5 góð ráð til að æfa heima!

Anna Ei­ríks­dótt­ir deild­ar­stjóri í Hreyf­ingu rek­ur vef­inn anna­eiriks.is. Hún seg­ir að það fær­ist í vöxt að fólk vilji æfa heima hjá sér og seg­ir að kór­ónu­veir­an hafi haft mikið um það að segja. Hér gef­ur hún fólki fimm góð ráð ef það vill fara að æfa heima hjá sér: 

  • Byrjaðu á því að setja þér mark­mið og gera plan yfir það hvað þú ætl­ar þér að hreyfa þig oft á viku.
  • Finndu þér gott æf­ingapl­an til að fylgja eft­ir heima svo þjálf­un­in sé mark­viss og haldi þér við efnið (fullt af frá­bær­um æf­inga­plön­um á síðunni minni anna­eiriks.is).
  • Komdu þér upp smá æf­ingaaðstöðu heima, þarf ekki að vera meira en æf­inga­dýna, eitt par af hand­lóðum og jafn­vel nuddrúlla.
  • Forðastu að fara í átak eða megr­un – það er skamm­tíma­lausn sem er erfið, leiðin­leg og skil­ar al­mennt slök­um ár­angri til lengd­ar.
  • Haltu þér við efnið – æf­ing­arn­ar þurfa ekki að vera lang­ar til þess að skila ár­angri og eng­inn er full­kom­inn í mataræðinu, aðal­málið er að halda sér við efnið og mundu að góðir hlut­ir ger­ast hægt!


Ef þig vant­ar hvatn­ingu og mark­visst æf­ingapl­an til að vinna eft­ir heima, vertu þá með í Stjörnuþjálf­un hjá Önnu Ei­ríks sem hefst 7. sept­em­ber. Skrán­ing á anna­eiriks@anna­eiriks.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda