Biggi lögga hættur í löggunni

Birgir Örn Guðjónsson er hættur í lögreglunni.
Birgir Örn Guðjónsson er hættur í lögreglunni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Birg­ir Örn Guðjóns­son, eða Biggi lögga eins og hann er jafn­an kallaður, er hætt­ur í lögg­unni eft­ir rúm­lega 20 ára starf. Hann hef­ur tekið við starfi sem deild­ar­stjóri hjá Barna- og fjöl­skyldu­stofu. 

„Fyr­ir rúm­um tutt­ugu árum tók ég skyndi­ákvörðun að sækja um í lög­reglu­skól­ann. Ég hafði aldrei haft þann draum um að ger­ast lögga og það var í raun al­gjör­lega úr mín­um karakt­er, að mér fannst, að fara í slíkt starf. Ég heillaðist engu að síður fljótt af starf­inu og þá sér­stak­lega þeirri hlið að fá tæki­færi að hjálpa og hafa áhrif á líf fólks, oft á þeirra erfiðustu tím­um í líf­inu. Ég hef alltaf verið mjög for­varn­ar­miðaður í hugs­un og starfið mitt í lögg­unni hef­ur litaðist mjög af því.

Ég hef meðal ann­ars tekið þátt í allskon­ar for­varn­ar­verk­efn­um, bæði hér­lend­is og er­lend­is og meðal ann­ars komið að því að gera verklag og þjálfa lög­reglu­menn víðsveg­ar um Evr­ópu. Upp á síðkastið hef ég svo verið rann­sókn­ar­lög­reglumaður í miðlægri kyn­ferðis­brota­deild. Ástæðan fyr­ir því að ég valdi þá deild var einnig for­varn­ar­legs eðlis vegna þess hversu gíf­ur­leg áhrif kyn­ferðis­brot hafa oft á líf fólks og framtíð,“ seg­ir Biggi lögga á Face­book-síðu sinni.

„Mér hef­ur boðist staða utan lög­regl­unn­ar og hef ég nú þegar hafið störf. Þetta er spenn­andi starf þar sem ég er sann­færður um að reynsla mín komi að gagni auk þess sem það fell­ur al­gjör­lega að minni hug­sjón. Ég hef verið ráðinn sem deild­ar­stjóri hjá Barna og fjöl­skyldu­stofu á nýju stuðnings­heim­ili sem við mun­um opna á næstu mánuðum. Þetta er ótrú­lega spenn­andi starf í gíf­ur­lega mik­il­væg­um mála­flokki sem hjarta mitt hef­ur alla tíð slegið fyr­ir. Sem bet­ur fer er margt í gangi í mála­flokkn­um, enda þörf­in mik­il, og spenn­andi tím­ar framund­an. Það eru því bæði for­rétt­indi og áskor­un að fá að taka þátt í þeirri upp­bygg­ingu.

Það er pínu skrýtið að fara í annað starf eft­ir all­an þenn­an tíma í lög­regl­unni þegar sjálfið manns og meira að segja nafnið er svona tengt starf­inu, en ég er sjúk­lega spennt­ur fyr­ir kom­andi tím­um. Ég er enda­laust þakk­lát­ur fyr­ir allt það frá­bæra fólk sem ég hef unnið með í lög­regl­unni og ég hlakka til áfram­hald­andi sam­starfs. Það er nefni­lega eng­in stofn­un ey­land í þess­um mála­flokki. Far­sælt sam­starf er lyk­ill,“ seg­ir Biggi.

Smart­land ósk­ar hon­um góðs geng­is!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda