90% af verkjunum hurfu með ísböðum

Rafn Franklín Hrafnsson ræðir við Andra Iceland í þætti sínum …
Rafn Franklín Hrafnsson ræðir við Andra Iceland í þætti sínum 360° Heilsa.

Rafn Frank­lín Hrafns­son einkaþjálf­ari er með hlaðvarpið 360° Heilsa. Í þess­um seg­ir Vil­hjálm­ur Andri Ein­ars­son, eða Andri Ice­land eins og hann er kallaður, hvernig líf hans tók U-beyjgu með því að byrja að kæla.

„Andri er ansi magnaður maður sem hef­ur mikla sögu að segja. Hann gjör­breytti lífi sínu með ísböðum, eins ótrú­lega og það kann að hljóma. Andri hafði verið bú­inn að glíma við langvar­andi bak- og tauga­verki frá ung­um aldri eft­ir slys sem olli taugaskaða í bak­inu á hon­um. Þess­ir verk­ir lögðust þungt á hann and­lega og lík­am­lega og fyr­ir 4 árum var hann við það að gef­ast upp og hugsaði að auðveld­ast væri bara að „stimpla sig út“ eins og hann orðar það. Á þess­um sama tíma kynn­ist hann, fyr­ir hálf­gerðri til­vilj­un, ísböðum og um það bil þrem­ur vik­um eft­ir dag­leg ísböð og önd­un­aræf­ing­ar voru 90% af verkj­un­um hans horf­in. Í dag er hann svo gott sem verkjalaus og hef­ur al­gjör­lega snúið lífi sínu við. Andri hef­ur í kjöl­farið til­einkað sér nýja sín á lífið og ansi aðdá­un­ar­vert hug­ar­far sem ég tel að fleiri mættu til­einka sér. Í þætt­in­um spjöll­um við um sög­una hans, allt sem viðkem­ur ísböðum, hug­ar­far, streitu og margt fleira,“ seg­ir Rafn Frank­lín, spurður um þátt­inn. 

Hægt er að hlusta á hann í heild sinni hér fyr­ir neðan: 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda