Sigurvegarinn sneiðir hjá viðbættum sykri

Margrét Elín sigraði heilsuuppskriftarkeppni Smartlands og Nettó.
Margrét Elín sigraði heilsuuppskriftarkeppni Smartlands og Nettó. mbl.is/Unnur Karen

Mar­grét Elín sigraði heils­upp­skrift­ar­keppni Smart­lands og Nettó. Hún sendi inn upp­skrift af Rokk­andi rækj­um fyr­ir einn. Þegar hún er spurð út í upp­skrift­ina seg­ir hún að rétt­ur­inn sé inn­blás­inn af ann­arri upp­skrift sem hún hnaut um á er­lendu mat­ar­bloggi á dög­un­um. 

„Upp­skrift­in er inn­blás­in af ann­arri sem ég fann á er­lendu mat­ar­bloggi fyr­ir þónokkru síðan. Hún hef­ur þró­ast með tím­an­um í þessa upp­skrift sem ég sendi inn.  Hún er mjög lif­andi hjá mér og oft­ar en ekki aðlöguð að því sem er til í frysti/​ís­skáp, en blóm­káls­grjón­in og rækj­urn­ar eru þó alltaf notaðar. Þar sem rétt­ur­inn er mjög ein­fald­ur hef­ur hann meðal ann­ars verið eldaður á prím­us í „picknick“, mæli heils­hug­ar með því,“ seg­ir Mar­grét Elín í sam­tali við Smart­land. 

Hugs­ar þú vel um heils­una?

„Ég reyni að hugsa vel um heils­una, vera meðvituð um mat­ar­ræði og að hreyfa mig reglu­lega. Með ár­un­um finn ég mik­inn mun á mér eft­ir sukk, en leyfi mér það þó inn á milli. Gullni meðal­veg­ur­inn er málið að mínu mati.“

Hvað ger­ir þú til þess að hafa mat­inn heilsu­sam­legri?

„Ég hef í gegn­um tíðina reynt að forðast viðbætt­an syk­ur. Þess utan reyni ég að hafa græn­meti í meiri­hluta í máltíðum.“

Ertu á ein­hverju sér­fæði, ketó eða?

„Nei er ekki á sér­fæði.“

Hvað finnst þér skipta mestu máli þegar elda­mennska er ann­rs veg­ar?

„Góður hníf­ur er gulls ígildi.“

Hvert er þitt upp­á­halds­hrá­efni?

„Öll krydd! Hægt að gera krafta­verk með góðum krydd­um.“

Hvað finnst þér gera all­an mat betri?

„Góður fé­lags­skap­ur.“

Hér má sjá Rokkandi rækjur Margrétar Elínar.
Hér má sjá Rokk­andi rækj­ur Mar­grét­ar El­ín­ar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda