Mikil kyrrseta jafnvel hættulegri en reykingar

Ágústa Johnson.
Ágústa Johnson.

„Hve mikið hreyf­ir þú þig á dag? Flest­ir sem fara reglu­lega í rækt­ina myndu segja að þeir væru mjög virk­ir því þeir æfa í hverri viku, jafn­vel dag­lega.  En raun­in gæti verið sú að þeir lifa í sjálfs­blekk­ingu, eru í raun „sófa­kart­öfl­ur“.  Það að sitja í meira en 6 klst á dag er tengt við aukn­ar lík­ur á dauðsfalli jafn­vel þó að klukku­stund­ar heim­sókn­ir í rækt­ina séu dag­legt brauð.  Skv ný­leg­um rann­sókn­um er áhætt­an af langri dag­legri kyrr­setu svo mik­il að slíkt gæti verið hættu­legra heils­unni en reyk­ing­ar,“ seg­ir Ágústa John­son fram­kvæmda­stjóri Hreyf­ing­ar í sín­um nýj­asta pistli:

Dæmi­gerður lífs­stíll fólks á öll­um aldri í dag er að sitja í allt að 9 klst á sól­ar­hring. Fyr­ir fram­an tölvu­skjá­inn, sím­ann, sjón­varpið, í bíl, o.s.frv.  Flest­ir telja það í góðu lagi að sitja all­an dag­inn fari þeir í rækt­ina í klukku­stund á dag.  Ef dag­ur­inn þinn hefst á kraft­mik­illi æf­ingu með hlaup­um, lóðalyft­um og til­heyr­andi svita gæt­irðu litið svo á að þér væri vel stætt á að sitja á rass­in­um það sem eft­ir lif­ir dags.  En staðreynd­in er sú að hversu erfið sem 60 mín æf­ing­in þín er og hve mikið þú tek­ur á því og svitn­ar, þá bæt­ir það ekki upp 9 klst af sófa­kart­öflu lífs­stíl.  Þú þarft ein­fald­lega að standa upp reglu­lega og hreyfa þig.

Hvers­vegna er hættu­legt að sitja lengi?

Við það að sitja í klukku­stund eða leng­ur án þess að hreyfa þig, slekk­ur lík­am­inn á hvat­bera sem nefn­ist lipo­pró­tín lipa­se.  Venju­lega tek­ur hann upp fitu sem fer í hringrás í blóðstreym­inu.  Þegar lipo­pró­tínið starfar ekki sit­ur blóðfit­an leng­ur í blóðrás­inni sem skap­ar aðstæður sem eru ekki ákjós­an­leg­ar fyr­ir hjartað.  Auk þess að þegar þú hreyf­ir þig ekki reglu­lega hæg­ir á öllu kerf­inu s.s. efna­skipt­um ofl. og lík­ami þinn fer í einskon­ar dvala.  Það er aug­ljóst að slíkt er hvorki heilsu­sam­legt né mitti­svænt.

Stattu upp fyr­ir sjálf­um þér!

Ef þú starfar á skrif­stofu ætt­ir þú að koma þér upp appi í sím­an­um þínum eða tölv­unni sem minn­ir þig á að standa upp á 30-40 mín fresti og ganga um í 2 mín­út­ur.  Góðu frétt­irn­ar eru að rann­sókn­ir hafa sýnt fram á að aðeins 2ja mín­útna ganga á hverri klukku­stund dug­ar til að draga úr al­var­legri áhættu sem kyrr­seta skap­ar.

Ef það finn­ast stig­ar á þínum vinnustað er kjörið að hlaupa þá upp og niður við hvert tæki­færi og jafn­vel nota 2ja mín­útna hreyf­ing­ar hléið þitt til að hlaupa upp stig­ann og fá púls­inn aðeins upp á við.  Stutt ganga ut­an­dyra er vissu­lega kjör­in leið til að fá aukið súr­efni, hreinsa hug­ann og end­ur­nýja ork­una.

Að lok­um

Ljóst er skv. rann­sókn­um, að eins nauðsyn­legt það er að stunda reglu­lega styrkt­arþjálf­un og þolæf­ing­ar fyr­ir hjarta- og æðakerfið, þá er ekki nóg að taka aðeins klukku­stund 3x-5x í viku í æf­ing­arn­ar.  Kyrr­set­an all­ar hinar klukku­stund­irn­ar er bók­staf­lega að drepa okk­ur.  Hvort sem þú ert í vinn­unni eða heima ætt­ir þú að forðast að sitja leng­ur en klukku­stund í einu.  Það eru þess­ar lyk­il 2 mín­út­ur af léttri hreyf­ingu eða göngu sem þú þarft á hverri klukku­stund og gera hrein­lega gæfumun­inn.  Það ætti að vera lítið mál, en gæti haft mik­il áhrif á heilsu þína til framtíðar. Aðal atriðið er að muna eft­ir því að standa á fæt­ur og þar koma áminn­ing­ar öpp sterk inn.  Stand-up appið er t.d. stór­sniðugt og hægt að stilla það eft­ir þörf­um hvers og eins.

Spáðu í það að ef þú æfir í klukku­stund á dag og sef­ur í 8 tíma þá eru 15 tím­ar eft­ir af sól­ar­hringn­um.  Ef þú eyðir þeim meira og minna sitj­andi ertu að skaða heilsu þína.  Það er margt ein­falt sem þú get­ur gert til að auka hreyf­ing­una þína ef þú aðeins verður meðvituð/​aður um það.  Eitt gott ráð er að fá sér skrefa­mæli, Fit­bit eða ann­an sem tel­ur öll skref­in þín, það gæti reynst þér góð hvatn­ing og minn­ir þig á að hvert skref er þér til góðs!

Ef þú vilt lesa meira um hvaða þýðingu kyrr­seta hef­ur á heils­una þína smelltu hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda