Rífðu púlsinn upp heima í stofu

Það er mikilvægt að halda áfram að hreyfa sig þó …
Það er mikilvægt að halda áfram að hreyfa sig þó líkamsræktarstöðvar séu lokaðar.

Lík­ams­rækt­ar­stöðvum var olkað í upp­hafi þess­ar­ar viku og ef­laust marg­ir sem standa frammi fyr­ir ónýt­um haust­mark­miðum. En eins og við lærðum í fyrstu bylgju heims­far­ald­urs­ins er vel hægt að hreyfa sig heima og úti. Það eru líka ef­laust marg­ir sem luma enn á hand­lóðum, ketil­bjöll­um, æf­ingat­eygj­um og dýn­um sem koma sér vel í þess­ari lok­un. 

Lok­un lík­ams­rækt­ar­stöðva er því eng­in af­sök­un til að fá í bakið af hreyf­ing­ar­leysi eða þurfa að gef­ast upp á mark­miðum sín­um og sökkva sér í nammi­pok­ann. Það er líka mik­il­vægt að halda áfram að hreyfa sig til að halda geðheils­unni. 

Dæmi um heimaæf­ingu sem hægt er að gera hvar sem: 

5 um­ferðir af:

20 hné­beygj­ur

20 hné­beygju­hopp

20 upp­set­ur

20 fram­stig (10 á hvorn fót)

10 arm­beygj­ur 

5 burpees

Til að gera æf­ing­una erfiðari er hægt að bæta við ketil­bjöllu eða lóði í hné­beygj­urn­ar og fram­stig­in. 

Gott er að hita upp með létt­um hreyfiteygj­um og færri end­ur­tekn­ing­um af æf­ing­un­um. Þú get­ur líka farið ró­lega í fyrstu um­ferðina og aukið ákefðina smám sam­an. 

mbl.is

Stönd­um sam­an

Við hjá Árvakri vilj­um vekja at­hygli á því sem vel er gert á þess­um erfiðu tím­um. Ef þú ert með góða sögu af fyr­ir­tækj­um og ein­stak­ling­um sem eru að gera gott, sendu okk­ur ábend­ingu á net­fangið stond­um­sam­an@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda