Þessi gómsæta uppskrift að vegan epla- og kanilmúffum er bæði einföld og þægileg. Uppskriftina má finna á heimasíðunni HouseVegan en þar er að finna marga girnilega vegan rétti. Úr einni uppskrift koma um það bil tólf múffur.
Kurl ofan á múffurnar
- 3 matskeiðar hveiti
- 3 matskeiðar sykur
- 1 matskeið púðursykur
- ¼ teskeið kanill
- 2 matskeiðar vegan smjör
Innihald
- 1 ¼ bolli hveiti
- 1 teskeið kanill
- 1 teskeið lyftiduft
- ¾ teskeið matarsódi
- ¼ teskeið salt
- ¼ bolli síróp
- 6 matskeiðar púðursykur
- ½ bolli brætt vegan smjör
- ½ bolli eplasósa
- 1 ¼ teskeið vanilludropar
- 2 matskeiðar haframjólk
Leiðbeiningar
- Hitaðu ofninn upp í 175°C og settu olíu í múffuformin.
- Til þess að búa til kurlið ofan á múffurnar er best að byrja á því að blanda saman hveitinu, hvíta sykrinum, púðursykrinum og kanilnum. Notaðu síðan fingurna og blandaðu vegan smjörinu við þurrblönduna.
- Næst tekur þú aðra skál og hrærir saman hveiti, kanil, lyftidufti, matarsóda og salti.
- Því næst tekur þú aðra minni skál og blandar í hana hlynsírópi, púðursykri, vegan smjöri, eplasósunni, vanilludropum og haframjólk.
- Helltu blautu blöndunni í nr. 4 yfir þurru blönduna í nr. 3 og blandaðu þeim saman.
- Helltu blöndunni í múffuformin og settu kurlið úr nr. 1 yfir hverja og eina.
- Bakið í 15–17 mínútur.
Uppskriftin er bæði einföld og þægileg.
Ljósmynd/Skjáskot af HouseVegan