Katrín Jakobsdóttir stofnar fyrirtæki

Katrín Jakobsdóttir hefur stofnað fyrirtæki.
Katrín Jakobsdóttir hefur stofnað fyrirtæki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Katrín Jak­obs­dótt­ir fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráðherra, for­setafram­bjóðandi og rit­höf­und­ur hef­ur í nægu að snú­ast þessa dag­ana þrátt fyr­ir að vera ekki dag­leg­ur gest­ur í frétt­um. Nú hef­ur hún stofnað fyr­ir­tæki til að halda utan um sín verk­efni. Katrín var formaður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráðherra þegar hún fór í fram­boð til for­seta Íslands fyr­ir ári síðan þegar Halla Tóm­as­dótt­ir var kjör­in. 

Hvað er Katrín að fara að gera? 

Það er spurn­ing sem hef­ur brunnið á lands­mönn­um en nú virðist vera kom­in mynd utan um framtíðar­verk­efni Katrín­ar því hún hef­ur stofnað fyr­ir­tækið Njólu­baug slf. Til­gang­ur fé­lags­ins er fræðslu­starf­semi, kennsla, fyr­ir­lestr­ar, fund­ar­stjórn, ritstörf og ráðgjöf. Fé­lagið er sjálf­stæður skattaðili. Gunn­ar Sig­valda­son, eig­inmaður Katrín­ar, er varamaður í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. 

Katrín skrifaði glæpa­sög­una Reykja­vík með Ragn­ari Jónas­syni rit­höf­undi og hlaut hún lof bæði hér­lend­is og er­lend­is þegar hún kom út. 

Smart­land ósk­ar Katrínu til ham­ingju með Njólu­baug! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda