Settu takmörk á tölvunotkun barna sinna

Þeir Steve Jobs og Bill Gates pössuðu upp á að …
Þeir Steve Jobs og Bill Gates pössuðu upp á að börnin þeirra verðu ekki of miklum tíma fyrir framan tölvuskjáinn. Samsett mynd

Tveir af áhrifa­mestu ein­stak­ling­un­um í tækni­geir­an­um, þeir Steve Jobs og Bill Gates, leyfðu börn­um sín­um sjald­an að leika sér í tölv­um. Börn ánetj­ast tölvu­tækn­inni og geta af­leiðing­arn­ar verið al­var­leg­ar. 

Það dylst eng­um að skjánotk­un barna í dag er mik­il og að áhrif­in af mik­illi notk­un geta verið skaðleg. Svo virðist sem Jobs og Gates hafi fyr­ir löngu áttað sig á áhrif­un­um. 

In­depend­ent grein­ir frá nýrri bók sem Joe Clement og Matt Miles skrifuðu þar sem fólk hafi mátt átta sig á þessu lengi, að minnsta kosti ef horft er til þeirra Bill Gates, stofn­anda Microsoft, og Steve Jobs, stofn­anda Apple. Í bók­inni er talið að þeir fé­lag­ar hafi vitað hversu ávana­bind­andi tölvu­tækn­in er. 

Árið 2007 setti Gates þak á tím­ann sem dótt­ir hans varði fyr­ir fram­an skjá­inn eft­ir að hún byrjaði að ánetj­ast tölvu­leikj­um. Hann leyfði börn­um sín­um ekki að fá farsíma fyrr en þau urðu 14 ára. 

Árið 2011 upp­lýsti Steve Jobs í viðtali við New York Times að hann bannaði börn­un­um sín­um að nota ipad en þá var spjald­tölv­an ný­kom­in á markað. „Við setj­um mörk um hversu mikla tækni börn­in okk­ar nota heima,“ sagði Jobs. 

Það seg­ir heil­mikið að menn­irn­ir sem áttu stór­an þátt í að þróa tölvu­tækn­ina leyfa ekki börn­um sína að nota hana eins og þau lyst­ir. 

Það þykir ekki gott fyrir krakka að verja of miklum …
Það þykir ekki gott fyr­ir krakka að verja of mikl­um tíma fyr­ir fram­an tölvu­skjá. mbl.is/​Thinkstockp­hotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda