Heilsusálfræðingurinn og samfélagsmiðlastjarnan Ragnhildur Þórðardóttir, eða Raggi nagli eins og hún er gjarnan kölluð, hefur verið valin til þess að gegna hlutverki fjallkonu á þjóðhátíðardegi Íslendinga í Danmörku þann 14. júní næstkomandi.
Greint var frá þessum gleðitíðindum á Facebook-síðunni Íslendingar í Kaupmannahöfn í gærdag.
Ragnhildur hefur verið búsett ásamt eiginmanni sínum, Snorra Steini Þórðarsyni arkitekt, í Danmörku síðastliðin 16 ár. Hún sagði stuttlega frá flutningunum í viðtali sem birtist á ferðavef mbl.is fyrr á árinu.
„Fjallkonan okkar í ár er engin önnur en Ragga Nagli, eða Ragnhildur Þórðardóttir eins og hún heitir fullu nafni. Hún er Íslendingum að góðu kunn sem kraftmikill fyrirlesari og áhrifavaldur.
Ragga er menntaður sálfræðingur með áherslu á heilsusálfræði, auk þess að vera einkaþjálfari og mikill matgæðingur. Hún hefur í gegnum árin staðið fyrir fjölda fyrirlestra um líkamsmynd, sjálfsstyrkingu og jákvætt hugarfar.🙌
Ragga er þekkt fyrir einlægan og beinskeyttan stíl, með húmor, innsæi og mikla nærveru og hefur hvatt fjölda fólks til að standa með sjálfu sér. Hún er einnig mjög virk á samfélagsmiðlum, þar sem hún miðlar visku og hvatningu til fjölmargra fylgjenda.
Við erum afar stolt að fá hana sem fjallkonu á Þjóðhátíðardegi Íslendinga í Danmörku og hlökkum til að heyra hennar innblásnu orð við Amagerströnd þann 14. júní,” segir í tilkynningunni.