Biggest Loser keppandi lætur það vaða

Þorbjörg, keppandi í Biggest Loser Ísland, ætlar í fallhlífarstökk í …
Þorbjörg, keppandi í Biggest Loser Ísland, ætlar í fallhlífarstökk í dag.

Þor­björg Gísla­dótt­ir, kepp­andi The Big­gest Loser Ísland, ætl­ar í fall­hlíf­ar­stökk í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem hún próf­ar eitt­hvað í þess­um dúr en hana hef­ur þó lengi dreymt um að fara í teygju­stökk, það hef­ur þó þurft að bíða.

„Ég á bókað stökk hjá FFF-Dropzo­ne- Hella kl 19:00 í kvöld ef veður leyf­ir,“ seg­ir Þor­björg, eða Tobba eins og hún er gjarn­an kölluð. Tobba átti að fara í fall­hlíf­ar­stökkið fyr­ir viku síðan en því var frestað fegna veðurs. 

„Við syst­urn­ar vor­um eitt­hvað að ræða þetta stuttu eft­ir að ég kom heim af Ásbrú, sem var í nóv­em­ber í fyrra. Hún er búin að stökkva tvisvar og var að tala um að fara aft­ur núna í sum­ar og ég spurði hvort ég mætti ekki koma með. Henni fannst það tær snilld og þá var það ákveðið.“

„Ég hef ekki prófað neitt í þess­um dúr áður en mig hef­ur alltaf langað i teygju­stökk,“ út­skýr­ir Tobba sem lét aldrei verða af teygju­stökk­inu sök­um þess að hún er búin að fara í aðgerðir á hnjám. „Lækn­ar ráðlögðu mér að fara ekki í teygju­stökkið.“

Finn­ur ekki fyr­ir hræðslu

Tobba kveðst vera rosa­lega spennt fyr­ir fall­hlíf­ar­stökk­inu. „Ég finn enn sem komið er ekki fyr­ir hræðslu, mér finnst hálf óraun­veru­legt að þetta sé að ger­ast. En ég tek Gumma Ben á þetta: „ef þetta er draum­ur - aldrei vekja mig - aldrei vekja mig “

Syst­ir Tobbu kemst því miður ekki með henni í stökkið að þessu sinni. „Nei, hún er búin að vera æfa fyr­ir hjóla­keppn­ina Gullna hring­inn og varð fyr­ir því  óhappi að „fljúga“ af hjól­inu í gær. Hún flaug á haus­inn og endaði upp á slysó en slapp sem bet­ur  fer við bein­brot.“

Aðspurð hvað sé á döf­inni kveðst Tobba ekki vera viss. „Ég  hef ekki sett mér fleiri áhættu­mark­mið í bili, en veit svo sem ekk­ert hverju ég get tekið upp á eft­ir stökkið í kvöld. Þetta snýst um að setja sér raun­hæf mark­mið og tak­ast  að fram­kvæma þau. Það eru þess­ir litlu per­sónu­legu sigr­ar sem skipta svo miklu máli,“ seg­ir Tobba að lok­um.

Þorbjörg þurfti að bíða því fallhlífarstökkina var frestað vegna veðurs.
Þor­björg þurfti að bíða því fall­hlíf­ar­stökk­ina var frestað vegna veðurs. Skjá­skot af Face­book.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda