Hreyfing mikilvæg fyrir andlega heilsu

Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar segir mikilvægt fyrir andlegu heilsuna að …
Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar segir mikilvægt fyrir andlegu heilsuna að hreyfa sig. mbl.is/Árni Sæberg

Næstu vik­urn­ar ætla Hreyf­ing og mbl.is að taka hönd­um sam­an og koma með lík­ams­rækt­ina heim í stofu til þín. Alls er um að ræða 10 þætti þar sem áhersl­an er lögð á fjöl­breytt­ar æf­ing­ar til að styrkja lík­ama og sál. 

„Þetta eru fjöl­breytt­ar æf­ing­ar fyr­ir kon­ur og karla á öll­um aldri sem vilja hreyfa sig, styrkja vöðvana, auka þolið og liðleik­ann og bæta heils­una,“ seg­ir Ágústa John­son fram­kvæmda­stjóri Hreyf­ing­ar. 

Ágústa seg­ir það vera mik­il­vægt fyr­ir alla að hreyfa sig, gjarn­an dag­lega.

 „Til þess að halda lík­am­an­um í góðu ástandi, stuðla að bættri heilsu, bæta ónæmis­kerfið og ekki síst and­legu heils­una.

Ég tel að við þurf­um al­veg sér­stak­lega á því að halda núna, í þess­um far­aldri sem hef­ur dreg­ist svo­lítið mikið á lang­inn, leng­ur en flest­ir reiknuðu með. Það er al­veg með ólík­ind­um hvað frísk­leg hreyf­ing get­ur haft góð áhrif á and­lega líðan og gert okk­ur létt­ari bæði í skapi og létt­ari á okk­ur,“ seg­ir Ágústa. 

Þætt­irn­ir munu birt­ast hér á mbl.is á mánu­dags-, miðviku­dags-, og föstu­dags­morgn­um. Þátt­tak­end­ur þurfa ekki að eiga neinn búnað til að fram­kvæma æf­ing­arn­ar en þeir sem eiga lóð geta nýtt þau með. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda