Jóhönnu var nauðgað í Svíþjóð

Jóhanna Helga var gestur Eddu Falak og Fjólu Sigurðardóttur.
Jóhanna Helga var gestur Eddu Falak og Fjólu Sigurðardóttur. Skjáskot/YouTube

Jó­hanna Helga byrjaði að neyta fíkni­efna þegar hún var aðeins 18 ára göm­ul. Æska og upp­vöxt­ur Jó­hönnu er lituð af áföll­um og of­beldi. Hún var mis­notuð aðeins fjög­urra ára göm­ul og var send í var­an­legt fóst­ur þegar hún var fimm ára. Móðir henn­ar var fík­ill og seldi aðgang að lík­ama sín­um til að eiga fyr­ir næsta skammti.

Jó­hanna Helga var gest­ur Eddu Falak og Fjólu Sig­urðardótt­ir í hlaðvarpsþætt­in­um Eig­in kon­ur. 

Jó­hanna missti fljótt stjórn á neysl­unni og var far­in að sprauta sig fljót­lega. Um tíma var hún heim­il­is­laus og fór nokkr­um sinn­um í meðferð, meðal ann­ars til Svíþjóðar, áður en hún náði stjórn á vand­an­um og fór að vinna úr áföll­um sín­um. 

„Fyrst vor­um við send­ar í sveit. Eitt­hvað sam­an og eitt­hvað í sund­ur. Eitt skipti var ég ein og þá komu hún [syst­ir Jó­hönnu] og mamma og rændu mér þaðan. Ég man ekki al­veg hvernig þær gerðu þetta. Mig rám­ar bara í þetta. Hún var rosa­leg. Mamma var svona krimmi en ég ætla að taka það fram að hún var besta sál sem ég veit um. Bara ótrú­lega veik en var alltaf að reyna sitt besta,“ seg­ir Jó­hanna. 

Þegar hún var 22 ára fór hún í meðferð til Svíþjóðar. Hún var staðráðin í því að hún þyrfti að fara til ann­ars lands til að verða edrú. Hún lét öll­um ill­um lát­um á meðferðar­stöðinni og stal meðal ann­ars bát.

„Ég lendi í mjög brutal nauðgun þarna úti í Svíþjóð. Það er svona „pause hou­se“ , hús í öðrum bæ sem maður var send­ur í til að „cool off“. Ég var nátt­úr­lega eins og hvirfil­byl­ur og var að fokka í fólki. Bara al­gjör dólg­ur. Var ekki að virða til­finn­ing­ar annarra. Ég er send þangað og þar er ég bara eitt­hvað að drekka. Þar lendi ég í þess­ari nauðgun. Þetta var bara ógeðslegt,“ seg­ir Jó­hanna. Maður­inn sem nauðgaði henni var veit­ingamaður. 

„Ég og önn­ur stelpa vor­um þarna eft­ir lok­un. Við römbuðum þarna ég og önn­ur stelpa sem var með mér í meðferðinni. Hún fer með ein­hverj­um öðrum kalli og hann fer bara og gaf henni að borða. Þegar þau eru far­in seg­ir gaur­inn „ef þú ríður mér ekki þá stúta ég þér“ og ég bara fraus,“ seg­ir Jó­hanna.

Viðtalið í heild sinni má finna á hlaðvarpsvef mbl.is og í spil­ar­an­um hér fyr­ir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda