Ódýr matur sem næringarfræðingar elska

Perur eru hollar, góðar og auðvelt er að grípa í …
Perur eru hollar, góðar og auðvelt er að grípa í þær. Thinkstock / Getty Images

Marg­ir segj­ast ekki hafa ráð á því að borða holl­an og góðan mat, enda sé hann bara svo skelfi­lega dýr. Það þarf þó ekki að vera kostnaðarsamt að borða fjöl­breytta og holla fæðu ef maður hugs­ar aðeins út fyr­ir kass­ann.

Niðursoðinn lax
Lax hef­ur að geyma bráðholl­ar Omega 3-fitu­sýr­ur sem meðal ann­ars eru nauðsyn­leg­ar fyr­ir hjartað og heil­ann.

Hafr­ar
Hafra­graut­ur­inn stend­ur alltaf fyr­ir sínu, enda ódýr, holl­ur og góður. Síðan má leika sér enda­laust með hann.

Tofu
Tofu er jafn­an afar ódýrt, en það inni­held­ur mikið af prótein­um, kalki og kalí­um.

Svepp­ir
Svepp­ir eru holl­ir, og afar ljúf­feng­ir. Þeir inni­halda auk þess fullt af góðgæti líkt og andoxun­ar­efni og D-víta­mín.

Per­ur
Ein meðal­stór pera inni­held­ur um það bil 100 hita­ein­ing­ar, sex grömm af trefj­um og fullt af C-víta­míni.

Niðursoðnir tóm­at­ar
Þegar kem­ur að græn­meti og ávöxt­um er þumalputta­regl­an sú að því fersk­ar, því betra. Þetta á þó ekki við um tóm­ata, en lík­am­inn á auðveld­ara með að vinna lycopene úr þeim þegar búið er að elda þá.

Egg
Egg inni­halda mikið prótein, auk þess sem í rauðunni er að finna lutein og zeax­ant­hin sem eru holl fyr­ir aug­un.

Frek­ari upp­lýs­ing­ar um ódýr­ar, en sér­lega holl­ar, fæðuteg­und­ir má finna á vef Preventi­on.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda