Annie Mist kennir heiminum heimaæfingar

Annie Mist Þórisdóttir.
Annie Mist Þórisdóttir. mbl.is/Ómar Óskarsson

Cross­fit­stjarn­an Annie Mist Þóris­dótt­ir legg­ur sitt af mörk­um í sam­bandi við kór­ónu­veiruna. Nú þegar marg­ir æfa heima hef­ur Annie birt hálf­tíma­langt mynd­band á youtu­besíðu sinni þar sem hún hvet­ur fólk til þess að taka vel á í stutt­an tíma. Æfing­ar þurfi ekki alltaf að vera lang­ar.

Annie er í hlut­verki þjálf­ara í mynd­band­inu og er með nokkra iðkend­ur með sér. All­ir iðkend­ur eru með dýnu og hand­lóð. Ef fólk á ekki hand­lóð er ein­fald­lega hægt að gera æf­ing­ar án lóða eða jafn­vel fylla tvær vatns­flösk­ur og nota sem lóð. 

Æfing­arn­ar eru í anda cross­fit en þó ein­fald­ar þannig að flest­ir sem hreyfa sig reglu­lega geta tekið þátt í þeim án þess að hafa lokið grunn­nám­skeiði í cross­fit. Æfing­arn­ar reyna bæði á styrk og þol en Annie hvet­ur fólk til þess að fram­kvæma æf­ing­arn­ar af mikl­um ákafa. Á milli æf­inga fær fólk stutt­ar pás­ur.

Fólk í sótt­kví eða fólk sem vill ekki fara í rækt­ina akkúrat þess­ar vik­urn­ar get­ur tekið vel á því með Annie heima í stofu. Æfing­in er ekki löng en hún reyn­ir svo sann­ar­lega á. 

Hægt er að horfa á æf­ing­una í spil­ar­an­um hér að neðan. 

mbl.is

Stönd­um sam­an

Við hjá Árvakri vilj­um vekja at­hygli á því sem vel er gert á þess­um erfiðu tím­um. Ef þú ert með góða sögu af fyr­ir­tækj­um og ein­stak­ling­um sem eru að gera gott, sendu okk­ur ábend­ingu á net­fangið stond­um­sam­an@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda