„Allt er gott í hófi“ er kjaftæði

Rafn Franklín Hrafnsson einkaþjálfari í Hreyfingu segir að við eigum …
Rafn Franklín Hrafnsson einkaþjálfari í Hreyfingu segir að við eigum að venja okkur á það að borða almennilegan mat.

„Já, þú last það rétt. 

Ég heyri fólk lon og don nota orðatil­tækið „allt er gott í hófi“ til að rétt­læta óskund­ann sem það læt­ur ofan í sig. Yf­ir­leitt eru það þá ein­hvers­kon­ar sæt­indi, vín eða ann­ars kon­ar dóna­skap­ur sem fólk er að moka í sig,“ seg­ir Rafn Frank­lín Hrafns­son einkaþjálf­ari í Hreyf­ingu og um­sjón­ar­maður hlaðvarps­ins 360° Heilsa í nýj­um pistli á Smartlandi: 

Sam­tím­is friðar það sál­ar­tetrið með því að óma þessa möntru „Allt er gott í hófi, ekki satt?“.

Hvað er þetta „hóf“ sem þetta fólk er að tala um? 

Vanda­málið ligg­ur í því að hver og einn rétt­læt­ir fyr­ir sjálf­um sér að sitt „hóf“ sé hóf­legt og sé þar af leiðandi allt gott og blessað.

Fyr­ir um það bil 70 árum þótti hóf­legt að skott­ast til kaup­manns­ins og fá eina pínu­litla kók í gleri og lakk­rís rör.

Í dag þykir fyr­ir mörg­um hins­veg­ar hóf­legt að fara 1 sinni í viku í nammi­land, stút­fylla poka af gúm­melaði og fá sér eina stóra kók í dós með því. Hófið hjá sum­um inni­held­ur jafn­vel sveitta pizzu að auki.

Hvort af þessu er þá hóf?

Fyr­ir ein­hverj­um virðist „hófið“ vera að setja lík­amann í syk­urs­ík­is ástand eitt kvöld í viku …

Hvenær verður hófið óhóf? Hver dreg­ur lín­una?

„Hóf“ er af­stætt hug­tak sem þýðir ekki neitt. 

„Allt er gott í hófi” er mantr­an sem óhóf fel­ur sig á bakvið.

„Allt er gott í hófi” er mantra sem virk­ar ekki í óhóf­legu sam­fé­lagi. 

Sam­fé­lagi þar sem mat­ur og drykk­ur er hannaður fyr­ir of­neyslu. Hannaður til að örva hverja ein­ustu vellíðun­ar­stöð í heil­an­um svo að þú hald­ir áfram að gúffa þar til ílátið er tómt. 

Hættu að neyta í hófi.

Byrjaðu frek­ar að næra þig með mat sem rækt­ar heils­una þína. Mat sem ger­ir þér kleift að lifa heilsu­sam­legra lífi. Mat sem læt­ur þér líða vel á lík­ama og sál. Nærðu þig eins og þú ber­ir virðingu fyr­ir lík­am­an­um þínum.

Neyttu óholl­ustu eins sjald­an og þú get­ur. Þegar þú ferð í óholl­ustu, þá dvel­urðu ör­stutt á þeim stað og held­ur svo áfram að rækta heils­una. 

Fylltu dag­inn þinn af upp­byggj­andi hlut­um. Hlut­um sem rækta þig og gera þig betri.

Gerðu óupp­byggi­lega hluti eins sjald­an og þú get­ur.

Þegar þú ger­ir óupp­byggj­andi hluti, þá dvel­urðu ör­stutt á þeim stað og held­ur svo áfram að gera upp­byggi­lega hluti. 

Hættu í hóf­inu. 

Settu frek­ar at­hygl­ina á að gera upp­byggj­andi hluti í óhófi.

Settu at­hygl­ina á að verða betri í dag en í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda