Æfir í 21 klukkustund á viku

Landsliðskonan Margrét Lea lauk nýverið keppni á Evrópumótinu í áhaldafimleikum …
Landsliðskonan Margrét Lea lauk nýverið keppni á Evrópumótinu í áhaldafimleikum í Þýskalandi. Ljósmynd/Fimleikasamband Íslands

Það er óhætt að segja að líf landsliðskon­unn­ar Mar­grét­ar Leu Krist­ins­dótt­ur hverf­ist um fim­leika, en hún hef­ur æft íþrótt­ina frá þriggja ára aldri og eyðir meiri­hluta vik­unn­ar í fim­leika­sal Bjark­anna í Hafnar­f­irði. Mar­grét lauk ný­verið keppni á Evr­ópu­mót­inu í áhaldafim­leik­um, sem haldið var í Þýskalandi, en aðdrag­andi móts­ins reynd­ist Mar­gréti erfiður, jafnt lík­am­lega sem and­lega. 

Við feng­um að skyggn­ast inn í líf af­reks­kon­unn­ar sem verður tví­tug á ár­inu, en sam­hliða því að æfa 21 klukku­stund á viku starfar hún sem fim­leikaþjálf­ari. Í sum­ar lenti Mar­grét í erfiðum meiðslum sem settu stórt strik í reikn­ing­inn, enda keppn­is­tíma­bilið í full­um gangi.

„Ég er heppin að eiga góða fjölskyldu sem styður mig …
„Ég er hepp­in að eiga góða fjöl­skyldu sem styður mig í öllu, og einnig þjálf­ara sem hafa hjálpað mér í gegn­um sigra og ósigra,“ seg­ir Mar­grét.

Vildi keppa á öll­um áhöld­um

„Fyr­ir átta vik­um lenti ég mjög illa á æf­ingu og tognaði illa á tveim­ur liðbönd­um í ökkl­an­um. Ég missti því bæði af Íslands- og Norður­landa­mót­inu,“ út­skýr­ir Mar­grét. „Það var mjög krefj­andi að koma til baka á svona stutt­um tíma. Æfing­arn­ar fyr­ir Evr­ópu­mótið reyndu mikið á mig and­lega með ný meiðsli að hugsa um og margt annað sem spilaði inn í,“ seg­ir Mar­grét.

Þrátt fyr­ir meiðslin held­ur Mar­grét ótrauð áfram í átt að mark­miðum sín­um, en hún seg­ir lyk­il­inn að baki vel­gengni sinni vera að hún gefst aldrei upp. „Ég er mjög sátt með mína frammistöðu á Evr­ópu­mót­inu en ég hefði viljað fá tæki­færi til að keppa á öll­um áhöld­um því þetta var eina úr­töku­mótið fyr­ir Heims­meist­ara­mótið í októ­ber. Núna er mark­miðið að bæta við æf­ing­arn­ar mín­ar, sem ég var byrjuð að gera áður en ég meidd­ist í sum­ar,“ seg­ir Mar­grét. 

Margrét hefði viljað keppa á öllum áhöldunum á EM.
Mar­grét hefði viljað keppa á öll­um áhöld­un­um á EM. Ljós­mynd/​Fim­leika­sam­band Íslands

Rútín­an alltaf mik­il­væg

Aðspurð seg­ir Mar­grét álagið alltaf aukast fyr­ir mót, en henni þykir þó mik­il­vægt að halda sömu rútínu. „Ég þekki lík­amann minn mjög vel og veit hvað ég get lagt á hann. Því er mjög mik­il­vægt fyr­ir mig að fylgja minni rútínu þó ég æfi í öðrum aðstæðum. Svefn er mjög mik­il­væg­ur fyr­ir mig og ég sef alltaf í kring­um 9 klukku­stund­ir,“ seg­ir Mar­grét.

Á keppn­is­dag byrj­ar Mar­grét alltaf á því að fá sér góða nær­ingu. „Morg­un­rútín­an mín er yf­ir­leitt alltaf eins. Fyr­ir keppni finnst mér best að borða gríska jóg­úrt með ban­ana og mús­lí,“ seg­ir Mar­grét. Hún hef­ur mjög gam­an af því að gera sig til á keppn­is­dag, en upp­á­halds­snyrti­vör­ur Mar­grét­ar þessa dag­ana eru Hollywood Flaw­less Filter ljóma­grunn­ur frá Char­lotte Til­bury og glimmer­augn­blý­ant­ur. 

Margrét stefnir á að fara í háskóla í Svíðþjóð, en …
Mar­grét stefn­ir á að fara í há­skóla í Svíðþjóð, en hún út­skrifaðist af nátt­úru­fræðibraut frá Flens­borg sum­arið 2021. Ljós­mynd/​Fim­leika­sam­band Íslands

Þarf bæði lík­am­leg­an og and­leg­an styrk

Þótt Mar­grét þekki lík­ama sinn vel seg­ist hún enn vera að læra á sjálfa sig þegar kem­ur að því að tak­ast á við streitu og mót­læti tengt æf­ing­um og keppni. „Það sem hef­ur nýst mér best er að hafa sjálfs­traustið í lagi. Ég hef nýtt mér að fara til íþrótta­sál­fræðings til að hjálpa mér, en ég lærði einnig mjög ung að nota skyn­myndaþjálf­un,“ seg­ir hún. 

Það er ekki síður krefj­andi fyr­ir hug­ann en lík­amann að æfa fim­leika, en íþrótt­in reyn­ir mikið á bæði lík­am­leg­an og and­leg­an styrk. Hug­ar­farið skipt­ir því miklu máli og hef­ur Mar­grét komið sér upp möntru sem hún fer með áður en hún stíg­ur inn á keppn­is­gólfið. „Ég hugsa alltaf: „Ég get, ég vil, ég ætla, ég skal,“ seg­ir Mar­grét. 

Það er ein­mitt allt álagið sem fylg­ir íþrótt­inni, bæði and­legt og lík­am­legt, sem Mar­gréti þykir mest krefj­andi við að vera af­reks­kona í fim­leik­um. „Það sem er hins veg­ar svo gef­andi er þegar öll vinn­an sem ég legg í þetta skil­ar ár­angri,“ seg­ir Mar­grét. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda