Svona heldurðu rassinum stinnum í sóttkví

Anna Eiríks mælir með að gera þessar æfingar heima, hvort …
Anna Eiríks mælir með að gera þessar æfingar heima, hvort sem þú ert í sóttkví eða treystir þér ekki í ræktina.

„Ég setti sam­an 10 mín­útna æf­inga­mynd­band sem hægt er að vinna eft­ir heima í stofu þar sem marg­ir eru nú í sótt­kví. Það er um að gera að huga að heils­unni sinni eft­ir bestu getu en vera skyn­sam­ur og fylgja ráðlegg­ing­um land­lækn­is og halda sig heima fyr­ir ef maður hef­ur fengið fyr­ir­mæli um það eða treyst­ir sér ekki út meðal fólks og þá er gott að geta fylgt góðu æf­ingaplani heima í stofu,“ seg­ir Anna Ei­ríks­dótt­ir lík­ams­rækt­arþjálf­ari.

Þetta mynd­band þjálf­ar þol og kjarna­vöðvana en hver æf­ing er unn­in í 45 sek­únd­ur, hvíld í 15 sek­únd­ur á milli. Ef þú ert í góðu stuði og vilt lengri æf­ingu þá er um að gera að rúlla 2-3x í gegn­um það og lengja þannig æf­ing­una.

FRÍ BUTT­LIFT-ÆFING HÉR

Ég á fullt af góðum heimaæf­ing­um inn á www.anna­eiriks.is sem ég hvet þig til þess að skoða vel en þannig er hægt að nýta tím­ann vel og hreyfa sig þrátt fyr­ir að kom­ast ekki út úr húsi. Um að gera að senda mér línu á anna­eiriks@anna­eiriks.is ef þig vant­ar ráðlegg­ing­ar varðandi hvaða æf­ingapl­an hent­ar þér best!

Anna býður les­end­um mbl.is sem kunna að vera í sótt­kví upp á 30% af­slátt af heima­pró­grammi sem krefst engra áhalda með kóðanum: sótt­kví

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda