Meghan Markle sökuð um ritstuld

Meghan Markle verður beðin um að fjarlægja pálmatrésmyndina úr vörumerkinu …
Meghan Markle verður beðin um að fjarlægja pálmatrésmyndina úr vörumerkinu As Ever. SUZANNE CORDEIRO / AFP

Francisca Mora Veny, sveit­ar­stjóri Por­r­eres, seg­ir Meg­h­an Markle, her­togaynj­una af Sus­sex og eig­in­konu Harry prins, hafi stolið út­liti skjalda­merk­is Por­r­eres fyr­ir lífstíls­merki sitt As Ever.

Ásak­an­irn­ar komu fram eft­ir að Markle op­in­beraði end­ur­hannað vörumerki sitt á sam­fé­lags­miðlum í vik­unni og lét í ljós hve spennt hún væri vegna þess.

Hluti vörumerk­is­ins er ein­föld mynd af pálma­tré, ásamt tveim­ur fugl­um, sem er slá­andi líkt sögu­legu skjald­ar­merki Por­r­eres.

Sláandi líkar myndirnar tvær.
Slá­andi lík­ar mynd­irn­ar tvær. Skjá­skot/​Youtu­be

Spænska skjald­ar­merkið, sem talið er vera meira en 600 ára gam­alt, sýn­ir sömu mynd af pálma­tré og tveim­ur fugl­um. Þá sagði Mora í viðtali við The Sun að hún myndi biðja Markle um að fjar­lægja mynd­ina úr vörumerk­inu. 

„Eini mun­ur­inn á lógó­inu þeirra og skjald­ar­merk­inu okk­ar er að vörumerkið sýn­ir tvo kóli­brí­fugla en á skjald­ar­merk­inu okk­ar eru annað hvort svöl­ur eða dúf­ur.“

Þá bend­ir Mora á að mynd­in á vefsíðu fyr­ir­tæk­is­ins sé einnig frá Mall­orca og vís­ar til þess að inn­blást­ur Markle sé auðsjá­an­lega feng­inn frá eyj­unni.

Stand­ard

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda