„Ég get varla lýst tilfinningunni“

Þor­björg Gísla­dótt­ir fór í fallhlífarstökk á föstudaginn. Hún skemmti sér …
Þor­björg Gísla­dótt­ir fór í fallhlífarstökk á föstudaginn. Hún skemmti sér konunglega og ætlar aftur næsta sumar.

„Vá, þetta var rosa­lega gam­an. Geðveikt,“ sagði Þor­björg Gísla­dótt­ir, kepp­andi The Big­gest Loser Ísland, en hún fór í fall­hlíf­ar­stökk á föstu­dag­inn. Eitt af fyrstu skref­un­um var að kanna í hvernig formi Þor­björg er og auðvitað flaug hún í gegn­um prófið.

„Ég og syst­ir mín brunuðum aust­ur fyr­ir fjall og mætt­um á flug­völl­inn á Hellu rétt fyr­ir kl. 19:00 þar sem Hjört­ur Blön­dal hjá FFF – Dropzo­ne – Hella tók á móti mér. Það varð smá seink­un á stökk­inu vegna vinds, en vind­inn lægði þegar líða tók á kvöldið. Á meðan ég beið var farið yfir grunn­atriði um hvernig flugið/​fallið fer fram og hvað á að gera og hvað má ekki gera. Einnig var at­hugað hvort ég væri ekki lík­am­lega og and­lega hraust fyr­ir þetta æv­in­týri, sem ég var að sjálf­sögðu,“ seg­ir Þor­björg glöð í bragði. „Því næst var ég klædd upp í flott­asta bún­ing­inn á svæðinu. Bún­ing sem er oft­ast notaður þegar verið er að steggja og eða gæsa fyr­ir brúðkaup,“ seg­ir hún og hlær.

„Um leið og vind­ur­inn var orðinn stöðugur var ekki aft­ur snúið. Þá voru sett­ar á mig all­ar ólar og fest­ing­ar fyr­ir stökkið, farið yfir all­an búnað oft­ar en einu sinni og svo beint upp í vél. Spenn­an magnaðist á leiðinni upp en ég fann ekki fyr­ir neinni hræðslu, sem kom mér á óvart þar sem ég hef ekki gert neitt þessu líkt áður. Það var flogið upp í 10.000 feta hæð, úff. Áður en ég vissi af var ég kom­in á brún­ina í dyr­un­um og niðurtaln­ing hófst og svo var ég í frjálsu falli. Ég get varla lýst til­finn­ing­unni, hún var svo mögnuð og þetta var al­veg rosa­lega gam­an. Ég gaf meira að segja hinum stökkvar­an­um „high five“ áður en fall­hlíf­in opnaðist,“ út­skýr­ir Þor­björg.

Þor­björg seg­ir allt hafa gengið eins og í sögu og að lend­ing­in hafi verið mjúk. „Útsýnið var al­veg magnað og þetta er klár­lega eitt það skemmti­leg­asta sem ég hef gert, ég mun gera þetta aft­ur næsta sum­ar.“

Big­gest Loser kepp­andi læt­ur það vaða

Þorbjörg fékk að klæðast þessum glæsilega búningi í fallhlífarstökkinu.
Þor­björg fékk að klæðast þess­um glæsi­lega bún­ingi í fall­hlíf­ar­stökk­inu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda