Eru heimaæfingarnar að drepa nágrannann?

Slepptu öllum hoppum á heimaæfingunni.
Slepptu öllum hoppum á heimaæfingunni. Ljósmynd/Unsplash/Kari Shea

Nú þegar lík­ams­rækt­ar­stöðvar eru lokaðar og farið að verða ansi kalt úti er nauðsyn­legt að koma blóðinu á hreyf­ingu annað slagið. En það get­ur verið mik­il áskor­un að taka æf­ingu heima, sér­stak­lega ef þú býrð í fjöl­býl­is­húsi og vilt ekki fá alla ná­grann­ana upp á móti þér. Smart­land tók sam­an nokk­ur ráð til þess að minnka hávaðan frá heimaæf­ing­um. 

Slepptu öll­um hopp­um og bættu við lóðum

Það gef­ur auga leið að sleppa öll­um hopp­um þegar minnka á hávaðann. Það þýðir þó ekki að þú þurf­ir að fórna ákefðinni sem hopp­un­um fylg­ir. Í staðin fyr­ir hné­beygju­hopp og fram­stigs­hopp get­ur þú gert hné­beygj­ur og fram­stig með lóðum eða ein­hverju þungu á heim­il­inu. Það held­ur uppi ákefðinni og fær hjartað til að slá.

Lentu hljóðlega

Ef þú vilt endi­lega hoppa þá þarftu að ein­beita þér að því að hugsa um að lenda hljóðlega. Ímyndaðu þér að það sé sof­andi unga­barn í her­berg­inu sem þú vilt ekki vekja. Það tek­ur miklu meira á lík­amann að lenda hljóðlega svo þú get­ur fækkað end­ur­tekn­inga fjöld­an­um.

Auka hljóðdemp­un

Settu tvær æf­inga­dýn­ur sam­an og hoppaðu á þeim. Það demp­ar hljóðið vel. Þú get­ur líka prófað að setja hand­klæði und­ir dýn­una en farðu var­lega því þú get­ur runnið til. 

Úr skón­um

Það skap­ar mik­inn auka hávaða að taka æf­ingu í leik­fimi skón­um heima. Taktu æf­ing­una ber­fætt­ur eða í sokk­um með gripi. 

Settu tvær æfingadýnur ofan á hvor aðra til að auka …
Settu tvær æf­inga­dýn­ur ofan á hvor aðra til að auka hljóðdemp­un­ina. Ljós­mynd/​Unsplash­Sebastian Pociecha
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda