Hvað er best fyrir leigubílstjóra að gera?

Eymundir Sveinn Einarsson endurskoðandi hjá Endurskoðun og ráðgjöf svarar spurningum …
Eymundir Sveinn Einarsson endurskoðandi hjá Endurskoðun og ráðgjöf svarar spurningum lesenda Smartlands.

Ey­mund­ur Sveinn Ein­ars­son end­ur­skoðandi hjá End­ur­skoðun & ráðgjöf svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hann spurn­ingu frá manni sem velt­ir fyr­ir sér rekstri á leigu­bíl­um. 

Sæll vertu.

Er væn­legra að vera með ehf. sem ut­an­um­hald á rekstri leigu­bíla­akst­urs, frek­ar en að nota sína eig­in kenni­tölu? Og er mik­ill mun­ur á ehf. í rekstri um­fram slf.?

Kveðja, 

Gummi


Sæll Dræ­ver,

Stutta svarið er nei. Rekstr­ar­lega breyt­ir engu sama hvaða rekstr­ar­form er notað. Sömu regl­ur um bók­hald, tekju­skrán­ingu og kostnaðarfærsl­ur gilda um öll rekstr­ar­form. Skatt­lagn­ing á hagnaði (um­fram reiknað end­ur­gjald / laun) er í kring­um 38% og miðað við mína reynslu er ólík­legt að afrakst­ur af rekstri leigu­bíla­akst­urs skili hagnaði upp í hæsta þrep tekju­skatts hjá ein­stak­lingi, til þess þyrfti að lengja sól­ar­hring­inn veru­lega.

Rekstr­ar­lega er lít­ill mis­mun­ur á milli slf. og ehf., nema að hlut­hafi hjá einka­hluta­fé­lagi ber svo­kallaða tak­markaða ábyrgð á skuld­bind­ing­um fé­lag­ins ólíkt sam­lagsaðila hjá sam­lags­fé­lagi sem ber fulla og ótak­markaða ábyrgð á skuld­bind­ing­um fé­lags­ins. Annað sem ber að nefna er að það er ákveðinn ein­fald­leiki í sam­lags­fé­lög­um, sam­lagsaðilar geta tekið út hagnað fé­lags­ins jafnóðum, enda greiðir fé­lagið tekju­skatt­inn af hon­um á meðan hlut­haf­ar þurfa að bíða ákvörðun hlut­hafa­fund­ar, (fund­ur sem þú boðar og held­ur með sjálf­um þér), ári eft­ir að viðkom­andi rekstr­ar­ári lýk­ur hvort heim­ild til arðgreiðslu sé til staðar og hvort veltu­fjárstaða fé­lags­ins leyfi arðgreiðslur.

Það eru fleiri atriði sem geta komið til álita um ákvörðun um val á rekstr­ar­formi og má þar nefna ef rekst­ur­inn er á hönd­um fleiri en eins aðila, skuld­setn­ing, rekstr­aráhætta og fleira.


Kveðja,

Ey­mund­ur Sveinn Ein­ars­son end­ur­skoðandi. 

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Ey­mundi spurn­ingu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda