæt­ur frá Trygg­inga­stofn­un bera um 37% skatt.

Þannig að eins og hef­ur komið fram áður þá er hag­stæðara að hafa fjár­magn­s­tekj­ur með 22% skatti en að fá bæt­ur frá Trygg­inga­stofn­un sem bera 37% skatt.

Ef hugs­un­in er að nýta tæki­færið og greiða erf­ingj­um út fyr­ir­fram­greidd­an arf þá ber slík ráðstöf­un 10% erfðafjárskatt og mynd­ar ekki sölu­hagnað, enda er eng­inn að selja neitt.

Slík ráðstöf­un hef­ur ekki áhrif á bæt­ur ykk­ar frá Trygg­inga­stofn­un þar sem ekki er um sölu á neinu að ræða og þið eruð að láta frá ykk­ur eign­ir án end­ur­gjalds.


Kveðja,

Ey­mund­ur Sveinn Ein­ars­son end­ur­skoðandi. 

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Ey­mundi spurn­ingu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda