Dreymir um að verða 75 kg

Guðrún Ósk Leifsdóttir er 140 kg.
Guðrún Ósk Leifsdóttir er 140 kg.

Guðrún Ósk Leifs­dótt­ir er einn af kepp­end­un­um í ann­arri seríu af Big­gest Loser Ísland. Hún er 20 ára og starfar þessa stund­ina á elli­heim­ili. Hún er 140 kg.

Hef­ur þú alltaf verið svona þung? Já, frek­ar þybb­in.

Hef­ur þú fundið fyr­ir for­dóm­um vegna þyngd­ar þinn­ar? Já, því miður þá eru mjög mikl­ir for­dóm­ar gagn­vart þyngd hér á landi. Ég finn fyr­ir þeim tals­vert.

Hvað var erfiðast í Big­gest Loser-ferl­inu? Að tala um fortíðina og af hverju maður er kom­inn í þessa stöðu, hvað það var sem gerðist.

Hvað viltu segja við þá sem þrá að létt­ast en kom­ast ekki úr spor­un­um? Að fá hjálp og koma sér af stað, með réttu hjálp­inni ger­ist það. Líka þarf að setja sér mark­mið og spyrja sig hvar maður vilji vera eft­ir x lang­an tíma, hversu þung/þ​ung­ur? Hug­ar­farið verður líka að vera til staðar.

Hef­ur þyngd­in gert það að verk­um að þú hef­ur ekki látið drauma þína ræt­ast? Nei og já, maður er nátt­úr­lega alltaf að pæla í því hvað maður get­ur gert vegna þyngd­ar, t.d. hvort maður passi í sætið í flug­vél­inni. Maður get­ur nefni­lega ekki gert allt vegna þyngd­ar.

Hvað mynd­ir þú vilja vera þung? 75 kg. Þá mundi ég vera mjög ham­ingju­söm.

Hvað veit­ir þér mesta lífs­fyll­ingu? Að vera lif­andi, geta hreyft mig og tekið þátt í líf­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda