Í afneitun um átröskun í ellefu ár

Árni Grétar Jóhannesson er þekktur tónlistarmaður undir nafninu Futuregrapher.
Árni Grétar Jóhannesson er þekktur tónlistarmaður undir nafninu Futuregrapher. Ljósmynd/Ómar Sverrisson

Árni Grét­ar Jó­hann­es­son hef­ur bar­ist við átrösk­un í ell­efu ár. Um miðjan maí náði hann al­gjör­um botni, lokaði sig af í þrjá daga og borðaði ekk­ert. Það var þá sem hans nán­ustu brut­ust inn til hans og komu hon­um und­ir lækn­is­hend­ur. Hann er nú á bata­vegi og lít­ur björt­um aug­um fram á veg.

„Mamma mín dó árið 2004 en þá var pabbi minn líka lát­inn. Þegar ég missti hana fór ég að leita að til­gangi í líf­inu. Ég leidd­ist út í neyslu en út frá því byrjaði þetta stöðuga sjálfsniðurrif út af mínu út­liti, að ég væri ekki nógu flott­ur og ekki í nógu góðu formi. Ég var stans­laust að hugsa ein­hverj­ar svona hugs­an­ir þangað til haustið 2004, þá kastaði ég fyrst upp eft­ir mat­ar­lotug­ræðgik­ast,“ seg­ir Árni Grét­ar.

Árni Grétar hefur barist við átröskun í ellefu ár.
Árni Grét­ar hef­ur bar­ist við átrösk­un í ell­efu ár. Ljós­mynd/​Krist­ín Dóra Ólafs­dótt­ir

Sjúk­dómn­um fylg­ir mik­il af­neit­un 

Sjúk­dóm­inn hef­ur Árni Grét­ar glímt við í um ell­efu ár en hann hef­ur verið mis­mik­ill eft­ir tíma­bil­um. Árið 2013 viður­kenndi Árni Grét­ar að hann hafi eitt sinn þjáðst af sjúk­dómn­um en taldi öll­um trú þá um að hann væri læknaður. „Það sem er ein­kenn­andi fyr­ir þenn­an sjúk­dóm er að maður er í svo rosa­lega mik­illi af­neit­un. Sjálfs­blekk­ing­in er svo gíf­ur­lega sterk að maður er í raun­inni að ljúga að sjálf­um sér, þetta verður bara al­gjör sýra.“

Hann seg­ir ferlið hafa verið rokk­andi upp og niður en alltaf leiði sjúk­dóm­ur­inn til mik­ill­ar ein­angr­un­ar og gíf­ur­legs þung­lynd­is sem hef­ur áhrif á per­sónu­lega líðan. Árni Grét­ar er þekkt­ur tón­list­armaður und­ir nafn­inu Fut­ur­egrap­her og hef­ur sjálf­ur þurft að hætta við nokkra tón­leika vegna sjúk­dóms­ins.

Í sumar ætlar Árni Grétar að njóta lífsins og mun …
Í sum­ar ætl­ar Árni Grét­ar að njóta lífs­ins og mun spila á Extreme Chill festi­val­inu í Vík í Mýr­dal sem haldið er fyrstu helg­ina í júlí. Ljós­mynd/​Aðsend mynd

Venju­leg­ur strák­ur í kjörþyngd

Hann seg­ir sína nán­ustu hafa  átt erfitt með að greina sjúk­dóm­inn þar sem að felu­leik­ur­inn hafi verið svo gíf­ur­leg­ur. „Ég man að ég tók það alltaf fram ef mér fannst ég hafa borðað of mikið að ég væri að fara að pissa en ekki á kló­settið til þess að koma þeirri hug­mynd inn hjá fólki. Þetta verður bara eitt stórt leik­rit hjá manni,“ seg­ir Árni Grét­ar.

Fólk teng­ir gjarn­an átrask­an­ir við það að ein­stak­ling­ur sem glím­ir við sjúk­dóm­inn sé annað hvort rosa­lega grann­ur eða í mik­illi yf­ir­vi­gt. Svo er alls ekki staðan og er Árni Grét­ar til að mynda ósköp venju­leg­ur strák­ur í kjörþyngd. „Þess vegna held­ur fólk að það sé bara allt í góðu hjá manni og að manni líði bara vel. Svo er ég líka bú­inn að vera edrú í fjög­ur ár og þegar maður er bú­inn að vera að standa sig vel í því held­ur fólk enn frem­ur að maður sé full­kom­inn og í góðum mál­um. Ein­angr­un­in verður svo mik­il og þá er erfitt að viður­kenna fyr­ir fólki að maður hafi ákveðna galla, þegar maður vill bara vera góð fyr­ir­mynd,“ seg­ir Árni Grét­ar.

Árni Grétar er á batavegi og er byrjaður í meðferð …
Árni Grét­ar er á bata­vegi og er byrjaður í meðferð hjá sál­fræðingi. Ljós­mynd/​Mar­grét Unn­ur Guðmunds­dótt­ir

Átrask­an­ir sjaldn­ar tengd­ar við stráka

Aðspurður um hvernig það sé að vera strák­ur að eiga við þenn­an sjúk­dóm seg­ir Árni Grét­ar að hann hafi í raun­inni aldrei pælt neitt sér­stak­lega í því fyrr en hann ákvað að segja frá sín­um sjúk­dómi á Face­book. „Síðan ég deildi þessu á Face­book hef ég fengið skila­boð frá strák­um sem hafa verið að ganga í geng­um það sama og pöbb­um sem eiga syni sem eru að díla við þenn­an sjúk­dóm.“ Hann bend­ir á að sjúk­dóm­ur­inn sé í mun færri til­fell­um tengd­ur við stráka og að fólk eigi stund­um erfitt með að átta sig á að strák­ar geti verið með átrask­an­ir eins og stelp­ur. „Eins og í bíó­mynd­um þá er maður yf­ir­leitt ekki að sjá stráka taka ein­hverj­ar svona lotug­ræðgis­sen­ur, það eru oft­ast stelp­ur.“

Í maí náði Árni Grét­ar ákveðnum botni þegar hann nærðist ekki í þrjá daga. Það var þá sem hans nán­ustu komu hon­um und­ir lækn­is­hend­ur. Hann er nú byrjaður í meðferð hjá sál­fræðingi og er á bíða eft­ir vist hjá Hvíta­band­inu. „Þetta er viss teg­und af sjálfsskaða sem all­ir geta fengið, ég leidd­ist út í þetta þegar for­eldr­ar mín­ir dóu.“ 

Í sum­ar ætl­ar Árni Grét­ar að njóta lífs­ins og mun spila á Extreme Chill festi­val­inu í Vík í Mýr­dal sem haldið er fyrstu helg­ina í júlí. Hann mun spila þar ásamt Jóni Ólafs­syni en þeir hafa verið að búa til tónlist sam­an og hafa nú þegar gefið út eina plötu en sú næsta er á leiðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda