Æfðu með Sunnevu Einars fram að jólum

Sunneva Einarsdóttir.
Sunneva Einarsdóttir. Skjáskot/Instagram

Einkaþjálf­ar­inn og áhrifa­vald­ur­inn Sunn­eva Ein­ars­dótt­ir er far­in af stað með heimaæf­inga­átak sem hún kall­ar Fit­mas. Átakið fer fram á In­sta­gram en Sunn­eva ætl­ar að birta eina æf­ingu á dag á In­sta­gram­inu sínu sem fylgj­end­ur henn­ar geta tekið hvenær sem er yfir dag­inn. 

Sunn­eva hef­ur verið mjög dug­leg að æfa heima í þess­ari þriðju bylgju kór­ónu­veirunn­ar á meðan lík­ams­rækt­ar­stöðvar eru lokaðar. Þá hef­ur hún einnig verið dug­leg að setja sam­an æf­ing­ar og hvetja fylgj­end­ur sína til að halda áfram að hreyfa sig. 

Þau sem hafa áhuga á að taka æf­ing­ar sem Sunn­eva set­ur sam­an geta fylgst með henni á In­sta­gram. Æfing dags­ins er í formi tabata og set­ur hún upp tvo hringi með sex mis­mun­andi æf­ing­um sem reyna á all­an lík­amann. 

Skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda