„Ég er náttúrulega litla systir tveggja gaura og ég var bara mjög vön að vera í kringum svona töffara. Mér fannst þetta bara gaman. Þetta eru náttúrlega algjör ljúfmenni. Þetta eru mjög góðir strákar og komu alltaf vel fram við mig og pössuðu upp á mig,“ segir hin 37 ára Rebekka Katrínardóttir, tónlistar- og viðskiptakona, um hljómsveitarmeðlimi Merzedes Club, þá Egil Einarsson (Gillz), Garðar Ómarsson (Gassi), Jóhann Ólaf Schröder (partý-Hans) og Hlyn Áskelsson (Ceres 4).
„Sumir átta sig kannski ekki á því en Merzedes Club var gjörningur hjá okkur öllum. Ég fór bara í hlutverk, einhvers konar „alter-ego“ og varð Merzedes og þetta var klúbburinn minn.“
Hljómsveitin var stofnuð 2007 og var Rebekka söngkona sveitarinnar. Eins og einhverjir muna tóku þau þátt í íslensku undankeppni Eurovision árið 2008 og höfnuðu í öðru sæti. Eftir nokkuð mikla keyrslu í um tvö ár lagði hljómsveitin upp laupana.
„Ég fékk nóg af sviðsljósinu enda var alltaf eitthvað í gangi og tónleikar í hverri viku.“ Stefna hljómsveitarinnar var að fara til Los Angeles og reyna fyrir sér í tónlistar- og kvikmyndaborginni miklu en Rebekka segist hafa viljað stoppa þarna. „Ég var bara tvítug og mig langaði ekki að fara út í heim með þetta. Þetta var orðið gott.“
Aðdáendur Merzedes Club geta þó tekið gleðina á ný því hljómsveitin kemur saman í Laugardalshöll komandi laugardag á dúndurtónleikum í tilefni fermingarafmælis FM95BLÖ. Ásamt sveitinni munu fleiri landsþekktir tónlistarmenn stíga á svið, þ.á.m Herra Hnetusmjör, Haffi Haff, Jóhanna Guðrún og Sverrir Bergmann.
„Ég þurfti alveg að hugsa þetta, síðan sagði ég já, svo sagði ég nei,“ segir Rebekka um hugleiðingar sínar þegar hún var beðin um að stíga aftur á stokk með sveitinni. Egill sýndi efasemdum hennar fullan skilning en var þó ekki tilbúinn til að sleppa henni svo auðveldlega. Hún sagði á endanum „já“.
„Við áttum gott samtal og hann sýndi mér fram á hvað þetta yrði skemmtilegt. Ég er mjög fegin að hann gafst ekki upp því þetta verður geggjað.”
Rebekka er búsett á Hvolsvelli ásamt eiginmanni sínum Magnúsi Haraldssyni. Saman eiga þau Elísu Katrínu, sem er tveggja ára, Daníel Ágúst, tíu ára, og Kristófer Örn, 12 ára. Fyrir átti Magnús soninn Einar, sem er 24 ára.
Daglega lífið á Hvolsvelli er hlaðið verkefnum en Rebekka og Magnús eru með tvö fyrirtæki, Rebekka rekur Sveitabúðina Unu og Magnús er með akstursþjónustu fyrir ferðamenn.
„Hún [mamma] hefur alltaf hjálpaðu okkur rosalega mikið með krakkana sem er náttúrulega ómetanlegt,“ segir Rebekka um móður sína, Katrínu J. Óskarsdóttur, sem einnig er búsett á Hvolsvelli. „Það eru allir að vinna saman, sem er ótrúlega gott.“
Magnús og Rebekka fengu varanlegt forræði yfir Kristófer sem hefur búið hjá þeim síðan hann var tveggja ára, en faðir hans er eldri bróðir Rebekku, rithöfundurinn og tónlistarmaðurinn Ívar Örn Katrínarson. Spurð um hvernig það kom til að drengurinn var settur í umsjá þeirra Magnúsar svarar Rebekka:
„Ég og Maggi vorum guðforeldrar hans og áttum mjög sterka tengingu við hann. Þegar barnaverndanefnd hringdi í mig þá var hann hjá okkur. Það átti að taka hann,“ segir hún og klökknar við að rifja upp aðdragandann.
Þegar hún sagði Magnúsi að taka ætti drenginn, sagði hann hreint og beint „nei“, drengurinn yrði hjá þeim enda átti hann þegar stóran hluta af hjarta þeirra.
„Þetta er bara raunveruleikinn,“ segir Rebekka. „Hann er einstakur strákur, með fallega sál og gott hjarta.“ Hún lýsir viðbrigðunum að fá tveggja ára drenginn inn á heimilið verandi með sjö mánaða barn fyrir. Það hafi verið krefjandi í fyrstu en tíminn hafi unnið með þeim.
„Hann langaði bara heim og skildi ekki af hverju hann fékk það ekki. Hann var ósáttur og grét mikið og þetta var rosalega erfitt tímabil en við gáfumst ekki upp. Maggi var einstakur í gegnum allt saman og hefur tekið honum sem sínum.“
Rebekka segir að það hafi verið í gegnum sambönd eiginmannsins sem hún varð hluti af hljómsveitinni Merzedes Club, enda hann tónlistarmaður sjálfur og var í hljómsveitinni Atingere og síðar The End. En hvernig kynntist parið sem hefur gengið í gegnum súrt og sætt síðastliðið 21 ár?
„Við bjuggum ská á móti hvort öðru og vissum ekkert af því. Eitt kvöldið var ég að labba heim og hann á leið niður í bæ og svo var bara kallað: Hey þú. Ég sneri mér við og þá kom bara „pikköpplínan“: „Sjitt“ þú ert svo falleg að ég veit ekki hvað ég á að segja.“ Rebekka brosir við minningunni.
Hún segir að Magnús hafi gert aðra tilraun, rétt út höndina og kynnt sig með nafni. Kvöldið endaði með drykk á bar.
„Það tók smá tíma fyrir hann að landa mér.“ Rebekka segir að eflaust hafi það stoppað Magnús hve ung hún væri. Hún var í námi í söngskóla Reykjavíkur og í Menntaskólanum við Sund og bjó hjá sópransöngkonunni Guðmundu Elíasdóttur sem kenndi henni einnig söng.
„Við Maggi urðum vinir en ég var ekki alveg að fatta hvað hann var hrifinn af mér. Það tók smá tíma fyrir mig að kveikja á því.“
Með tímanum tók ástin völdin og hafa þau verið óaðskiljanleg öll þessi ár. Magnús og Rebekka bjuggu saman í miðbæ Reykjavíkur um tíma, fluttu svo í sumarhús við Hafravatn til að ná meiri ró í lífið – eftir að Rebekka hætti í Merzedes Club – fluttu svo til Svíþjóðar og enduðu á Hvolsvelli.
Rebekka segir samband þeirra Magnúsar einkennast af mikilli vináttu. „Við erum ótrúlega lík og eigum gott skap saman. Hann er náttúrulega skemmtilegasta manneskja í veröldinni.“
Það hefur gengið á ýmsu á 21 ári, líkt og Rebekka útskýrir, í barnauppeldi og með rekstri tveggja fyrirtækja. Oft og tíðum mjög erfitt, að hennar sögn. „Við höfum alveg farið dimma dali í okkar sambandi en það er oft í gegnum erfiðleika sem maður lærir mest. Við erum rosalega sterk í dag og ofboðslega glöð með lífið sem við eigum. Ég er trúuð og legg hlutina í Guðs hendur, það er mín reynsla að það er séð um mig.“
Verkefnin halda áfram að vaxa en eftir að hafa rekið sveitabúðina Unu í átta ár eiga þau á hættu að missa reksturinn því hugsanlega eigi að rífa húsnæði verslunarinnar í september vegna deiliskipulags.
„Búðin gengur vel og fólk er mjög ánægt með hana. Við erum að setja fram þá hugmynd að byggja kaffihús og sal um Njálurefilinn, sem er 90 metra langur hördúkur með ísaumaðri Njálssögu. Hvolsvöllur er bara að vaxa og það er mikil þörf á þessu. Við viljum hafa þetta fallegt og gera þetta vel. Nú er þetta allt á borði hjá sveitastjórn og við vonumst til að fá þetta í gegn,“ segir Rebekka.
„Svo er tónlistin að kvikna aftur í hjarta mínu.“
Tónlistarhæfileikana er að finna víða umhverfis Rebekku. Ívar bróðir Rebekku, sem var í hljómsveitinni Dr. Mister & Mr. Handsome ásamt Guðna Rúnari Gunnarssyni, vinnur nú að „vocal house“-tónlist með Haraldi Haraldssyni, undir nafninu Ethernal.
„Eftir að bróðir minn flutti aftur til Hvolsvallar var bara tímaspursmál hvenær við færum að gera eitthvað saman,“ segir Rebekka en hún syngur í nokkrum lögum Ethernal.
Það er í nógu að snúast enda stutt í tónleika Merzedes Club. Hvað æfingar varðar segir Rebekka: „Þetta er eins og að læra að hjóla, maður gleymi því ekki.“ Hún hafi hlustað á lögin aftur eftir öll þessi ár og mundi alla textana.
„Ég fór á sviðsæfingu um daginn með Haffa Haff og Þórdísi Schram mágkonu minni og kennara í Danslistarskóla JSB og það var mjög fyndið hvernig ég datt bara beint í karakter,“ segir Rebekka, en Þórdís hjálpaði henni á sínum tíma með sviðsframkomu. „Við erum náttúrulega að hittast eftir tæplega 20 ár með þetta „come-back“ og erum öll aðrar manneskjur í dag, en við munum nú samt sem áður taka þetta alla leið og lofum geggjuðu „show-i“!“
Fyrir tónleikana segist Rebekka hafa fengið sérhannaðan búning frá Söru Lind Pálsdóttur eiganda tískuverslunarinnar Júník ásamt fleiri flíkum úr versluninni.
Það gæti orðið svo að eitthvert framhald verði á endurkomu Merzedes Club en orðið á götunni er að hljómsveitin muni stíga á svið á Þjóðhátíð.
Hvað framhaldið varðar, lífið og tilveruna segir Rebekka: „Ég er rosalega þakklát með lífið mitt og er mjög sátt með það sem ég á. Draumurinn er að fara að gera tónlist aftur en þetta er allt í guðs höndum og framtíðin er björt.“