Í mjög svo sveiflukenndu alþjóðaumhverfi hefur traust orðið ein af mikilvægustu stoðum alþjóðaviðskipta, hvort sem um ræðir viðskipti á milli landa eða samskipti við viðskiptavini og birgja. Ef traustið er ekki til staðar geta þau viðskipti og viðskiptasambönd sem mestu hafa lofað brugðist vegna efasemda, mistúlkunar og átaka.
Þetta segir Dr. Nigel R. Bairstow, rannsakandi og fræðimaður við Tækniháskólann í Sidney, Ástralíu.
Traust einfaldar flóknari viðskipti, dregur úr áhættu og óvissu í viðskiptum og gerir fyrirtækjum og löndum kleift að taka þátt í samstarfsverkefnum, deila viðkvæmum upplýsingum og verja auðlindir með meiri trúverðugleika. Þegar traust er til staðar verða aðilar frekar tilbúnir til að taka strategíska áhættu, prófa nýsköpun og ýta undir langtímaskuldbindingu.
„Til að mynda ef traustur samstarfsaðili stendur ekki við loforð vegna ófyrirséðra aðstæðna, getur viðskiptasambandið samt sem áður haldist óbreytt vegna þess að traustið leyfir hlutaðeigandi að njóta vafans.“
Traust í viðskiptasamböndum er margþætt en fræðimenn skipta því í þrjá flokka eftir hvaða spurningum það svarar: 1) Geta þeir gert það sem þeir segjast munu gera? 2) Fara þeir eftir siðferðisreglum og virða skuldbindingar? 3) Bera þeir hag okkar fyrir brjósti?
Traust má ekki líta á sem stöðuga auðlind sem haldist óbreytt. Það er dýnamískur þáttur sem felur í sér áframhaldandi breytileika í tengslum við aðstæður og umhverfið. Traust krefst stöðugs viðhalds.