Unnur Elva Arnardóttir er búin að vera óstöðvandi síðustu sjö vikurnar og hún er ekki hætt. Hún ætlar að halda áfram. Heilsuferðalag Smartlands Mörtu Maríu og Hreyfingar hefur aldeilis slegið í gegn en þar hafa auk Unnar Elvu fjórar aðrar tekið þátt en það eru þær Sigrún Lóa Sigurgeirsdóttir, Sigríður Ásta Hilmarsdóttir, Elín Lilja Ragnarsdóttir og Kristín J. Rögnvaldsdóttir.