Gummi kíró aðstoðar íslenska áhrifavalda

Binni glee, Patrekur Jaime og Fanney Dóra eru komin á …
Binni glee, Patrekur Jaime og Fanney Dóra eru komin á skrá hjá Atelier Agency. Samsett mynd

Áhrifa­vald­arn­ir Binni Glee, Pat­rek­ur Jaime og Fann­ey Dóra hafa gengið til liðs við umboðsskrif­stof­una Atelier Agency, sem var sett á lagg­irn­ar nú í mars með það að mark­miði að byggja upp öfl­ugt sam­fé­lag áhrifa­valda og stuðla að fag­mennsku í brans­an­um.

Að stofn­un Atelier Agency stóðu þau Kristjana Björk Barðdal og Guðmund­ur Birk­ir Pálma­son, bet­ur þekkt­ur sem Gummi kíró.

Hug­mynd­in að stof­unni kviknaði eft­ir að Kristjana tók að sér umboðsmennsku fyr­ir Gumma kíró sum­arið 2024. Sam­starfið gekk vel og leiddi til þess að þau buðu áhrifa­völd­um á ókeyp­is nám­skeið vet­ur­inn 2025. Þar kom glögg­lega í ljós að mik­il þörf er á vett­vangi fyr­ir nýliða í brans­an­um – þar sem þau fá stuðning, stefnu og rými til að vaxa á eig­in for­send­um.

„Við leggj­um ekki bara áherslu á að sækja sam­störf – held­ur að styðja fólk í vexti, byggja upp sjálfs­traust og skapa efni sem end­ur­spegl­ar raun­veru­leg gildi og áhuga,“ seg­ir Kristjana. „Það get­ur verið ein­mana­legt að vera áhrifa­vald­ur, og með Atelier vilj­um við bjóða upp á bak­land og stuðning – sama hversu stórt eða lítið fylgið er.“

Binni Glee, Pat­rek­ur og Fann­ey eru meðal fremstu áhrifa­valda lands­ins og stofn­end­ur Atelier segj­ast ein­stak­lega stolt af því að fá þau í hóp­inn.

„Þau eru öll með ólíka miðla og ólík­an hóp fylgj­enda, en eiga það sam­eig­in­legt að þora að vera þau sjálf – og þau eru al­gjör­lega ein­stak­lega skemmti­leg,“ seg­ir Gummi kíró.

„Það verður að vera gam­an í vinn­unni – ann­ars verður þetta bara leiðin­legt,“ bæt­ir Kristjana við og bros­ir. 

„Við erum ótrú­lega þakk­lát fyr­ir mót­tök­urn­ar“

Fleiri áhrifa­vald­ar eru nú á skrá hjá Atelier Agency, þar á meðal May, sem hef­ur náð mik­illi út­breiðslu á TikT­ok, og Steffý, sem hef­ur verið áber­andi á sam­fé­lags­miðlasíðunni síðustu mánuði. Einnig má nefna Nadíu Sif og dans­ar­ann Rún­ar Bjarna.

Heild­ar­fjöldi áhrifa­valda hjá Atelier er nú 13 tals­ins, og eru fleiri vænt­an­leg­ir á næstu dög­um.

„Við erum ótrú­lega þakk­lát fyr­ir mót­tök­urn­ar – það hef­ur verið virki­lega gam­an að stíga inn á markaðinn,“ seg­ir Kristjana. „Fyr­ir­tæki hafa tekið vel á móti okk­ur og við finn­um að það er að fær­ast líf og fjör í leik­inn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda