Ákvarðanir sem breyta lífinu

Ágústa Johanson framkvæmdastjóri Hreyfingar.
Ágústa Johanson framkvæmdastjóri Hreyfingar. Ljósmynd/Ásta Kristjánsdóttir

„Hver er morg­un­rútín­an þín? Hvað er það fyrsta sem þú ger­ir eft­ir að þú vakn­ar á morgn­ana? Er það sturta, kaffi á hlaup­um og því næst út úr húsi eða gef­ur þú þér tíma fyr­ir ró­leg­heita morg­un­stund, and­ar að þér deg­in­um, út­býrð holl­an morg­un­verð stút­full­an af nær­ingu og orku fyr­ir dag­inn og tek­ur með þér nesti í vinn­una?

Vilj­ir þú bæta líf þitt og heilsu snýst allt um þitt val. Að velja heil­brigðari lífs­stíl og líða bet­ur and­lega og lík­am­lega. Ákvarðanir sem þú tek­ur alla daga oft á dag skipta meira máli en þú e.t.v. átt­ar þig á,  því þær geta breytt ákaf­lega miklu í lífi þínu,“ seg­ir Ágústa John­son í nýj­um pistli á Smartlandi: 

Rétta svarið er ekki endi­lega að borða morg­un­verð eða hafa nesti meðferðis. Staðreynd­in er ein­fald­lega sú að við eig­um val á hverj­um degi, frá því við opn­um aug­un og þar til við hverf­um á ný í draumalandið. Núna eða síðar? Hingað eða þangað? Þetta eða hitt? Ætti ég eða ætti ég ekki? Þetta er öll­um ljóst, en erum við nægi­lega meðvituð um það í erli dags­ins?

Óhætt er að segja að lífið sé enda­laus röð af val­kost­um. Við stönd­um frammi fyr­ir þeim hverja vak­andi mín­útu. Keyra eða ganga? Standa eða sitja? Sjón­varp eða lest­ur? Æfing fyr­ir vinnu eða eft­ir? Hreyf­ing eða sóf­inn? Nammi eða hnet­ur? Gos­drykk eða vatn? Jafn­vel þegar við erum ómeðvituð um val­kost­ina þá eru þeir þó til staðar, og ákv­arðan­irn­ar okk­ar verða að venj­um.

Líttu í kring­um þig. Hvar sem þú ert núna er sá staður sem hvert skref sem þú tókst leiddi þig að. All­ar ákv­arðanir sem þú tókst, hvort sem þær virt­ust stór­ar eða smá­ar á þeim tíma, hvert á að fara, hvað á að borða, hvaða bók á að lesa, hvaða skóm á að klæðast... allt verður sam­spil af heild­ar­mynd­inni þinni í dag. All­ar okk­ar ákv­arðanir og það sem við velj­um hverju sinni hef­ur áhrif líf okk­ar, það sem það er í dag.

Líki þér ekki staðan sem þú ert í núna, ekki ör­vænta. Þú hef­ur val, þú get­ur gert breyt­ing­ar. Ef þú ert ekki sátt/​ur áttu val um að snúa við blaðinu, bæta um bet­ur. Gæti dag­ur­inn í dag verið rétti tím­inn til að búa til betri venj­ur, þær sem leiða þig á betri stað, þangað sem þú vilt vera? Mundu að ÞÚ ert við stjórn, þú get­ur valið leiðir og tekið ákv­arðanir sem bæta líf þitt og líðan.

Lík­ast til ger­ir það eng­inn fyr­ir þig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda